Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lögreglan fagnar fækkun opinna kynferðisbrota: „Við erum ekki hætt“

Halla Bergþóra Björnsdóttir
Halla Bergþóra Björns­dóttir

Lögreglan á Höfuð­borgar­svæðinu sendi frétta­tilkynningu frá sér þar sem fram kemur að tekið hafi að vinna á uppsöfnuðum málafölda kynferðis­brota með auknu fjármagni og fjölgun starfs­fólks. Þannig hafi tekist að hraða vinnslu kynferðis­brota hjá LRH.

Tekist hefur að vinna töluvert niður uppsafnaðan mála­fjölda hjá lögreglunni á höfuð­borgar­svæðinu (LRH) með fjölgun starfs­fólks og breyttum vinnu­brögðum. Opnum kynferðis­brotamálum á ákæru­sviði og í kynferðis­brota­deild LRH hefur fækkað um 37 prósent á undan­förnum mánuðum eftir að embættið hlaut sérstaka fjár­veitingu til að styrkja rannsókn og saksókn kynferðis­brota. Til marks um þetta þá voru 401 opin mál hjá embættinu þann 1. september sl. en 17. janúar sl. voru þau komin niður í 253 og fækkaði því um 148. Embættinu barst á sama tíma nokkur fjöldi nýrra mála en í heild lauk rannsókn alls 239 kynferðis­brotamála á þessu fjögurra og hálfs mánaða tímabili.

Ráðist hefur verið í ýmsar aðrar aðgerðir til að flýta meðferð kynferðis­brota. Verk­ferlar embættisins voru endur­skoðaðir með það að markmiði að auka málshraða við rann­sóknir brotanna. Þá var samvinna kynferðis­brota­deildar og tölvu­rannsóknar­deildar aukin og bætt til að stytta rann­sóknartíma rafrænna gagna sem tengjast kynferðis­brotum og einnig var stoð­þjónusta frá þjónustu­deild embættisins aukin. Þar að auki var útbúið stjórn­borð þar sem fylgst er með fjölda mála og framvindu þeirra hjá kynferðis­brota­deild og ákæru­sviði.

Þetta eru framfara­skref við meðferð kynferðis­brota hjá embætti lögreglu­stjórans á höfuð­borgar­svæðinu og standa vonir til að afgreiðsla mála sem hafa því miður verið of lengi í kerfinu, með tilheyrandi áhrifum á brotaþola, verði flýtt eins og kostur er.

„Það er ánægjulegt að sjá þennan góða árangur sem náðst hefur á skömmum tíma. Við erum ekki hætt og munum halda áfram að leita leiða til að stytta máls­meðferðar­tíma kynferðis­brota á sama tíma og við tryggjum gæði rannsókna. Auknar fjár­veitingar hafa skipt sköpum og þá skiptir máli að við erum að mæla árangurinn jafnóðum sem hjálpar okkur að fylgjast með því ef það verða til flösku­hálsar en það eru fjölmargir sem koma að meðferð þessara mála hjá embættinu. Það er og hefur verið markmið okkar að bæta enn frekar þjónustu lögreglu í þessum mikilvæga mála­flokki,“ sagði Halla Bergþóra Björns­dóttir, lögreglu­stjóri höfuð­borgar­svæðisins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim