Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fastur sárkvalinn heima í rúmt ár: „Ég væri ekki í þessari stöðu ef það væri ekki fyrir þessi lyf.“

Hinn 28 ára Ryan Harding þjáist af alvarlegum húðsjúkdómi og segist hafa setið í einskonar stofu­fangelsi síðastliðið ár.

Ryan leitaði til læknis þegar hann fór að fá útbrot í hnés­bótina, hann segist hafa fengið háan skammt af sterum sem áttu að hjálpa honum að losna við útbrotin en virkuðu öfugt, þau dreyfðust um allan líkamann. Ryan fór þá á bráða­móttöku þar sem honum voru gefin önnur steralyf, í þetta skipti lægri skammt, auk krems. Útbrotin löguðust og honum fór að líða betur, allt þar til hann kláraði lyfja­kúrinn en þá snar­versnuðu einkennin.

Blöðrur og útbrot með grefti brutust út um allan líkamann, hann skalf úr sársauka og kláðinn var óbærilegur. Líkami hans tók fráhvörfunum illa, líkams­hiti hans fór úr því að vera allt of hár í að vera of lágur til skiptis.

Hann fór aftur á slysa­deild þar sem honum var gefið vökvi í æð og enn annar skammturinn af sterum. Atburða­rásin endurtók sig, honum leið betur en um leið og hann hætti á sterunum snar­versnaði ástandið.

Líkami Ryan er þak­inn rauðum, hrúð­óttum útbrotum.

Hann fór þá á annan sterakúr en í þetta skiptið var honum gefið ónæmis­bælandi lyf til að koma í veg fyrir fráhvarfs­einkenni. Hann lá inni á sjúkra­húsi í níu daga.

Ryan hefur verið í þessum vítahring í rúmt ár, hann hefur ekki treyst sér til að fara út úr húsi. „Ég hef aldrei glímt við andleg veikindi en þetta ár er búið að vera hræðilegt, ég hef gengið svo langt að skaða sjálfan mig. Ég hef aldrei á ævinni grátið svona mikið“

Síðar kom í ljós að Ryan þjáist af því sem er kallað „stað­bundið stera fráhvarfs­heilkenni“ en það felur í sér hræðileg viðbrögð líkamans við stera­notkun. Oft verður sjúk­dómurinn til upp úr notkun á sterum við exemi. Þeir sem glíma við þennan sjúkdóm festast í vítahring þar sem einkennin batna en snar­versna svo, sterarnir virka minna með hverjum kúrnum. Margir þeirra sem kljást við sjúk­dóminn eru „fastir“ heima við svo mánuðum og jafnvel árum skiptir.

Blöðrur í and­liti Ryan.

Ryan hefur ekki getað sinnt vinnu sinni sem pípari í meira en sjö mánuði. „Sem betur fer er kærastan mín að vinna, auk þess á ég einhvern sparnað en þetta setur mikla streitu á sambandið. Ég hef ekki getað hitt vini mína né gert neitt af því sem maður á að njóta þess að gera á meðan maður er ungur. Ég hef lítið getað hreyft mig en áður elskaði ég að fara í ræktina, stundum kemst ég í göngutúra “ Ryan segist hafa brotið nokkur bein yfir ævina, spilað amerískan fótbolta alla tíð en aldrei nokkurntíman fundið sársauka í líkingu við þennan.

„Ég vil fræða fólk um sjúk­dóminn, það vita ekki margir að svona lagað geti gerst. Ég væri aldrei í þessari stöðu ef það væri ekki fyrir lyfin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna