Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Ofurkonan Lara: „Ég á í stórri skuld við Ísland því landið bjargaði lífi mínu“

Lara De Stefano á sjúkrabeðinu.
Lara De Stefano á sjúkra­beð­inu. Mynd: Facebook

Hin ítalska Lara De Stefano heillaðist af landi og þjóð er hún stundaði nám á Íslandi á yngri árum. Fyrir nokkrum árum ákvað hún að flytja til landsins en tíma­setningin gat vart verið verri. Það var rétt þegar Covid-faraldurinn dreifðist yfir heims­byggðina og setti allt í lás. Á sama tíma uppgötvaði hún krabba­mein í brjósti.

Ísland bjargaði lífi hennar

Lara De Stefano, 33 ára einstæð kona, skrifaði færslu á Facebook þar sem hún birti mynd af sér á sjúkra­beði og skrifar við hana þakkar­ræðu. Þakkirnar fær Ísland og heilbrigðis­starfsfólk. Færsluna má lesa hér að neðan í íslenskri þýðingu.

„Ég á í stórri skuld við Ísland því landið bjargaði lífi mínu. Ég mun aldrei hætta að segja það. Ég hef verið að berjast við krabba­mein síðustu tvö ár vegna erfða­stökk­breytingar sem kallast palb2 sem gerir það að verkum að líkurnar á því að fá brjósta- og bris­krabbamein aukast gríðar­lega. Ég er ekki íslensk en þetta land hefur séð um líf mitt og séð um mig. Ég endurtek; ég á í stórri skuld við Ísland og Íslendinga vegna þessa. Ég verð að þakka læknunum, hjúkrunar­fræðingunum og öllu starfs­fólki Lands­spítalans við Hringbraut. Þetta var erfitt ár því andlega hliðin mín var einnig afar veik en vinnan, háskóla­námið og mörg frábær verkefni sem ég hef tekið þátt í, gaf mér frábæran vilja til að lifa og vera alltaf með bros á vör. Takk Ísland!“

Lara De Stefano á sjúkra­beð­inu.

Slæm tímasetning

Mannlíf tók viðtal við Löru þar sem hún lá á sjúkra­beðinu og jafnaði sig eftir brjóst­námsaðgerð.

„Ég vil endilega fá að bæta Ljósinu við þakka­listann og brjóstastöð Land­spítalans,“ sagði Lara í upphafi viðtalsins og hélt svo áfram. „Saga mín er í raun alveg órúleg því ég er ein á Íslandi og þrátt fyrir lyfja- og geisla­meðferð og þrjár aðgerðir, hefur mér tekist að halda nægri orku til að opna fyrirtæki mitt. Ég held að þetta séu frábær skilaboð til kvenna sem óttast krabba­mein og hætta í vinnunni.“

„Ég er ítölsk og kem frá Como-borg. Ég flutti til Íslands en ég stundaði nám við Háskóla Íslands þegar ég var yngri og ég hreyfst svo af landinu og menningunni,“ sagði Lara en hún er með BA-gráðu frá Ítalíu í lögfræði en einnig lærði hún menningar­miðlun. Á Ítalíu rak hún bílaleigu og tísku­vöruverslun í fjöldi ára.

„Ég ákvað á ákveðnum tíma­punkti að selja fyrir­tækið og ferðast um heiminn í tvö ár. Fór til Kína, Ameríku, Ísrael og Jórdaníu. Og svo reyndi ég að lifa af veturinn á Íslandi árið 2918. Þegar ég kláraði heims­reisuna ákvað ég að flytja á nýjar slóðir og Ísland varð fyrir valinu. Ég flutti hingað í febrúar árið 2020. Því miður kom Covid líka.“

En Covid var ekki einu slæmu fréttirnar.

„En á sama tíma uppgötvaði ég eitthvað í líkamanum mínum, krabba­mein.“

Í fyrstu ætlaði Lara að fara til Mílanó á Ítalíu í krabbameins­meðferð en læknarnir töldu það glapræði. „Læknarnir mínir sögðu að ég myndi taka stóra áhættu með að fara þangað því sumar deildirnar á sjúkra­húsinu í Mílanó höfðu þá þegar verið lokaðar vegna Covid,“ sagði Lara en Covid-faraldurinn fór ansi illa með Ítalíu í upphafi hans.

Þannig að Lara ákvað að byrja meðferð hér á landi. „Ég var mjög hrædd því ég talaði ekki tungu­málið og þekkti ekki heilbrigðis­kerfið á Íslandi. En ég ákvað að fara í aðgerðirnar og meðferðirnar til að bjarga lífi mínu. Ég fór í tvær aðgerðir á brjóstum og eftir að það uppgötvaðist að ég væri með palb2 erfða­stökk­breytingar í mér sem fylgdi hærri líkur á brjósta- og bris­krabbameini. Þá fór ég í lyfja- og geisla­meðferð 2020 til 2021. Ég fór einnig í hormóna­meðferð til að forðast þunglyndi vegna meðferð­anna.“

Ekkert eirðarleysi

En þrátt fyrir veikindin ákvað Lara að vera ekki eirðar­laus. „Ég ákvað að byrja í masters­námi í viðskipta­fræði við Háskólann í Reykjavík. Svo ég skilji betur íslenska markaðinn og menninguna. Ég stofnaði fyrirtæki sem flytur inn rafmagns og hybrit-bíla. Ég sel bæði bíla til bílasala en einnig beint til viðskipta­vina. Ég flyt aðeins bíla frá Ítalíu því við treystum hvoru öðru.“

Þá segir Lara að Ísland stefni á mjög mikilvæg markmið um orku­skiptin sem þurfa að verða að veruleika fyrir árið 2040. „Ég held að Ísland geti verið fyrirmynd annarra þjóða í Evrópu hvað varðar orku­skiptin og þá sérstak­lega hvað varðar rafmagns­bíla. Á Ítalíu gengur rafmagns­bíla­markaðurinn ekki því að rafmagnið er svo dýrt þar og vegna þess hversu erfitt er að hlaða bílana. Þetta hefur hvatt mig til þess að flytja inn slíka bíla til Íslands. Ég elska að hjálpa fyrir­tækjum á Íslandi að stækka. Ég er að skrifa ritgerð um orku­skiptin á Íslandi en því miður er það svolítið erfitt vegna heilsunnar.“

Lara fékk nýverið viðurkenningu frá Guðna Th. Jóhannessyni forseta vegna verkefnis sem hún tók þátt í með fyrir­tækinu Sea Saver ehf. „Síðasta sumar tók ég þátt í verkefni með Sea Saver ehf þar sem smíðuð var frumgerð að tæki til að bjarga fólki úr sjó. Ég vann með frábæru liði sem samanstóð af nemendum frá hinum ýmsum deildum Háskóla Reykja­víkur. Þetta var í fyrsta skipti sem ég vann með Íslendingum og það hjálpaði mér mjög mikið að skilja hvernig frumkvöðlar á Íslandi hugsa hlutina en það er allt öðruvísi en í ítalskri menningu. Í þessu verkefni tókst mér að sameina þarfir Ítalíu, þar sem ég fékk tækifæri til að ræða við yfirmenn í Ítalska sjóhernum, og Íslands en ég tel það afar mikilvægt að byggja upp sterka rann­sóknar- og frumkvöðla­tengingar á milli landa. Sea Saver ehf var á meðal sex í úrslitum keppninnar og ég er mjög ánægð með það því verkefnið hefur gríðar­lega möguleika.“

Lara og for­set­inn

En þetta er ekki eina frumkvöðla­keppnin sem Lara hefur tekið þátt í í miðjum veikindunum. „Ég mætti nýlega á Gulleggið-keppnina og það var mjög áhugaverður viðburður. Ég ætla að búa til sprota­fyrirtæki sem myndi auðvelda orku­skipti með rafknúnum ökutækjum. Ég fékk fullt af jákvæðum endur­svörum frá dómurunum og það er mér hvatning til að halda áfram með hugmynd mína með íslenska liðinu mínu, eftir aðgerðina.“

Mannlíf óskar þessari ítölsku ofurkonu alls hins besta í fram­tíðinni og skjótum bata.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim