Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hannes er enn prófessor þökk sé VG: „Þetta er gert til að rugla um fyrir fólki“

Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðla­maður og sósíal­isti, bendir á Facebook að flestir félagar í íslenska nasista­flokknum hafi gengið í Sjálfstæðis­flokkinn eftir hernám. Með þessu er hann að bregðast við furðulegri full­yrðingu Hannesar Hólmsteins Gissurar­sonar, prófessors við Háskóla Íslands, um að nasistar hafi verið sósíal­istar.

„Félagar í íslenska nasista­flokknum gengu inn í Sjálfstæðis­flokkinn eftir hernám og gegndu þar margir ábyrgðar­stöðum. Ekki síst að hvatningu bandarísku leyni­þjónustunnar sem notaði nasista og aðra fasista víða um heim til að verja á sósíal­istum. Eftir sem áður reyna Sjálfstæðis­flokksmenn að tengja þessa hugmynda­stefnu, þjóðernis­sinnaðan fasisma, við sósíal­ista á Íslandi í dag. Þetta setur Hannes Hólmsteinn á þráð Brynjars Níels­sonar um skemmdar­verk á húsnæði Sósíal­ista og hótanir gagnvart þeim, sem Brynjar segir að Sósíal­istar eigi allt skilið og meira til, að þeir hafi kallað þetta yfir sig,“ skrifar Gunnar Smári.

Hann segir báða tvo hafa ákveðið hlutverk. „Nú vitum við öll að þessir tveir eru óttalegir vanvitar þegar kemur að pólitík, elta í blindni og hugsana­leysi það sem þjónar gagn­byltingu hinna ríku. Það er því ekkert mark á þeim takandi. En Brynjar er aðstoðar­maður dómsmála­ráðherra og Hannes hefur verið á góðum launum hjá almenningi við að kenna (ekki) í Háskóla Íslands í bráðum hálfa öld, auk þess sem hann fær reglulega háa styrki úr ríkis­sjóði frá fjármála­ráðherra og formanni Sjálfstæðis­flokksins til að skrifa skýrslur (sem enginn les),“ segir Gunnar Smári.

Báðir þiggja þeir þó laun frá okkur öllum, skatt­greiðendum. „Þetta eru því menn sem Sjálfstæðis­flokkurinn heldur á launum frá ykkur til að bera út áróður um að verkalýðs­barátta og frelsis­barátta hinna fátæku og kúguðu sé í raun mannhaturs­stefna. Þetta er gert til að rugla um fyrir fólki, fela mann­hatrið sem keyrir Sjálfstæðis­flokkinn áfram og mótar stefnu hans. Og þar með stefnu íslenska ríkisins, þökk sé Vg og Framsókn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum