Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Peningar

Eitt bifhjól skráð á gjald­þrota félag en skipta­stjóri fann það aldrei

Ung ofurölvi stúlka hvarf í nótt eins og jörðin hefði gleypt hana – Gunnar skelkaður í Vesturbænum

Gunnar Hrafn Jónsson
Gunnar Hrafn Jónsson

Gunnar Hrafn Jónsson, fjölmiðla­maður og fyrr­verandi þingmaður Pírata, segist á Facebook hafa orðið fyrir óhugnanlegri lífs­reynslu í nótt. Hann var í Vestur­bænum í heimsókn hjá félaga þegar ung stúlka, viti sínu fjær, varð á vegi hans. Hann og vinur hans reyndu að aðstoða hana en meðan Gunnar var að ræða við lögregluna í síma hvarf stúlkan. Gunnar segist hafa verulegar áhyggjur af henni nú.

„Óhugnanleg upplifun í kvöld. Heimsótti vin í vestur­bænum og vorum að reykja sígarettur fyrir utan þegar ofurölvuð ung stúlka mætir á svæðið og getur ekki gert grein fyrir sér nema að takmörkuðu leyti. Hún þáði vatn og áfengi en var mjög ringluð svo við ákváðum að vera áfram úti til að sjá til þess að hún kæmist heim til sín, sem hún sagði að væri rétt hjá,“ segir Gunnar Hrafn.

„Svo missir hún ítrekað meðvitund, og ég tek púlsinn á henni sem er veikur. Við náum að vekja hana og gefa henni vatn en hún var alveg stjörf og gat ekkert sagt um hvar hún ætti heima nema að það væri í næsta nágrenni.“

Menn ákváðu þá að reyna að koma stúlkunni heim til sín. „Tveir vinir mínir styðja hana á lappir og hjálpa henni að leita að húsinu sínu, sem virtist takast, en hún fann engla lykla og féll síðan fram fyrir sig á grófa möl beint í andlitið. Ég tók aftur púls og hann var orðinn veikari, svo ég hringdi strax í 112. Þeir sendu lögreglu­menn og sjúkra­liða en á meðan ég var að lýsa aðstæðum hafði stúlkan með einhverjum hætti komist yfir í næsta garð,“ segir Gunnar Hrafn.

Hann sá hana ekki aftur. „Ég reyndi að tala við lögguna og elta hana á sama tíma en skemmst er frá því að segja að ég missti af henni í einhverjum garði, kallaði nafn hennar endalaust (sem byrjar á K, ef einhver kannast við) en það var eins og jörðin hefði gleypt hana. Ég vona svo innilega að hún liggi ekki í einhverjum garði núna heldur hafi fengið hjálp, lögreglan lofaði að leita að henni í hverfinu,“ segir Gunnar Hrafn.

Hann bætir svo við að samstarfs­maður hans af Alþingi hafi orðið vitni að þessu öllu. „Fyrir einskæra tilviljun var fyrr­verandi kollegi minn af Alþingi vitni að hluta af þessari atburðarás en hann nafn­greinir sig bara ef hann vill. Hann má eiga það að hann sá þrjá fullorðna karlmenn berandi unga stúlku yfir götuna og vildi vita hvað var í gangi. Við þurfum öll að vera meðvituð um hættuna sem fólk, sérstak­lega stúlkur, standa frammi fyrir í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Parið var í hávaðarifildi að sögn lögreglu
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Innlent

Hugur Lands­bjargar­félaga er hjá þeim sem syrgja skip­verjana þrjá

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfu konunnar um tvær milljónir króna í miskabætur þótt ökumaðurinn hefði sýnt af sér gáleysi.

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Sölvi sló lögreglu­mann og lét þar ekki staðar numið

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný