Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Ungir drengir réðust að öðrum í Hafnarfirði

Hafnarfjörður
Hafn­ar­fjörður Mynd: Hafnarfjarðarbær

Lögregla sinnti fjöl­breyttum verkefnum á höfuð­borgar­svæðinu í gærkvöldi og í nótt. Meðal annars var tilkynnt um rán, innbrot, líkams­árás og bílbruna.

Brotist var inn í heimahús í Laugar­dalnum í Reykjavík og þaðan stolið lausa­munum. Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hversu verðmætir munirnir voru eða hvort einhver hafi verið hand­tekinn vegna málsins.

Í Hafnar­firði réðust tveir ungir drengir að dreng á svipuðum aldri. Þeir neyddu hann af hlaupa­hjóli sínu og tóku hjólið. Lögregla hafði uppi á drengjunum og hlaupa­hjólinu skömmu síðar.

Þá var einstaklingur hand­tekinn vegna líkams­árásar í Hafnar­firði og vistaður í fanga­klefa.

Talsvert var einnig um verkefni tengd veðri. Lögregla var kölluð á tvo staði í Hafnar­firði vegna vinnu­palla og þakplatna sem voru að fjúka. Gerðar voru ráðstafanir til að koma í veg fyrir tjón.

Eldur kviknaði jafnframt í mann­lausri bifreið fyrir utan bifreiða­verkstæði í Hafnar­firði. Slökkvilið slökkti eldinn en bifreiðin varð gjörónýt. Skemmdir urðu einnig á annarri bifreið sem stóð við hlið hennar og á verk­stæðinu.

Í póst­númeri 108 í Reykjavík var lögregla kölluð að söluturni vegna einstaklings sem var í annarlegu ástandi sökum ölvunar. Viðkomandi var fluttur á lögreglustöð en sleppt eftir að hafa lofað bót og betrun.

Þá var maður hand­tekinn í Kópavogi vegna ástands hans eftir fíkniefna­neyslu. Hann var talinn ófær um að vera úti meðal fólks og vistaður í fanga­klefa þar sem ekki reyndist unnt að koma honum í annað húsaskjól.

Loks var lögregla kölluð að meðferðar­úrræði í Árbænum til að stilla til friðar eftir að aðstæður þar höfðu farið úr böndunum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum