Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Haraldur segir mikið ganga á í vinnunni hjá Twitter: „Það er búið að vera mjög op­in­bert drama“

Har­ald­ur Þor­leifs­son er 45 ára hönnuður og stofn­andi sta­f­ræna hönn­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ueno; hann var valinn Mann­eskja árs­ins að mati les­enda Smart­landsins.

Frægt er orðið þegar Haraldur seldi fyr­ir­tæki sitt til Twitter; greindi Haraldur þá frá því að hann myndi borga alla skatta á Íslandi; hann vill vera skatta­kóng­ur – en náði þó ekki fyrsta sæt­inu núna; varð núm­er tvö.

Allt árið 2022 hef­ur Haraldur stutt dyggilega við þá sem minna mega sín; vinnur hörðum höndum að því að rampa upp Ísland; bæta aðgengi fyr­ir fatlaða.

Haraldur er spurður hvernig hon­um finn­ist að vera valin Mann­eskja árs­ins:

„Mér líður mjög vel með það. Þetta er svo­lítið skrýtið. Ég er að venj­ast þessu. Það er búið að vera mjög mikið að ger­ast hjá mér. Í vinn­unni hef­ur verið alls kon­ar drama, en ég er að vinna hjá Twitter. Það er búið að vera mjög op­in­bert drama. Síðan höf­um við verið í alls kon­ar fram­kvæmd­um hérna heima, og svo höf­um við verið að opna kaffi­hús og verið í fram­kvæmd­um tengd­um því. Þetta er búið að vera viðburða­ríkt og gott ár,“ seg­ir Haraldur og á við kaffi­húsið Önnu Jónu, sem hann hyggst opna í ársbyrj­un 2023; heitir kaffi­húsið í höfuðið á móður hans, Önnu Jónu Jóns­dótt­ur, en hun lést í bíl­slysi árið 1988, en þá var Har­ald­ur einungis 11 ára gamall.

Hann er spurður um hápunkt árs­ins – hann segir það að spila á Iceland Airwaves hafa verið ógleymanlegt:

„Ég var bú­inn að hugsa um það mjög lengi. Það var mjög skrýtið því ég hef ekki spilað sjálf­ur á sviði í 20 ár. Það var al­veg frá­bært,“ seg­ir hann, en Haraldur sem­ur tónlist und­ir lista­manns­nafn­inu Önnu Jónu Son.

Har­ald­ar glímir við vöðvarýrn­un­ar­sjúk­dóm:

„Ég var greind­ur þegar ég var svo ung­ur. Ég var bara tveggja ára. Þannig að ég hef ein­hvern veg­inn aldrei verið meðvitaður um að ég væri ekki með sjúk­dóm. Það er kannski öðru­vísi áfall að fá aldrei áfallið. Það er aldrei rétti tím­inn til að fara í eitt­hvert sorg­ar­ferli. Oft hjá fólki sem lend­ir í slysi eða eitt­hvað þannig þá fer sorg­ar­ferli strax í gang. Þegar fólk fæðist með eitt­hvað svona eða er í þess­um aðstæðum frá byrj­un fer það aldrei í gegn­um sama ferlið,“ seg­ir Har­ald­ur og bætir við að hann sé í af­neit­un með sinn sjúk­dóm, en hann mælir ekki með því, en segir þó afneitunina hafa kallað fram góða hluti líka:

„Ég ætla nú ekki að fara að mæla með því að fara í af­neit­un. Það hef­ur gert ým­is­legt fyr­ir mig sem ég hefði ann­ars ekki gert ef ég væri að hugsa meira um sjúk­dóm­inn. Ég flutti til New York þegar ég var 26 ára. Hef ferðast um all­an heim­inn. Það fer rosa­lega lít­ill tími hjá mér í að hugsa um að ég sé með þenn­an sjúk­dóm,“ seg­ir Haraldur að endingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

„Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir er ekki síður menningarlegs eðlis“
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri