Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Helgu Völu dreymdi Hrafn og nú er baráttumál hans á dagskrá: „Ég lofa að gera allt sem ég get“

Helga Vala Helga­dóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, lofar því að gera allt sem getur til að þess að baráttumál Hrafns Jökuls­sonar heitins nái framgangi. Hrafn hafði undan­farin ár hvatt Helgu Völu til dáða varðandi betri aðstæður á geðdeildum Íslands. Það hefur verið löngum vitað að geðheilbrigðismál á Íslandi eru í molum.

Helga Vala skrifar á Facebook: „Rétt í þessu var þessari þings­ályktun okkar í þing­flokki Samfylkingarinnar dreift en þetta er í þriðja sinn sem við leggjum málið fram. Tillagan snýst um uppbyggingu geðdeilda, sem er ekki áhugamál okkar sem tillöguna flytjum heldur lífs­nauðsyn fyrir notendur þjónustu á geðdeildum landsins. Við vitum öll, þar á meðal stjórn­völd, að þeim sjúklingum sem takast á við geðrænar áskoranir og þurfa á innlögn að halda eru skapaðar óboðlegar aðstæður. Sama má segja um það starfs­fólk sem sinnir hinum sjúku. Það sýna fjöldi skýrslna sem ritaðar hafa verið en ekkert bólar á aðgerðum stjórn­valda til uppbyggingar þeim geðdeildum, á Land­spítala og Sjúkra­húsinu á Akureyri sem eru í rekstri. Ekki er heldur gert ráð fyrir geðdeildum LSH á nýja meðferðar­kjarnanum sem nú er í byggingu. Við þurfum nútímalegar geðdeildir sem byggja á nútímalegri hugmynda­fræði um heilbrigðis­þjónustu við fólk með geðrænar áskoranir. Heilsu­eflandi umhverfi en ekki innilokun í leku húsnæði.“

Hún segist tileinka þessa þings­ályktun til minningar Hrafns. „Að þessu sinni er fram­lagningin tileinkuð minningu Hrafns Jökuls­sonar, sem ítrekað hefur haft samband við mig undan­farin ár og hvatt mig til dáða varðandi þetta mál, enda sjálfur eldheitur baráttu­maður fyrir betri aðstæðum á geðdeildunum. Þannig vildi til að í byrjun síðustu viku þá dreymdi mig Hrafn, sem sagði mér það eitt í heim­sókninni í drauminn að ég mætti ekki gefast upp á barátt­unni fyrir þessu máli. Ég trúi nú frekar lítið á tilviljanir og sendi Hrafni því skilaboð þess efnis að ég myndi ekki gera þetta ein, við værum bæði í þessu þannig að hann hefði verk að vinna með því að svæla burt hana Surtlu sem hafði ruðst inn í líf hans.

Surtla hafði svo betur í lok vikunnar og nú er þetta mál komið til þingsins og því lofa ég að gera allt sem ég get til að þetta mál nái framgangi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“