Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Nemendur í tíunda bekk sendir heim úr skólaferðalagi fyrir áfengisdrykkju – Foreldrum misboðið

Reiði braust út á meðal foreldra tíundubekkinga í Brekku­skóla þegar ellefu nemendur voru sendir heim úr skóla­ferðalagi.  Árgangurinn fór í ferð til Danmerkur en þar fór allt úr böndunum, fljótt komst upp að mikil drykkja væri á meðal unglingana og var þá tekin ákvörðun um að senda hluta hópsins heim til Íslands. Ferðin var hluti af svokölluðu vina­verkefni en nokkrum mánuðum áður höfðu danskir nemendur komið til Íslands.

Foreldrar umræddra barna urðu margir reiðir yfir þessari ákvörðun skólans, þó öllum forráða­mönnum hafi verið skylt að skrifa undir samning þess efnis að börn yrðu skilyrðis­laust send heim ef reglum yrði ekki fylgt. „Okkur er ekki einu sinni sýnd sú lágmarksvirðing að halda fund með okkur áður tilkynnt var að ákveðið væri að bömin skyldu send heim,“ sagði eitt foreldranna í samtali við DV árið 2001.

25 nemendur urðu eftir í Danmörku og sögðust foreldrar barnanna vera sérstak­lega ósátt með þá ákvörðun að aðskilja hópinn. Sögðu foreldrarnir einnig að þeir höfðu fengið lítinn umhugsunar­frest áður en skila þyrfti skjalinu, annars yrði börnum þeirra gert að sitja eftir heima. Börnin voru send heim á kostnað foreldra, eins og tekið var skýrt fram í samningnum.

Nemendurnir ellefu, viðurkenndu að hafa neytt áfengis í ferðinni þegar hópnum var öllum safnað saman í íþrótta­húsi í Danmörku. Þeir nemendur sem ekki hefðu neitt áfengis í ferðinni, voru beðnir um að fara úr salnum og sátu þá þeir ellefu eftir sem sendir voru heim.

„Þetta er sú aðferð sem notuð er í öllum skólaferðalögum – ef nemendur brjóta af sér eru þeir sendir heim. Þetta var það sem allir foreldrar voru búnir að skrifa undir að yrði gert. Um það var skýrt samkomulag í foreldrahópnum. En þegar þeir stóðu frammi fyrir því að þetta yrði framkvæmt fannst þeim aðgerðin harkaleg,“ sagði Björn Þorleifsson, þáverandi skóla­stjóri Brekku­skóla. Hann segir að þegar fleiri brot á reglum komu upp, væri ekki komist hjá því að senda nemendurna heim. Foreldrar stóðu fastir á sínu og sögðu skólann hafa staðið illa að málinu, það hafi verið betri leiðir til að leysa þetta en sú að senda börnin heim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Vildi hitta nýja kærastann og beitti fyrrverandi ofbeldi
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti