Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Sólveig Guðrún Hannesdóttir Engu í lífinu ætti að taka sem sjálfsögðum hlut

Sólveig Guðrún Hannesdóttir
Sólveig Guðrún Hann­es­dóttir

„Mér þykir afskaplega vænt um MR en ég hef kennt þar líffræði síðustu 14 árin og hef átt farsælt og ánægjulegt samstarf við öflugan kennarahóp skólans. Mig langaði líka að leggja mitt af mörkum til að starf skólans styrkist á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Svo eru það  forréttindi að fá að vinna alla daga með ungu fólki og ég hlakka mikið til að vinna með nemendum og kennurum skólans í nýju hlutverki,“ segir Sólveig Guðrún Hannesdóttir, nýráðinn rektor Mennta­skólans í Reykjavík.

Á hvað vill Sólveig leggja áherslu í stöðu rektors? Eru einhverjar nýjungar fram undan?

Áherslur mínar eru að hlúa að og efla sér­stöðu skól­ans.

„Framhalds­skólar landsins eru margir og fjöl­breyttir. Þeir hafa flestir sína sérstöðu og styrk­leika og mér finnst mikilvægt að halda í fjöl­breyti­leikann svo hægt sé að bjóða sem flestum nám á framhalds­skólastigi við sitt hæfi. MR er bóknáms­skóli með aðal­áherslu á að búa nemendur undir áfram­haldandi nám. Áherslur mínar eru að hlúa að og efla sérstöðu skólans, sem er öflugt mála- og raungreinanám, en jafnframt að bjóða upp á heil­steypt nám í deildum með fjöl­breytt úrval valgreina sem fanga áhugasvið nemenda.

Félagslíf nemenda er öflugt í MR. Í skólanum er ekki eitt skóla­félag heldur tvö: Skóla­félagið og Framtíðin. Einnig eru tvö leikfélög, annað gamal­gróið, elsta leikfélag landsins, Herranótt, og hitt yngra, Frúar­dagur. Leik­félögin setja upp sitthvort leik­verkið hvort misserið. Það er alltaf gaman að sjá nemendur blómstra í því sem þau hafa brennandi áhuga á. Mennta­skóla­nemendur eru með eindæmum hugmynda­ríkir og drífandi hópur og mig langar til að samstarfið við félögin í skólanum sé sem allra best og að rektor geti stutt við virkt og skemmtilegt félags­starf.“

Hvað vill Sólveig segja um misjöfn tækifæri fólks til að komast í framhalds­skóla og í þá skóla sem það vill fara – svo sem innflytjendur sem flosna sumir hverjir upp úr skóla. Hvað þarf að gera til að jafna tækifæri ungs fólks til náms?

Auðvitað þarf að bregð­ast við auk­inni þörf á íslensku­kennslu fyrir nem­endur með annað móð­ur­mál.

„Í MR, eins og í öðrum framhalds­skólum landsins, hefur aukist aðsókn nemenda með annað móðurmál en íslensku. Einnig koma nemendur inn í skólann sem hafa búið stóran hluta ævinnar í öðru landi og hafa ekki fengið mikla íslensku­kennslu fram að því. Tekið er tillit til þessara þátta í námi og prófum og í vetur buðu eldri nemendur upp á stuðning við yngri nemendur í skólanum en auðvitað þarf að bregðast við aukinni þörf á íslensku­kennslu fyrir nemendur með annað móðurmál. Nemendur sem sækja í MR eru margir hverjir gríðar­lega duglegir námsmenn og standa sig fram­úrskarandi vel í því sem þeir taka sér fyrir hendur. Auðvitað er líka stór hópur sem þarf aukið utan­umhald eða sérþjónustu og þá er bekkjar­kerfi oft kostur með umsjónar­kennara sem fylgist með umsjónar­nemendum sínum og stoð­þjónustu skólans; góðum náms­ráðgjöfum og hjúkrunar­fræðingi sem fylgja skjólstæðingum sínum vel eftir.“

Tolleringar og dimissio

MR er gamall skóli sem á sér sögu; hvaða máli skiptir fyrir Sólveigu að verða rektor í slíkum skóla? „Þegar ég hóf nám í MR heillaðist ég af aðal­byggingu skólans, Gamla skóla. Andinn þar fannst mér hlýr og notalegur og finnst enn. Mér fannst líka gaman að langri sögu skólans og hefðum. Skóla­bragur er góður og finn ég fyrir því þegar ég hitti útskrifaða nemendur á förnum vegi eða mæti afmælis­árgöngum í árlegu júbílanta­balli skólans að margir bera sterkar taugar til skólans þó áratugir líða frá útskrift.“

Hvaða saga / hefð í skólanum finnst Sólveigu vera áhuga­verðust / merkilegust?

„Mér finnst tveir skemmtilegustu dagar ársins vera tolleringar nýnema og dimissio í lok kennslu á vorin. Nýnemar skólans eru boðnir velkomnir með athöfn og tolleringum úti á túni skólans. Dagurinn einkennist af gleði og jákvæðri orku og í lokin er nýnemum boðin súkkulaði­kaka og mjólk. Við dimissio kveðja sjöttu bekkingar kennara eftir árin sín í MR og halda út í próf­lestur. Þetta er oft trega­blandinn dagur því þó galsi og gleði fylgi dimmiterendunum finnst mörgum erfitt að kveðja skólann sinn eftir þrjú skemmtileg ár.“

Nám á að vera krefj­andi og ögrandi en líka skemmti­legt.

Sólveig er spurð hvað hún hafi í rauninni lært af því að vera kennari í öll þessi ár og hvaða áhrif það hafi haft á hana.

„Það er afskaplega gefandi að vinna náið með ungu fólki. Mér finnst líffræði skemmtileg og ég vona að ég hafi náð að smita einhverja nemenda minna af áhuga á faginu. Mér finnst alltaf jafngaman að sjá og upplifa nemendur blómstra og finna sig í því sem þeir hafa áhuga á. Annað sem hægt er að læra af mennta­skólanemum er að taka sig ekki of alvarlega. Nám á að vera krefjandi og ögrandi en líka skemmtilegt.“

Doktor í ónæmisfræði

Eftir útskrift frá Háskóla Íslands með B.S.-próf í líffræði fór Sólveig í doktorsnám í ónæmis­fræði við University College í London. „Ég ber sérstakar taugar til London og þar átti ég góðan og þroskandi tíma í námi við þennan virta háskóla. Námið á Íslandi bjó mig vel undir framhalds­námið í Bretlandi en námið var krefjandi og reyndi á þraut­seigju og þol. Eftir dvöl við nám erlendis mynduðust tengsl við samstarfs­fólk alls staðar að úr heiminum sem haldast enn í dag. Ég tel að öllum sé hollt að búa í öðru landi um hríð og kynnast öðrum menningar­heimum en sínum eigin.“

Vísindi og rann­sóknir finnst mér heill­andi.

Að loknu doktors­námi vann Sólveig við vísinda­rannsóknir á ónæmisfræði­deild Land­spítalans með öflugum hópi vísinda­manna undir stjórn Ingileifar Jóns­dóttur prófessors. „Vísindi og rann­sóknir finnst mér heillandi og þar kynntist ég líka kennslu en ég kenndi nokkra áfanga í ónæmis­fræði í stunda­kennslu við HÍ. Kennslan höfðaði sterkt til mín og ég ákvað að taka kennslu­réttinda­próf við HÍ og sækja um kennara­starf við MR. Ég nýt þess að kenna og ég tel að fáir endist í því starfi til langframa nema þeir njóti þess.“

Gönguferðir um landið

Sólveig segist helst kjósa að verja frítíma sínum með fjöl­skyldu og vinum.

„Ég á stóra fjöl­skyldu en við maðurinn minn, Jónas Páll Jónasson, eigum fimm börn saman.  Við útskrifuðum tvö þau elstu úr framhalds­skólum í fyrravor, dóttur mína úr MR og stjúpson úr Borgar­holtsskóla. Miðbarnið útskrifaðist úr grunn­skóla í vor og yngstu tveir dren­girnir eru níu og sjö ára. Við ferðumst mikið saman innan- og utanlands og njótum samvista í sumar­bústað fjöl­skyldunnar í Þingvalla­sveit auk þess sem við fylgjum krökkunum á ýmis íþróttamót árið um kring í fótbolta og sér í lagi í körfu­bolta.

Í fyrra­sumar gengum við á Herðu­breið.

Við hjónin eigum ýmis sameiginleg áhugamál, enda bæði líffræðingar að mennt, þó á ólíkum sviðum, og höfum gaman af göngu­ferðum um landið. Í fyrra­sumar gengum við á Herðu­breið í skemmtilegum hópi og var sú lífs­reynsla ógleymanleg. Ég hef líka verið svo heppin sitja í stjórn félags líffræði­kennara, Samlíf, og fá að taka þátt í ótal sumar­námskeiðum með þeim, nú síðast í síðustu viku í ferð með Þóru Ellen Þórallsdóttur prófessor sem kenndi okkur plöntu­greiningar í Núpstaða­skógi og sýndi okkur tilraunareiti í sjálf­sprottnum birki­breiðum á Skeiðar­ársandi.“

Njóta hvers dags

Hvaða lífs­reynsla hefur mótað nýja rekorinn?

Þá horf­inn inn í heim Alzheimersjúkdómsins.

„Ekkert eitt í lífinu hefur mótað mig heldur er ég þeirrar skoðunar að svo lengi lærir sem lifir.  Ég hef átt því láni að fagna að hafa einstaklinga í kringum mig sem hafa hvatt mig og stutt í öllu sem ég hef tekið mér fyrir hendur en það er alls ekki sjálf­gefið. Faðir minn, Hannes Pétursson, prófessor í geðlækningum, var vísinda­maður og fræði­maður í sinni grein og smitaði okkur systur af sínum áhuga. Ég leitaði mikið til hans um ráð og stuðning en hann féll frá fyrir ári síðan, þá horfinn inn í heim Alzheimersjúkdómsins; lífs­reynsla sem hefur kennt mér og okkur í kringum hann að engu í lífinu ætti að taka sem sjálfsögðum hlut og njóta hvers dags sem gefst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Heims­frægur glímu­kappi látinn aðeins 38 ára gamall

Honum er lýst sem ástsælum samstarfsmanni og kærleiksríkum fjölskyldumanni
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Samanburðurinn á tekjuskiptingu byggist á Gini-stuðlinum

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram