Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

CeaseTone sækir í kántrýið á nýju lagi

„Það er miklu auðveldara að segja satt og vera sniðugur á eigin tungumáli.“

Hafsteinn CeaseTone Þráinsson
Haf­steinn CeaseTone Þrá­ins­son Smá­skífan Á tóna­flóði kom út í dag Mynd: Aðsend

CeaseTone, lista­mannsnafn Hafsteins Þráins­sonar, gefur út nýtt lag, „Á tónaflóði“, í dag. Lagið verður fyrsta smáskífan af þriðju breið­skífu CeaseTone sem væntanleg er í október 2026.

Í tilkynningu segir Hafsteinn lagið vera „ástaróður til sköpunar­gleðinnar og vinátt­unnar“.

„Það er svo gaman að deila gleðinni og ástinni á sköpun, birtingar­myndin þarf ekki að vera fullkomin, maður sjálfur þarf ekki að vera fullkomin,, maður þarf bara að meina það og finna sáttina í sinni eigin mynd af útgeislun, sköpun og gleði, mér finnst að það sé svolítið það sem ég er einnig að reyna að kjarna í þessu lagi í orðum og stemningu,“ segir hann.

Hann lýsir laginu sem tónlist fyrir samveru­stundir og hversdags­lega gleði.

„Þetta lag er fyrir hópferðir í bílnum, tjaldstóla­hring og kassa­gítar í útilegu, erfiða morgna þar þegar mann vantar smá spark í rassinn og allar aðrar aðstæður þar sem viljinn til að gleðjast saman ræður ríkjum sama hvað bjátar á.“

Lagið varð til í hljóðveri Hafsteins á Granda og þróaðist að hans sögn fljótt yfir í nýjan hljóðheim fyrir hann sjálfan.

„Lagið varð til í hljóð­verinu mínu út á Granda, áður en ég vissi af þá var þetta litla fræ orðið að heilu lagi sem kallaði af einhverri ástæðu á smá kántrý­fýling sem er tiltölu­lega nýr hljóð­heimur fyrir mig en ég sem auðmjúkur fylgjandi lista­gyðjunnar svaraði kallinu og úr varð þessi skemmtilega samsuða indí rokks, popp­tónlistar og kántrý.“

Þá segir hann einnig sérstaka ánægju hafa falist í því að semja á íslensku.

„Það hefur einnig verið einstök gleði að temja sér það meira að semja texta á íslensku, fyrri plöturnar mínar voru alfarið á ensku því að af einhverri ástæðu þá óttaðist ég íslenskuna í textasmíð, eins og hún væri aðeins of berskjald­andi en með árunum hef ég fundið hvað það er miklu auðveldara að segja satt og vera sniðugur á eigin tungumáli.“

CeaseTone hefur komið víða við í íslensku tónlistar­lífi og starfað meðal annars sem söngvari, laga­höfundur, pródúsent, útsetjari og gítar­leikari fyrir tónlistar­fólk á borð við Bubba Morthens, Daða Frey, Unu Torfa, JóaPé x Króla, Tinu Dickow og Yo-Yo Ma.

Auk Hafsteins koma meðal annars að laginu Ómar Guðjónsson á pedal steel gítar, Sigrún Harðar­dóttir á fiðlu, Unnur Jóns­dóttir á selló, Magnús Jóhann Ragnarsson á hljóð­gervla og Styrmir Hauksson sem sér um masteringu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt