Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Berglind segir Auði til syndanna: „Þú getur rakið sorgarsögu þína þar til þú ert blá í framan“

Auður Jónsdóttir
Auður Jóns­dóttir Mynd: Kazuma Takigawa

Rithöfundurinn Berglind Ósk gefur ekkert eftir í ritdeilu sinni við rithöfundinn Auði Jóns­dóttur og segir hana samt kúltúr­barn með gífurleg forréttindi. Deilurnar hófust þegar Berglind skrifaði pistil þar sem hún gagnrýndi sterka stöðu barna þjóð­þekktra lista­manna innan listanna.

Auður brást við þeim pistli í gær með pistli sem hún birti á Facebook. Þar segist hún hafa fengið upp í kok á því að vera sífellt tengd við afa sinn, Halldór Laxness. Hún sagði að líf sitt hafi ekki verið dans á rósum þrátt fyrir að vera barnabarn Nóbel­skáldsins.

Í dag birtir Berglind svar við þeim pistli og þar gefur hún ekkert eftir. Hann má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Kæra Auður, svo við erum ekki að fara að skrifa bók saman eftir allt?

Þú getur rakið sorgar­sögu þína þar til þú ert blá í framan og þóst vita eitthvað um líf mitt. Þú ert samt kúltúr­barn. Það skiptir engu máli hvort ég sé edrú eða ekki, hvort ég sé með rekstur (ég vinn sem frílansari) eða sé einstæð móðir. Þú ert samt kúltúr­barn. Það skiptir ekki máli að þú og Kamilla séu einstæðar mæður. Þið eruð samt kúltúr­börn. Hver gaf þér annars leyfi til að deila þinni útgáfu af mínu lífi með tæplega 5000 fylgjendum á Facebook og er svo pikkað upp af fjöl­miðlum?

Það er þitt val að taka þessu svona persónu­lega, eins og ég hefði sagt að þú værir slæmur rithöfundur, ég hef aldrei sagt hvað mér finnst um það. Þú ert vinsæll metsölu­höfundur með hrúgu af verð­launum og viðurkenningum, af hverju stendurðu bara ekki með þér og ferð ekki í kerfi þegar bókmennta­blað sem þú ritstýrir er gagnrýnt.

Þú talar um ærumeiðingar, var það kafli í bókinni þinni um tjáningar­frelsi? Að þegar ungur rithöfundur sem er að fóta sig í bókmennta­heiminum gagnrýnir valdafólk, séu það ærumeiðingar? Nú skil ég betur af hverju rithöfundar þora ekki að gagnrýna neitt í okkar geira – út af viðbrögðum eins og þínum og hvernig þú notar „menningar­auðmagn” þitt til að kæfa gagnrýni.

Umræðan um kúltúr­börn er ekki persónuleg herferð gegn þér eða öðrum kúltúr­börnum sem hafið baköpp í meðfæddu menningar­auðmagni (btw, fólk eins og ég sem stend fyrir utan bókmennta­elítuna vissi ekki fyrr en nýlega hvað þetta háfleyga orð þýðir. Eitt dæmi um gjá sem kúlturbarn sér ekki. Fyrir ykkur sem skiljð þetta ekki, þá þýðir þetta það menningar­lega ríkidæmi og vald sem fólk hefur – og sem kúltúr­börn fæðast með og aðrir geta að einhverju leyti unnið sér inn – nú eða keypt sér, með því að komast að í menningunni og öðlast virðingu). Heimurinn vill ræða þetta, þótt þú virðist vera ófær um það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna