Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Eva segir dómarann hafa dregið „víðáttuvitlausar ályktanir“ í máli Skúla Tómasar

„Þegar niður­staðan virðist fráleit er það vísbending um að forsendurnar séu rangar“

Eva Hauksdóttir
Eva Hauks­dóttir Eva rífur í sig stjórn­völd í grein­inni Mynd: Facebook

Lögmaðurinn Eva Hauks­dóttir fer hörðum orðum um meðferð stjórn­valda og dóms­kerfisins á máli Skúla Tómasar Gunnlaugs­sonar læknis í grein sem hún birti á Vísi í gær. Hún segir að framganga ríkis­valdsins hafi verið „með ólíkindum“ og lýsir yfir alvarlegum efasemdum um stöðu réttar­ríkisins.

„Framganga ríkis­valdsins í þessu máli hefur verið með ólíkindum. Hvort sem litið er til löggjafans, framkvæmdar­valds eða dómsvalds, hafa viðbrögðin við máli lífsloka­læknisins verið slík að ég stórefast um að við ráðum við það verkefni að halda uppi réttar­ríki,“ skrifar Eva en hún er dóttir Dönu Jóhanns­dóttur, en Skúli Tómas var ákærður fyrir að hafa valdið dauða hennar árið 2019, þegar hún fór í hvíldar­innlögn á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja.

Hún gagnrýnir meðal annars embætti land­læknis fyrir að hafa aðeins svipt Skúla lækninga­leyfi í 15 vikur þrátt fyrir niður­stöður rann­sóknar embættisins og bendir á að hann hafi síðar fengið fullt starfs­leyfi á ný á meðan lögreglu­rannsókn stóð enn yfir.

Eva gagnrýnir einnig Land­spítalann fyrir að hafa ráðið Skúla til starfa á meðan hann var til rann­sóknar vegna gruns um manndráp.

„Skúli vann á Land­spítalanum allt þar til héraðs­saksóknari ákærði hann fyrir manndráp af ásetningi þann 30. mars síðastliðinn. Þá var hann sendur í frí en er nú kominn aftur til starfa,“ skrifar hún.

Þá segir hún heilbrigðis­ráðherra og Alþingi hafa brugðist tækifæri til að styrkja lagaramma um öryggi sjúklinga. Hún gagnrýnir jafnframt lögreglu og embætti héraðs­saksóknara fyrir langa máls­meðferð og skort á upplýsinga­gjöf til aðstand­enda.

Eva beinir einnig spjótum sínum að Héraðs­dómi Reykjaness, sem vísaði málinu frá á þeim grund­velli að Skúli hefði þegar sætt refsikenndum viðurlögum með máls­meðferð land­læknis.

„Þegar niður­staðan virðist fráleit er það vísbending um að forsendurnar séu rangar,“ skrifar hún og segir dómarann hafa dregið „víðáttu­vitlausar ályktanir“ af fordæmum Mann­réttinda­dómstóls Evrópu.

Eva telur líklegt að Lands­réttur muni snúa þeirri niður­stöðu við.

„Þegar Lands­réttur hefur skoðað málið er líklegast að undið verði ofan af ruglinu og málið sent heim í hérað til efnislegrar meðferðar,“ skrifar hún.

Að lokum bendir Eva á að dómarinn í máli Skúla sé vara­formaður siða­nefndar Lækna­félags Íslands.

„Þess má geta að dómarinn sem vísaði málinu frá héraðs­dómi er vara­formaður siða­nefndar Lækna­félags Íslands, félags sem Í nóvember 2021 lýsti yfir stuðningi við umræddan sakborning sem var til lögreglu­rannsóknar vegna gruns um fjölda manndrápa í starfi.“

Skúli Tómas Gunnlaugsson hefur hafið störf á ný á Land­spítalanum eftir að Héraðs­dómur Reykjaness vísaði manndráps­málinu gegn honum frá dómi. Héraðs­saksóknari hefur kært frávísunar­úrskurðinn til Lands­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum