Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Magni minnist Glen Hansard

„Hann var svo ótrúlega viðkunna­legur við alla á Bræðslunni“

Glen Hansard
Glen Hansard Glen lést í mót­or­hjólaslysi í Dyflinni. Mynd: Instagram

Söngvarinn Guðmundur Magni Ásgeirsson, forsprakki hljóm­sveitarinnar Á móti sól, minnist írska tónlistar­mannsins Glen Hansard með hlýjum orðum eftir fregnir af andláti hans en Glen kom fram á Bræðslunni á Borgar­firði eystra árið 2011.

Í Facebook-færslu segir Magni að honum hafi brugðið mjög við tíðindin en Glen lést í mótorhjóla­slysi í Dyflinni.

„Hræðilegar fréttir af dauða þessa frábæra manns,“ skrifar hann.

Hann rifjar upp að hafa fengið tækifæri til að verja tíma með Hansard á tónlistar­hátíðinni Bræðslunni og einnig séð hann koma fram með Eddie Vedder, söngvara Pearl Jam.

Magni segir Hansard hafa verið einstakan tónlistar­mann.

„Þvílík rödd og þvílíkur gítar­leikari, en eftir stendur að hann var svo ótrúlega viðkunnalegur við alla á Bræðslunni,“ skrifar hann.

Með færslunni birtir hann myndskeið sem hann tók í hljóð­prufu Hansards á Bræðslunni og segir sig telja að þar hafi tónlistar­maðurinn verið að prófa nýsamda tónlist.

„Takk fyrir tónlistina, Glen Hansard,“ skrifar Magni að lokum.

Frændi Magna, trommarinn og land­fræðingurinn Hafþór Snjólfur Helgason skrifaði einnig færslu um hinn fallna tónlistar­mann og hafði orð á því að hann hafi verið afar viðkunnalegur.

„Ég þekkti Glen Hansard ekki neitt en ég spjallaði slatta við hann baksviðs á Bræðslunni 2011 og hann var einstak­lega næs og ég hef haldið mikið upp á síðan þá og fylgst með honum á öllum miðlum. Sorgar­frétt og mikill meistari farinn allt of snemma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum