Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Haraldur Freyr: „Þú lagar ekki mistök með því að gera fleiri mistök“

Haraldur Freyr Gíslason, forðmaður Félags leikskólakennara. Samsett mynd.
Haraldur Freyr Gíslason, forð­maður Félags leik­skóla­kenn­ara. Samsett mynd.

Jæja, er þetta ekki bara orðið gott? er yfir­skrift greinar sem Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leik­skóla­kennara, skrifar og byrjar svona.

„Síðasta haust þegar fyrsta bylgja mótmæla foreldra í Ráðhúsinu var í gangi ritaði ég grein. Hún á jafn vel við í dag og fyrir nokkrum mánuðum síðan. Stundum þarf bara að segja hlutina eins og þeir eru þó að sumir myndu segja að ég sé bara með sigg á hjartanu. Staðreyndin er þessi, öll heimsins mótmæli foreldra í Ráðhúsinu munu ekki ráðast að rót vandans, sem er að það þarf að fjölga kennurum með leyfis­bréf í leik­skólum landsins ef hann á að geta staðið undir lögbundnu hlutverki sínu.“

Bætir þessu við:

„Eins og kemur skýrt fram í lögunum er hlutverk leik­skólans að tryggja börnum gæða menntun, uppeldi og umönnun sem tekur mið af aldri þeirra og þroska. Það er alveg skýrt og hafið yfir allan vafa að „þjónustu­hlutverk“ leikskóla er ekki annað en nákvæmlega þetta. Það er alveg hægt að skilja reiði yfir loforðum sem ekki hafa verið uppfyllt. Ég vona að þeir flokkar í sveitar­félögum landsins sem bera ábyrgð á þessum óuppfylltu loforðum um leikskóla­pláss, læri af þeim mistökum. Þú lagar hins vegar ekki þau mistök með að gera fleiri mistök. Sveitar­félögin í landinu verða að sammælast um að hægja á vexti leik­skóla­stigsins og stíga skref til baka. Það þarf að kæla kerfið þannig að nýliðun nái að auka hlutfall kennara með leyfis­bréf í leik­skólum landsins. Þær tillögur að lausnum frá fulltrúa í minni­hluta borgar­stjórnar Reykja­víkur, sem komu fram í Kast­ljósinu síðastliðinn mánudag, eru sumar varla svara­verðar.“

Haraldur segir að „foreldra­reknir og sjálfstætt starfandi leik­skólar þurfa að fylgja nákvæmlega sömu lögum og reglu­gerðum og sveitar­félögin. Þeir framleiða ekki leik­skóla­kennara úr engu og hlutfall kennara með leyfis­bréf í sjálfstætt starfandi leik­skólum er 11% lægra en hjá skólum reknum af sveitar­félögunum. Ég kalla eftir ábyrgri umræðu um leik­skólamál frá pólitískt kjörnum fulltrúum en ekki upphrópunum og innpakkaðri froðu um „skyndi­bita“ stækkun kerfisins sem leysir engan vanda og mun bara gera starfs­aðstæður kennara og barna í leik­skólum verri.“

Hann nefnir að „það er staðreynd að það eru jákvæð teikn á lofti varðandi fjölgun leik­skóla­kennara. Samkvæmt tölum frá HÍ hefur verið umtals­verð fjölgun í leik­skóla­kennara­náminu undan­farin ár og mjög stór hópur útskrifaðist vorið 2022. Það eru í raun tvær breytur sem munu ráðast að rót vandans og fjölga kennurum með leyfis­bréf enn frekar.

Borgar­fulltrúi í meirihluta í Reykjavík reyndi að færa rök fyrir því að ákvæði um að 2/3 þeirra sem starfa við uppeldi og menntun í leikskóla eigi að hafa leyfis­bréf kennara sé einhvern veginn að þvælast fyrir að hægt sé að fjölga kennurum. Hvernig hann kemst að þeirri niður­stöðu er mér hulin ráðgáta. Það er hins vegar ekkert leyndarmál að síðast þegar samtal var um lögin með hagaðilum, börðust sveitar­félögin hart fyrir því að reyna að taka út ákvæði um að 2/3 hlutar þeirra sem sinna uppeldi og menntun þurfi að hafa leyfis­bréf.

Leik­skóla­kennarar munu aldrei sætta sig við að reglan um 2/3 verði numin á brott úr lögunum. Ef það myndi gerast veit ég fyrir víst að stéttin myndi yfirgefa starfs­vettvanginn daginn eftir. Það er hins vegar alveg rétt að við lenginguna á kennara­náminu í leik-, grunn- og framhalds­skólum féll aðsókn í námið tíma­bundið. Það eru samt 15 ár síðan og við erum fyrir löngu búin að ná aðsókn inn í námið á þann stað sem hún var fyrir laga­breytinguna 2008 eins og borgar­fulltrúinn reyndar benti á. Samt heyrum við enn sönginn um að lækka þurfi menntunar­kröfu kennara í leik­skólum. Það er rangt hjá umræddum borgar­fulltrúa að breytingin á lögum 95/2019 hafi leitt til þess að flæði kennara á milli skóla­stiga hafi aukist leik­skóla­kennurum í óhag. Hið rétta er að á önn minnkaði flæðið um að meðaltali 10.5 félags­menn leik­skóla­stiginu í óhag við breytingarnar 2019. Þökkum við það helst þeim breytingum sem gerðar voru í kjara­samningum 2020. Flæði kennara milli leik- og grunn­skóla er búið að vera leik­skóla­stiginu í óhag svo lengi sem elsta fólk man og eitt leyfis­bréf hefur enn sem komið er ekki aukið á þann vanda. Það er samt alveg þannig að leik­skólastigið þolir ekki fleiri ár af ójöfnu flæði kennara á milli skóla­stiga.“

Haraldur segir að það sé „aðeins ein leið til að að jafna flæði kennara á milli skóla­stiga. Ólíkur starfs­tími hefur verið helsta ástæða þess hvers vegna flæðið á milli skóla­stiganna er kennurum á leik­skóla­stiginu í óhag. Í kjara­samningum 2022 var samið um sérstakt fylgi­skjal um framkvæmd betri vinnutíma í leik­skólum. Með því meðal annars gefst sveitar­félögum gott tækifæri til að samræma starfs­tíma í leik- og grunn­skólum. Staðreyndin er samt sú að Hafnar­fjörður er eina sveitar­félagið sem, enn sem komið er, hefur samræmt skólaárið á milli leik- og grunn­skólans. Það gæti því hæglega gerst að kjósi kennarar á höfuð­borgar­svæðinu slíkar starfs­aðstæður að þeir velji að starfa þar. Hafnar­fjörður myndi örugglega taka vel á móti þeim. Kennarar eru nefnilega ekki tré sem skjóta rótum á einum stað. Það er ekki með neinum haldbærum rökum hægt að segja að í undan­förnum kjara­samningum hafi ekki verið stigin stór skref í að gera leikskóla­kennara­stéttina samkeppnis­hæfari við aðra sérfræðinga í launum. Það er bara staðreynd. Það eru samt nær allir sammála því að það verði að meta menntun enn betur til launa. Nema mögulega sveitar­félögin sjálf þar sem umboðið sem þau veita til þess er stundum mjög takmarkað. Svo kvarta þau yfir því að þau fái ekki kennara með leyfis­bréf til starfa. Það er eitthvað verulega öfugsnúið hér.“

Haraldur birtir nokkur dæmi máli sínu til sönnunar.

„Hér má sjá dæmi um laun kennara með leyfis­bréf: Leik­skóla­kennari með enga starfs­reynslu 604.918 kr. Byrjunar­laun. Byrjandi í dag er með meistara­próf. Leik­skóla­kennari með 20 ára starfs­reynslu 705.256 kr. Deildar­stjóri með enga starfs­reynslu 655.503 kr. Deildar­stjóri með 20 ára starfs­reynslu 761.948 kr. Starfs­reynsla sem ófag­lærður starfs­maður í leikskóla er metin á kjara­samning FL/KÍ.

Svo má finna laun alls staðar þarna á milli eftir mismun­andi starfs­reynslu, framhalds­menntun og starfs­heitum. Eins má finna hærri laun ef kennari með leyfis­bréf er með 150-240 ECTS einingar umfram B.ed próf eða sambærilegt bakkalár­próf. Eins má finna lægri laun ef einstaklingar eru ekki með leyfis­bréf til kennslu.“

Segir að endingu.

„Næsta skref til að gera laun kennara enn samanburðar­hæfari við sérfræðinga er jöfnun launa á milli markaða. Tölur frá Hagstofu Íslands sýna að laun sérfræðinga í fræðslu­starfsemi eru umtals­vert lægri en laun annarra hópa sérfræðinga. Sérstak­lega á það við þegar saman­burðurinn er gerður við laun sérfræðinga á almennum markaði. Það er komið að þeirri stundu að markviss skref verði stigin til að efna þetta loforð. Það mál verður hins vegar ekki leyst í þessari grein eða opinberri umræðu heldur við samninga­borðið. Þar eru það sveitar­félögin sjálf sem veita umboð til þess. Þau sömu og kvarta yfir því að þau fái ekki kennara til starfa í leik­skólum landsins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim