Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Þórunn Egilsdóttir látin -„Ég held að það sé ekkert vont fyrir þann sem deyr“

Þór­unn Eg­ils­dótt­ir, þing­flokks­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, er lát­in 56 ára að aldri. Hún lést í gær­kvöldi eft­ir lang­vinna bar­áttu við krabba­mein.

Þórunn var fyrr á árinu í ítarlegu viðtali við Mannlíf. Þar ræddi hún meðal annars um sjúk­dóminn, bjartsýnina, vonina, lífið hinum megin, ástina og stjórn­málin.

Þórunn sagðist aldrei hafa verið hrædd við að deyja. „Ég held að það sé ekkert vont fyrir þann sem deyr. Það er verra fyrir hina. Ég hef þá frekar áhyggjur af fólkinu mínu; þeim sem eru í kringum mig. En ekki af sjálfri mér. Við vitum hvað er að lifa en við vitum ekkert hvað hitt er. Það eina sem við vitum er hvernig er að vera á þessari jörð. Hitt vitum við bara ekkert um. Það getur vel verið að einhver viti það en ég veit það ekki.“

Hún sagði frá því að hún hefði greinst með brjósta­krabba­mein árið 2019 og gengið í gegnum stranga meðferð.

Þórunn Egils­dóttir

„Ég greindist með brjósta­krabba­mein í febrúar árið 2019 sem var á 3. stigi og hrað­vaxandi. Ég fór þá í mjög harða lyfja­meðferð, sex skipti í æð. Í fram­haldinu fór ég í fleigskurð til öryggis og svo í geisla til að klára þetta ferli. Lyfin virtust þá alveg vinna á þessu og meinið hvarf algjör­lega. Þetta virtist vera stað­bundið. Ég hef tvisvar síðan farið í tékk og þá fannst ekkert þannig að ég var full bjartsýni og trúði því að þetta væri bara farið, enda getur maður ekkert annað í þessari stöðu. Maður getur ekki alltaf lifað í ótta um að eitthvað gæti gerst. Þannig að ég tók þá afstöðu að þetta væri bara búið og mér tókst að gera það og halda lífinu áfram,“ sagði Þórunn í viðtalinu.

Í lok nóvember síðastliðinn sagðist Þórunn hafa farið að fá meltingar­truflanir og verið skrítin í kviðnum.

„Ég fór í tékk í lok nóvember og þá virtist allt vera í lagi. Það sást ekki neitt. Það komu þó fram vísbendingar í blóðprufu um að það væri eitthvað óeðlilegt í lifrar­starfseminni. Skömmu síðar hafði ég samband við spítalann og sagði að mér væri ekkert að batna. Þá var farið að skoða mig betur og í ljós kom að ekki var allt í lagi. Lifrin starfaði ekki sem skyldi en það leit ekki endilega út fyrir að vera krabba­mein. Ég fór síðan til Vopna­fjarðar í jólafrí. Þar fór ég í blóðprufu og þá kom í ljós að eitthvað alvarlegt var að. Elsta dóttir mín keyrði mig til Akureyrar 22. desember og ég fór í nákvæma skoðun á sjúkra­húsinu. Daginn eftir kom í ljós krabbi í lifrinni. Það er í rauninni bara smá hluti af henni sem virkar.“

Árið 2013 settist Þórunn á þing fyrir Framsóknar­flokkinn og árin 2015 til 2016 og aftur árið 2018 gegndi hún formennsku flokksins.

Þá sat Þórunn sem 2. vara­forseti þingsins 2015 til 2016 og sem 1. vara­for­seti þings­ins árin 2016 til 2017.

Þórunn skilur eftir sig eiginmann og þrjú börn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra