Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Erna Kristín missti allt í eldsvoða: „Maður er ennþá í panik“

Erna Kristín Brynjarsdóttir
Erna Kristín Brynjars­dóttir

„Ég svaf varla í nótt; ég var alltaf að vakna. Maður er svolítið tauga­veiklaður eftir þetta þannig að maður er svolítið svona þótt við séum núna í annarri íbúð. Maður er alltaf að vakna og getur ekki sofnað og hugsar um þetta. Maður er ennþá að melta þetta; að þetta hafi gerst fyrir okkur. En sem betur fer var enginn inni í íbúðinni,“ segir Erna Kristín Brynjars­dóttir en í fyrradag kviknaði í leiguíbúð sem hún og fjöl­skylda hennar bjuggu í í þriggja hæða fjölbýlis­húsi í Reykja­nesbæ. Íbúðin er stór­skemmd sem og allt sem í henni var en engar skemmdir urðu á öðrum íbúðum í húsinu. Erna Kristín, eigin­maður hennar, Benedikt Hjalti Sveinsson, og tvö börn þeirra bjuggu í íbúðinni.

Það var hræði­legt að sjá þetta og vita að íbúðin væri skemmd sem og allar þessar eigur okkar sem voru þar inni.

Erna Kristín fór að venju með börn þeirra tvö, tveggja og þriggja ára, í leik­skólann þennan morgun. Hún er heima­vinnandi en Benedikt Hjalti vinnur hjá Endur­vinnslunni. Þegar hún kom til baka sá hún lögreglu­bíla og slökkviliðs­bíla fyrir utan húsið auk annarra íbúa og lagði reyk út um svefn­herbergis­glugga hennar. „Það var hræðilegt að sjá þetta og vita að íbúðin væri skemmd sem og allar þessar eigur okkar sem voru þar inni. Þetta var áfall. Ég var mestmegnis grenjandi af því að ég vissi ekkert hvað ég átti að gera. Ég var í þvílíku áfalli.“

Talið er að eldurinn hafi kviknað út frá hellu­borði. „Annað barnið mitt hefur örugglega rekið sig í takka á elda­vélinni; þeir snerust eitthvað. Það var kveikt á elda­vélinni.

Innbúið var tryggt og má geta þess að engar myndir eða mynda­albúm eyðilögð­ust í brun­anum.

Ég er eiginlega ennþá í sjokki yfir þessu. Þetta var ekki falleg sjón að sjá og það er mjög leiðinlegt að maður sé búinn að missa allar eigur sínar. Það er ekki gott að vera í þessari stöðu og það er gott að fá hjálp frá ættingjum og öllu þessu fólki út um allt sem er að styðja okkur,“ segir Erna Kristín. Þess má geta að ókunnugur maður bauð þeim íbúð sína til afnota þar sem hann er í fríi og eru þau þakklát fyrir það boð en þau fengu hins vegar inni hjá móður hennar. Fjöl­skyldan mun svo síðar flytja inn í aðra leiguíbúð í sama fjölbýlis­húsi.

Innbúið var tryggt og má geta þess að engar myndir eða mynda­albúm eyði­lögðust í brunanum. Erna Kristín talar sérstak­lega um leikföng barnanna sem eyði­lögðust í eldinum sem og nýtt sjónvarp og nýtt hjónarúm.

Reykskynjarar

Erna Kristín er frá Akranesi en Benedikt Hjalti ólst upp í Keflavík. Hún segir að þau séu búin að vera saman í þrjú ár.

„Maður er að reyna að vera sterkur og reyna að gera sitt besta og standa saman, fjöl­skyldan, og vera til staðar fyrir hvort annað. Þetta er eins og rússíbani í heilanum; maður er ennþá í panik.“

Við munum fá barna­læs­ingar á allt sem hægt er að fá barna­læs­ingar á.

Erna Kristín segist hafa lært af þessari reyslu. „Við ætlum að taka þetta alveg með trompi. Miðað við að vera búin að lenda í þessu þá ætlum við að taka allt í gegn frá a til ö þegar þar að kemur upp á að fara yfir hættur innanhúss og við munum fá barna­læsingar á allt sem hægt er að fá barna­læsingar á.“ Hún bætir við að fólk eigi að huga að því að reyk­skynjarar séu í húsum og eldvarnir séu almennt í lagi.

Hverjr eru draumarnir?

„Að lifa frábæru lífi miðað við þetta, reyna að vera sterk, gera gott úr þessu og gera betra.“

Stofnaður hefur verið söfnunar­reikningur fyrir fjöl­skylduna. 542-26-2979. Kt.: 210596-3059.

Hér fyrir neðan má sjá myndband sem tekið var í íbúðinni eftir brunann:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum