Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Gekk fyrir bíla og endaði bak við lás og slá

Lögreglubílar
Lög­reglu­bílar Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Víkingur

Tveir dyra­verðir voru hand­teknir eftir að þeir veittust að manni með höggum og spörkum á höfuð­borgar­svæðinu í gærkvöldi og nótt. Mennirnir voru látnir lausir að lokinni skýrslu­töku.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu, en nokkuð var um verkefni tengd ölvun og akstri undir áhrifum.

Nokkrar tilkynningar bárust meðal annars um ofurölvi einstakling sem truflaði umferð með því að reyna að fara fyrir bíla. Hann er jafnframt sagður hafa haft í hótunum við gangandi vegfaranda. Lögregla handtók einstaklinginn og var hann vistaður í fanga­klefa vegna gruns um brot á lögreglu­samþykkt Reykja­víkur.

Þá hafði lögregla afskipti af nokkrum ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum. Þrír voru grunaðir um ölvunar­akstur og fjórir um akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna. Þeir voru látnir lausir að lokinni blóð­sýnatöku.

Einnig barst tilkynning um hugsanlegan ölvunar­akstur eftir að bifreið hafði verið ekið yfir kant og upp á gras. Þegar lögreglu bar að hafði bifreiðinni verið ekið á ljósa­staur. Ökumaðurinn var hand­tekinn, grunaður um akstur undir áhrifum bæði áfengis og ávana- og fíkniefna.

Lögregla aðstoðaði einnig við að vísa óvelkomnum einstaklingum út af matsölu­stað og úr verslunum. Ölvuðum einstaklingi sem gekk við akbraut var ekið heim og annar einstaklingur, sem sagður var sitja fyrir tilkynnanda, var látinn hætta háttsemi sinni og vísað af vettvangi.

Þá voru nokkrir eigendur ökutækja sektaðir vegna rangrar lagningar og lögregla sinnti minni­háttar umferðar­óhappi þar sem engin slys urðu á fólki.

Að lokum var tilkynnt um einstakling sem sat í ökumanns­sæti bifreiðar og lá fram á stýrið. Lögreglu­menn könnuðu ástand hans en í ljós kom að hann hafði einfald­lega fundið fyrir mikilli þreytu og ákveðið að leggja sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum