Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Sigurður Jónsson kenndi við sjómannaskóla í Namibíu: „Skammtímalausn alveg fram í fingurgóma“

Hér er brot úr frétta­máli nýjasta tölublaðs Mannlífs.

Þróunar­samvinnu­stofnun Íslands eða ÞSSÍ starfaði frá 1981 til 2015 þegar hún var lögð niður og verkefni hennar sett undir Utan­ríkis­ráðuneytið. Meðal verkefna sem stofnunin stóð fyrir var þróunar­starf í Namibíu. Auk þess að útvega mannskap til hafrannsókna átti stofnunin þátt í að koma sjómanna­skóla á laggirnar í afríku­ríkinu en hóf hann starfsemi árið 1994. Í skýrslu sem gerð var fyrir Utan­ríkis­ráðuneytið segir að skólinn starfi þar enn og vegni vel. Fyrr­verandi kennari við skólann er á öðru máli.

Íslendingar lélegir í langhlaupi

Skólinn er enn starf­ræktur í Namibíu en starf Sigurðar og Alfreðs og fleiri starfs­manna skólans á sínum tíma, snéri að því að þjálfa kennara, búa til námsskrá og námsefni og takmarkið var að sögn Sigurðar að skólinn uppfyllti alþjóð­lega staðla. „En það var aldrei gert. Þannig að ef skólinn hefði verið tekinn út af alþjóð­legu batteríi, þá hefði hann fallið á því prófi,“ sagði Sigurður í samtali við Mannlíf. Sagði hann ennfremur að það hafi vantað töluvert upp á að takmarkinu væri náð og að loforðin sem gefin voru Namibíu­mönnum varðandi skólann, hafi verið uppfyllt.

Þróunar­samvinnunni í Namibíu var hætt í kringum 2014 en að sögn Sigurðar kom stjórn skólans til Íslands til að biðja um áfram­haldandi aðstoð. „Sem var algjör­lega nauðsynleg. En við höfum aldrei verið góðir í lang­hlaupi, við Íslendingar. Þetta var skammtíma­lausn alveg fram í fingurgóma. Þannig að þeir fóru heim án þess að fá nokkuð fyrir sína ferð,“ sagði Sigurður. Segir hann að ástandið í skólanum í dag sé ekki gott. „Eftir að þetta fór nú að verða svona, urðu miklar manna­breytingar. Það hélst illa í fólk. Og það komu þarna fólk sem við höfðum aldrei þjálfað eða kennt í kennslu­fræðum. Þannig að það hafa orðið mikil umskipti. Og það þýðir bara það að ef skólinn yrði skoðaður í dag fengi hann engan alþjóð­legan stimpil sem alvöru skóli. Ég hef alltaf litið svo á að það er okkar sök í þessu máli að hafa ekki staðið okkur gagnvart því. Þetta var bara dapurt,“ sagði Sigurður.

Skólinn uppfyllir ekki alþjóðlega staðla

Sigurður kemur aftur inn á úttektina sem gerð var fyrir Utan­ríkis­ráðuneytið: „Þú getur búið til skýrslu og látið allt líta vel út, það er ekkert vandamál. En ef það væri fólk sent þangað til að gera almennilega úttekt á skólanum, hver staðan væri í dag, þá kæmi hið sanna í ljós. Nú veit ég ekki hvort að sá sem biður um skýrslu, eins og Þróunar­samvinnu­stofnunin í þessu tilfelli, geti lagt línurnar um að þetta yrði að vera góð skýrsla. En svo má alveg segja það að miðað við stöðuna eins og hún var árið 1995 þá hafa orðið framfarir þarna en þær leiddu ekki til þess sem við lögðum upp með á sínum tíma. Að þarna yrði skóli sem yrði samþykktur af alþjóð­legum stofnunum.“ Segir kennarinn fyrr­verandi að þeir skip­stjórar sem lært hafa í skólanum yrðu beðnir um pappíra í einhverri höfninni út í heimi, gætu þeir lent í vandræðum. „Í dag er þetta þannig að ef þú ert yfirmaður á skipi og ferð í erlenda höfn, þá geturðu átt von á því að þurfa að sýna þína pappíra. Og þeir pappírar þurfa að hafa gildi fyrir alþjóðleg tryggingar­svæði. Því ef að það er ekki verður bara þitt skip stöðvað.“ Segir Sigurður að skírteini úr Sjómanna­skólanum í Namibíu sé svipað og punga­prófið hér á landi: „Þú mátt sigla innan þinnar landhelgi en þú ferð raun­verulega ekkert út fyrir hana.“

„Við eyddum alveg ofboðs­legum pening í þetta,“ sagði Sigurður og bætti við að Norðmenn hafi einnig hent í þetta miklum fjárhæðum. „Þeir keyptu til dæmis svona siglinga­hermi og Víðir var að kenna mönnum að nota þann hermi. Þessi hermir samanstóð af fjórum PC-tölvum og þetta var meira svona eins og tölvu­leikur. Ég veit ekkert hver er að kenna á þetta núna en þetta er löngu orðið úrelt.“ Segir Sigurður að það hafi verið eytt í ýmislegt á borð við herminn án þess að hugsa út í langtíma­markmiðin og án þess að uppfæra reglulega. „En það var ekkert óeðlilegt að settur væri í þetta pening en ég veit ekki hversu há sú upphæð er en hún var stór. Og þessum pening var hent. Það má alveg segja það. Þetta var alltaf í byrjenda­fasa og komst ekkert upp úr honum. Ég held að það hafi verið mörgum okkar ljóst að svona 10 ár í viðbót hefði verið alveg nauðsyn­legur tími.“

Hægt er að lesa alla greinina í nýjasta tölublaði Mannlífs nákvæmlega hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis