Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Bæjarstjórinn sem sagði upp

Jón Björn Hákonarson.
Jón Björn Hákon­ar­son.

Jón Björn Hákonarson sagði í dag starfi sínu lausu sem bæjar­stjóri Fjarða­byggðar; mun hann starfa áfram sem bæjar­stjóri næstu vikurnar og ljúka störfum í mars, og vinna við að ráða nýjan bæjar­stjóra er þegar hafin.

Hann fjallar um málið á Facebook-síðu sinni og byrjar færslan svona:

„Dagurinn í dag felur í sér ákveðin tímamót í mínu lífi þar sem ég tilkynnti bæjarráði Fjarða­byggðar í morgun þá ákvörðun mína að segja upp starfi mínu sem bæjar­stjóri Fjarða­byggðar og í framhaldi af starfs­lokum mínum í því starfi mun ég óska eftir leyfi frá störfum frá bæjar­stjórn Fjarða­byggðar út árið 2023.“

Jón Björn segir að „síðustu ár í starfi bæjar­stjóra hafa verið afar annasöm, en á sama tíma ákaflega gefandi. Ég hef frá árinu 1994 helgað sveitar­stjórnar­málum megnið af mínum tíma og ég lít stoltur og ánægður um öxl yfir þann tíma. Ég hef verið þeirrar gæfu aðnjótandi að fá að vinna að fjöl­breyttum verkefnum fyrir samfélagið okkar á þesum tíma, hvort sem er innan nefnda sveitar­félagsins, í bæjar­stjórn og nú síðast sem bæjar­stjóri.

Það hafa verið mikil forréttindi að fá að vinna að málum sveitarfélagins með fjölmörgum öflugum og skemmtilegum kjörnum fulltrúum úr hinu pólitíska umhverfi hverju sinni. Það hefur ekki síður verið gefandi að vinna með starfs­mönnum sveitar­félagsins.“

Hann bendir á að „sveitar­félagið á mikinn auð í sínum starfs­mönnum sem hefur verið gott að vinna með í gegnum tíðina. Þegar ég velti fyrir mér öllum þeim málum sem ég hef fengið að koma að þá veit ég eiginlega ekki hvað stendur þar upp úr því þetta hefur eiginlega allt verið jafn gaman að fá að vinna að.

Sameiningarnar sem myndað hafa Fjarða­byggð tel ég hafa verið mikið gæfuspor fyrir samfélagið allt. Öll sú mikla tvinnuuppbygging sem hér hefur átt sér stað, sá árangur sem náðst hefur þó í samgöngu­bótum, velferðar­málin og breytingar á þeim vettvangi í aukinni þjónustu við börn og fjöl­skyldur þeirra og almenna velferð í Fjarða­byggð.“

Jón Björn nefnir að „allt eru þetta risa­vaxinn verkerfni en eins og alltaf þegar horft er í baksýnis­spegilinn hefði maður viljað gera sumt öðruvísi og annað betur en vonandi er það fleira sem eftir liggur sem hefur reynst samfélaginu til góða eftir afrakstur samvinnu við svo margt gott fólk og íbúa hverfanna okkar. Heilt yfir hefur, eins og ég sagði áðan, þessi tími minn á vettvangi sveitar­stjórnar­mála í Fjarða­byggð verið afar skemmtilegur og gefandi og ég er pínu meyr yfir að hafa fengið traust til þessara verka svona lengi.“

Hann segir frá því að hann hafi haft áhyggjur af orðræðu kjörinna fulltrúa, og hann er ósáttur hvað þetta varðar:

„Ég neita því þó ekki að síðustu misseri hef ég haft ákveðnar áhyggjur af því hvernig orðræða um störf kjörinna fulltrúa er að þróast og gagnrýni og rökræða um málefni hefur þróast yfir á persónulegar nótur á samfélags­miðlum og í almennri umræðu. Því þurfum við að breyta í samfélaginu okkar til að gera störf kjörinna fulltrúa eftirsóknar­verð til framtíðar litið. Það er eðlilegt að við höfum mismun­andi skoðanir og lífssýn og rökræða fari fram um þær á eðlilegum vettvangi án þess að persónum sé blandað þar inn á stundum ósmekk­legan hátt. Þannig viljum við að lýðræðið virki.“

Jón Björn segir að endingu að „næstu dagar fara í að ganga frá og koma málum sem ég hef verið að vinna í innan sveitar­félagsins í farveg ásamt því að ljúka því sem ljúka þarf. Að því loknu mun ég taka mér góðan tíma til að hlaða batterýin og sinna vinum og fjöl­skyldu, í framhaldi af því mun ég síðan fara að horfa í kringum mig eftir nýjum verkefnum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim