Dómsmálaráðuneytið auglýsti nýverið eftir umsækjendum um embætti lögreglustjóra í Vestmannaeyjum.

Fimm sóttu um starfið, sem Grímur Hergeirsson hefur gegnt síðan 2020.
Dómsmálaráðherra skipar lögreglustjóra til 5 ára í senn og er miðað við að skipað verði í embættið frá og með 1. apríl.
Umsækjendur um starfið eru þessir:
Arndís Bára Ingimarsdóttir aðstoðarsaksóknari
Arnfríður Gígja Arngrímsdóttir aðstoðarsaksóknari
Karl Gauti Hjaltason lögmaður
Kristmundur Stefán Einarsson aðstoðarsaksóknari
Sigurður Hólmar Kristjánsson aðstoðarsaksóknari.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir