Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Skiptir máli hvaða menning fær að þrífast innan flokka“

Karen Kjartans­dóttir veltir fyrir sér hvort stjórn­málaflokkar séu trúar­hreyfingar

Karen Kjartansdóttir
Karen Kjart­ans­dóttir Var eitt sinn fram­kvæmda­stjóri Sam­fylk­ing­ar­innar. Mynd: Samfylkingin

Almanna­tengillinn Karen Kjartans­dóttir setti fram hugleiðingu á samfélags­miðlum um helgina þar sem hún veltir fyrir sér hvernig fólk tengir sig við stjórn­málaflokka. Að hennar mati líkist þessi tenging stundum fremur trúarlegri hollustu en málefnalegri afstöðu.

Í færslunni lýsir hún því sem hún kallar kúltúr í kringum stjórn­málaflokka, þar sem fólk klæðist sömu litum, telur sinn flokk sjálf­krafa þann besta og fléttar hann inn í eigin sjálfs­mynd. Hún spyr hvað liggi að baki slíkri hegðun.

Karen bendir jafnframt á að innan flestra flokka sé að finna gott fólk sem starfi af heilindum og hafi raun­verulegan áhuga á samfélags­málum. Hún undir­strikar þó að stjórn­málaflokkar séu ekki óumbreytanlegar einingar heldur endur­spegli þeir fólkið sem í þeim starfar, ákvarðanir þess og gildismat.

Réttlættu Þriðja ríkið

„Þess vegna skiptir máli hvaða menning fær að þrífast innan flokka. Ég hefði aldrei viljað tengjast stjórn­málaflokki sem hefði á sínum tíma haft leiðtoga sem afsökuðu apartheid í Suður-Afríku, réttlættu Þriðja ríkið eða hæddust að álíka hryllingi samtímans. Það er ekki bara pólitík, heldur spurning um siðferðileg mörk,“ skrifar Karen.

Að mati hennar getur það haft áhrif þegar stjórn­málaflokkar verða hluti af sjálfs­mynd einstaklinga. Þá færist fókusinn frá málefnalegri umræðu yfir í hóptengsl, sem geti gert fólki erfiðara fyrir að standa með eigin sannfæringu utan hópsins.

Að lokum segist hún sjálf hafa kosið að styðja fremur einstaklinga sem nýti stjórn­málaflokka sem farveg fyrir hugsjónir sínar, fremur en að styðja flokkana sem slíka. Hún hvetur aðra til að íhuga slíka nálgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto