Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Konur í Flokki fólksins á Akureyri sagðar „of vitlausar“ og „geðveikar“

Mynd/samsett
Mynd/sam­sett

Kven­fulltrúar Flokks fólksins á Akureyri segjast lítilsvirtar með ótrúlega niðrandi og fyrirlitlegri framkomu í sinn garð af hálfu karlkyns trúnaðar­manna flokksins í bænum. Þær Málfríður Þórðar­dóttir, Tinna Guðmunds­dóttir og Hannesína Scheving Virgild Chester hafa sent frá sér sameiginlega yfir­lýsingu þar sem þær stíga fram og segja sína sögu.

„Við sem erum þolendur alls þessa ofbeldis sem um er rætt, ákveðið að stíga fram og freista þess að útskýra líðan okkar og ömurlega reynslu af samskiptum við þessa ónefndu karla­forystu og aðstoðar­manna þeirra á frá því snemma í vor,“ segir meðal annars í tilkynningu þremenninganna en fyrr í morgun óskaði vara­formaður flokksins, Guðmundur Ingi Kristinsson eftir stjórnar­fundi hjá flokknum vegna ásakananna.

Í kjölfar beiðni Guðmundar ákváðu Málfríður, Tinna og Hannesína að stíga fram og segja frá sinni hlið. Í yfir­lýsingunni kemur fram að þann 10. september síðastliðinn hafi oddviti flokksins boðað til fundar á heimili sínu þar sem þær töldu að markmiðið væri að koma á ró og vinnu­friði.

„Eftir síðustu bæjar­stjórnar­kosningar þar sem flokkurinn okkar vann stórsigur var mikill hugur í okkur öllum, jákvæðni og þakklæti til allra þeirra sem gáfu okkur sitt dýrmæta atkvæði og um leið tækifæri til að koma kærleiks­ríkum góðum málstað Flokks fólksins á framfæri. Við ætluðum að vinna af krafti við að byggja upp félags­starf flokksins okkar hér heima. Einnig ætluðum við að hafa samráð varðandi öll bæjar­ráðsmál með því að styðja og styrkja hvert annað.  En í ljósi reynslunnar af samskiptum við karlkyns­forystu flokksins og aðstoðar­manna hefur þessi góði vilji okkar frekar litast af draumsýn en veruleika.

Efstu konur á lista flokksins voru sífellt lítilsvirtar og hunsaðar. Á trúnaðar­fundum flokksins vorum við sagðar of vitlausar eða jafnvel geðveikar til að vera marktækar. Sumar okkar máttu sæta kynferðis­legu áreiti og virkilega óviðeigandi framkomu til viðbótar við að vera ekki starfinu vaxnar og geðveikar.

Á fundinum mætti okkur mikil andúð og kuldi og yfirgaf vara­bæjar­fulltrúi hann grátandi eftir tíu mínútur.  Oddvitinn dró þá fram bréf sem hann las upp og hótaði að birta. Bréf sem var hlaðið rógburði, rang­færslum og hótunum um að við misstum starfs­leyfi okkar sem heilbrigðis­starfsmenn ef við létum ekki að stjórn.  Alla daga síðan hafa þessar hótanir verið viðvarandi og umræddu hótunar­bréfi dreift.“

Að lokum viljum við segja þetta:

Það er okkur sárara en tárum taki að þurfa að stíga fram og ræða opinber­lega um þá erfið­leika og þau innan­flokksátök sem við höfum verið að ganga í gegnum. Ástæðan að sjálfsögðu sú að við viljum ekki á neinum tíma­punkti skaða flokkinn og allt það góða fólk innan Flokk fólksins sem er með hjartað á réttum stað. En nú þegar vara­formaðurinn okkar hefur stígið fram og ætlar augljós­lega að taka málið föstum tökum, finnst okkur ekkert annað koma til greina en að segja okkar sögu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“