Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Í fréttum var þetta helst: Hödd stígur fram, karlagrobb og Texashrottinn í Reykjavík

Ekkert forsjármál opið – „Takk elsku Hödd fyrir að stíga fram, fyrir mig, fyrir þig og allar hinar“

Hödd Vil­hjálms­dóttir og Ragnar Gunn­ars­son

„Hugrakka hugrakka kona.
Takk elsku Hödd fyrir að stíga fram, fyrir mig, fyrir þig og allar hinar. Megi hugrekki þitt veita öðrum í sömu sporum kjark til að gera slíkt hið sama.
Ég stend með þér og staðfesti jafnframt frásögn þína,“ skrifaði ein af fyrr­verandi kærustum Ragnars Gunnars­sonar á Facebook-vegg Haddar Vilhjálms­dóttur á dögunum.

Ragnar steig til hliðar sem framkvæmda­stjóri Brandenburg eftir að viðtal við Hödd birtist í Vikunni. Þar lýsir hún meintu andlegu og líkamlegu ofbeldi sem hún sætti af hálfu fyrr­verandi maka síns, en er hann þó ekki nafn­greindur í viðtalinu.

Í yfir­lýsingunni sem Ragnar skrifar á Facebook síðu sína um daginn sagði hann: ,,Deilur okkar, sem varða forræði, eru í sínu rétta ferli.‘‘

Í viðtalinu við Hödd er hvergi talað um forræðis­deilu milli hennar og fyrr­verandi eigin­manns hennar. Mannlíf hefur nú gögn undir höndum þar sem Sýslu­maðurinn á höfuð­borgar­svæðinu stað­festir að ekkert forsjármál sé opið þeirra á milli.

Rauði baróninn fór í trekant með knattspyrnu­konum: „Eftir fjöruga nótt lagðist ég til hvíldar“

Garðar Örn við Jök­ulsár­lón.

Garðar Örn Hinriksson, oftast kallaður Rauði baróninn, er einn umdeildasti knattspyrnu­dómari Íslands­sögunnar. Fyrir jól kom út sjálfs­ævisaga hans þar sem hann fer yfir ferilinn og fleira áhugavert í lífi hans. Einn kafli í bókinni vekur meiri athygli en aðrir en það er montsaga af því þegar hann fór í trekant með tveimur konum úr efstu deild kvenna­knatt­spyrnunnar.

Hér fyrir neðan er brot úr frásögninni af trekantinum:

„Ég slysaðist eina helgina árið 2004 inn á Hverfis­barinn með félögum mínum, stuttu eftir að ég hafði verið valinn dómari ársins. Áður en ég yfirgaf staðinn rakst ég á félaga minn sem var með þremur stelpum úr boltanum sem ég kannaðist aðeins við en þekkti ekki persónu­lega,“ skrifar Garðar í bókina sína Rauði baróninn

„Ein af þeim var kærastan hans og ætluðu þau rétt að kíkja í einn bjór áður en þau færu heim. Til að gera langa stuttu þú hurfu kunningi minn og kærastan fljótlega en hinar tvær urðu eftir. Einnig lét félagi minn sig fljótlega hverfa svo ég sat einn eftir með þeim“

Til að byrja með veittu þær Garðari litla athygli en um leið og þær vissu hver hann var, breyttist fas þeirra til muna.

„Þær virtust ekki þekkja mig í sjón og veittu mér litla athygli í fyrstu, en um leið og þær komust að því hver ég var breytist allt. Andlitið greini­lega ekki jafn sterkt og nafnið, allt í einu var farið að koma fram við mig eins og ég væri hálf­gerður guð. Bjórnum var slátrað á 0,1 og næst var beðið um tequila á borðið og svo meira tequila. Allt í einu var kominn töluverður hiti í mann­skapinn.“

Hægt er að lesa eldheitar lýsingar á kvöldinu góða á mannlif.is

Texashrottinn handtekinn eftir að hafa ráðist á fjölskyldumeðlimi

Magnús Jónsson, gjarnan nefndur Texas­hrottinn, var hand­tekinn á dögunum á heimili sínu í Reykjavík fyrir árás á fjölskyldu­meðlimi.

Hópur af lögreglu­mönnum mætti á heimili Magnúsar til að handtaka hann. Vitni sögðu atganginn hafa verið mikinn.

„Málið er bara í rannsókn, það er bara stutt komið. Það er búið að ræða við málsaðila og við gefum ekkert frekar upp um framvindu rann­sóknarinnar,“ sagði Guðmundur Ásgeirsson lögreglu­fulltrúi í viðtali við Mannlíf um daginn.

Staðfesti Guðmundur að Magnús væri ekki lengur í haldi lögreglu. Samkvæmt heimildum Mannlífs mætti fjöldi lögreglu­þjóna á vettvang umrætt kvöld og sagði Guðmundur enga áhættu hafa verið tekna.
„Ef að málið er þess eðlis það er bara metið samtímis, við tökum enga sénsa“.

Fjölskyldu­meðlimir Magnúsar komu til hans síðdegis, samkvæmt heimildum Mannlífs, Til stóð að þeir snæddu með honum í tilefni af afmæli eins fjölskyldu­meðlims. Skömmu síðar var hann orðinn mjög ölvaður og ljóst að ekkert yrði af afmælis­boðinu. Magnús lognaðist svo út af en var þá ákveðið að fólkið færi út að borða. Þau komu aftur heim til hans seint um kvöldið. Þá var Magnús vaknaður og trylltist, samkvæmt heimildum Mannlífs. Á hann að hafa ráðist á einn fjölskyldu­meðlim og dregið á hárinu, þar á eftir réðst hann svo á annan fjölskyldu­meðlim og tók hann kverka­taki. Sá náði að teygja sig í flösku og barði Magnús í höfuðið. Í milli­tíðinni náðist að hringja á lögregluna sem birtist á mettíma og var Magnús hand­tekinn.

Hægt er að lesa alla fréttina á mannlif.is

Fyrirvari: Fréttin hefur verið uppfærð að beiðni þolenda Magnúsar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Innlent

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Fimm ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum og fjórir sektaðir fyrir umferðarlagabrot.

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki