Valur Gunnarsson
„Getur ekkert gert nema reynt að hefna sín á óbreyttum borgurum.“
Valur Gunnarsson
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Síamstvíburinn Abby Hansel gengin í hjónaband: „Hvernig gætir þú valið á milli þessara tveggja?“

Hin lukkulegu brúðhjón og systirin.
Hin lukku­legu brúð­hjón og systirin.

Síam­st­ví­bur­inn Abby Hensel er búin að gifta sig.

Samkvæmt hjú­skap­ar­gögnum gift­ist hjúkr­un­ar­fræð­ing­ur­inn og fyrr­ver­andi her­maður í banda­ríska hernum, Josh Bowling hinni 34 ára gömlu Abby Hensel árið 2021. Opin­ber­unin var fyrst gerð af Today, sem fékk hjú­skap­ar­gögn raun­veru­leika­stjörn­unnar í hend­urnar.

Til við­bótar við stað­fest­ingu hjóna­bands­skrár­innar upp­færði sam­eig­in­legur Facebook-aðgangur Abby og Brittany nýlega prófíl­mynd sína en á nýju mynd­inni má sjá mynd af síam­st­ví­burunum í brúð­ar­kjól, standa á móti eig­in­manni Abby. Á mynd­inni sést Bowling aftan frá klæddur gráum jakka­fötum og heldur í hönd­ina á Abby.

Syst­urnar urðu fyrst frægar þegar þær komu fram árið 1996 í Oprah Winfrey Show þar sem þær fræddu heim­inn um líf sitt sem síam­st­ví­burar.  Abby og Brittany deila öllum líf­færum sem og blóð­rásinni. Á meðan Abby er með stjórn á hægri hand­legg og fót­legg, er systir hennar með stjórn­ina vinstra megin.

Í kjöl­far við­tals­ins við Winfrey árið 1996, skjal­festu tví­burarnir líf sitt í raun­veru­leika­seríu sinni, Abby & Brittany, sem stóð yfir í eitt tíma­bil árið 2012. Síðan þá hafa syst­urnar lifað rólegu lífi í Minnesota eftir að þeir útskrif­uð­ust báðir frá Bethel háskól­anum. Starfa þær nú sem grunn­skóla­kenn­arar.

Þegar tví­burarnir fædd­ust fengu for­eldrar þeirra, Patty og Mike Hensel, mögu­leika á að láta þá gang­ast undir aðskiln­að­ar­að­gerð, sem þau ákváðu á end­anum að væri of áhættu­söm. Þau sögðu að læknar hefðu tjáð þeim að lík­urnar á að bæði Abby og Brittany myndu lifa aðgerð­ina af, væru mjög litlar.

„Hvernig gætir þú valið á milli þess­ara tveggja?“ spurði Mike í við­tali við Time magazine árið 2001.

Um mögu­leik­ann á því að dætur hans myndu gift­ast ein­hvern tíma sagði hann í sama við­tali að hann sæi enga ástæðu fyrir því að þær gætu ekki notið hjóna­bands eins og allir aðrir.

„Þetta eru mynd­ar­legar stúlkur. Þær eru fyndnar. Þær hafa allt fyrir sér, nema þær eru saman,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Guðmundur Ingi Kristinsson sagði heildareignir tryggingafélaganna hafa numið 360 milljörðum króna í febrúar og kallaði eftir uppgjöri bótasjóða.
Pólitík

Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Innlent

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Innlent

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Menning

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Menning

Martröð í Mið­húsa­skógi

Menning

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027