Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Illugi hitti tvær eldri konur í pottinum: „Alltaf skaltu vera jafn djöfull merkileg með þig“

Illugi Jökulsson.
Illugi Jök­uls­son.

Illugi Jökulsson varð vitni að ansi sérkenni­legu en skemmtilegu samtali tveggja eldri kvenna í heita pottinum í gær.

Fjölmiðla­maðurinn vinsæli, Illugi Jökulsson birtir reglulega örsögur úr heita pottinum á Facebook-síðu sinni og hafa þær mælst ansi vel hjá lesendum hans. Sú nýjasta segir frá tveimur eldri konum sem áttu í ansi sérstökum samskiptum í pottinum. Saga er sjón ríkari:

„Í heita pottinum rétt áðan sat kona, líklega komin nærri áttræðu, og dormaði. Þá kemur önnur kona á svipuðu reki og stígur niður í pottinn. Sú fyrri rekur upp stór augu og segir: „Nei, Helga mín, ert þú ekki í útlöndum?“

Sú seinni hallar undir flatt, fær sér sæti en segir ekkert.Eftir nokkra stund segir sú fyrri, ögn sár: „Þú svarar engu?“Þá sagði sú seinni: „Þú spurðir hvort ég væri í útlöndum. Ég þarf ekkert að svara því. Þú sérð að ég er ekki í útlöndum.“Það skall á þögn. Svo segir sú fyrri skyndi­lega og hirðir ekki um hverjir heyra:„Alltaf skaltu vera jafn djöfull merkileg með þig.“Hin svarar eldsnöggt:„Ég er þó ekki alltaf að þvaðra eintóma andskotans vitleysu.“Það skall aftur á þögn. Svo lengri þögn. Þegar ég var að búast til að fara, heyri ég að sú fyrri segir:„Jæja, Helga mín, hvernig hefurðu það annars?“Og Helga svaraði: „Ja, það er nú bara svona mesta furða, vinan“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt