Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Að deyja með reisn – Um dánaraðstoð á Íslandi

Dánar­aðstoð hefur verið leyfð í sífellt fleiri löndum heimsins síðustu ár og fjölgar enn. Fyrstir til að stíga skrefið voru Hollendingar en það var árið 2002. Sama ár bættust Belgar í hópinn en í dag eru um tíu þjóðir sem leyfa slíka aðstoð en Tazmanía í Ástralíu leyfði þetta fyrir fáeinum dögum er þetta er ritað. Á Íslandi er þetta bannað, þrátt fyrir gríðar­legan stuðning þjóðarinnar við slíka aðstoð, þvert á alla flokka. Þá eru heilbrigðis­starfsmenn einnig hlynntir dánar­aðstoð.  

Íslendingar virðast mjög hlynntir dánar­aðstoð ef marka má nýlega könnun sem Lífs­virðing, félag um dánar­aðstoð gerði. Í könnuninni var fólk spurt tveggja spurninga, hvort það væri hlynnt dánar­aðstoð og svo hvort það væri til í að hafa aðgang að slíkri aðstoð sjálft. Rúmlega 76% lands­manna sagðist hlynntur dánar­aðstoð og um 6% var á móti. Tölurnar breytast töluvert þegar svörin við seinni spurningunni eru skoðuð en 82% segjst hlynntir því að hafa aðgang að dánar­aðstoð, þurfi þeir þess.

Orðið dán­ar­að­stoð er „þýð­ing á gríska orð­inu eut­hanasia (góður dauð­i/að deyja með reisn) sem merkir að binda enda á líf af ásetn­ingi til þess að leysa við­kom­andi undan óbæri­legum sárs­auka eða þján­ing­um. Oft á tíðum hefur verið not­ast við orðið líkn­ar­dráp eða sjálfs­víg með aðstoð,“ líkt og Bryndís Haralds­dóttir þingmaður Sjálfstæðis­flokksins orðar það á heimasíðu flokksins en hún hefur lagt fram þings­ályktunar­tillögu fyrir nokkrum árum ásamt fleirum þing­mönnum úr öðrum flokk en var henni ætlað að kalla fram upp­lýs­ingar um stöðu mála og þróun lag­ara­mma um þetta mál, í þeim löndum sem dán­ar­að­stoð er lög­leg. Þá var í tilllögunni beðið um upp­lýs­ingar um hvernig umræðan hefur þró­ast í nágranna­löndum okkar þar sem dán­ar­að­stoð er ekki leyfð. Að lokum faldi þings­á­lykt­unin það í sér að kannaður yrði hugur heil­brigð­is­starfs­manna til dán­ar­að­stoð­ar.

Með og á móti dánaraðstoð

Á heimasíðu Lífs­virðingar má sjá lista yfir rökum, með og á móti dánar­aðstoð en hér má sjá þau rök.

Með dánar­aðstoð:

  • Virðing fyrir sjálfræði: Sjálfráða einstaklingur á að hafa yfirráð yfir líkama sínum, lífi og dauða. Það telst til mann­réttinda að hafa eitthvað að segja um eigin dauðdaga. Við þurfum að virða sjálfs­ákvörðunar­rétt einstaklings.
  • Mannúð: Líf manna er hægt lengja með aðstoð lyfja og tækja, þó það geti leitt til þess að auka þjáningar. Ekki er hægt að útrýma öllum verkjum og það hverfur ekki öll þjáning þótt hægt sé að stilla líkamlega verki. Dánar­aðstoð er mannúð­legur valkostur fyrir þá sem kjósa að deyja með reisn.
  • Dánar­aðstoð veitt nú þegar: Dánar­aðstoð er veitt nú þegar á Íslandi þó það sé sjaldan viðurkennt. Erlendar rann­sóknir sem gerðar hafa verið í löndum þar sem dánar­aðstoð er bönnuð eins og hér á landi sýna að fjölmargir læknar deyða sjúklinga með of stórum lyfja­skömmtum í því skyni að lina þjáningar þeirra þó þeir viti fullvel að lyfið muni draga viðkomandi sjúkling til dauða. Um leið er annarri meðferð sem miðar að því að lengja líf sjúklings oft hætt. Fátt bendir til þess að ástandið hér heima sé öðruvísi.
  • Draga úr líkum á misnotkun: Í dag er dánar­aðstoð framkvæmd, að einhverju óljósu leyti, án lagalegrar heimildar og án skýrra marka. Því er mikilvægt að smíða lagaramma og starfs­umgjörð um dánar­aðstoðina og þróa skýra verkferla sem draga úr líkum á misnotkun og að farið sé á einhvern hátt gegn vilja sjúklings.
  • Valkostur: Lögleiðing dánar­aðstoðar ætti ekki að vera íþyngjandi fyrir neinn. Slík lög myndu ekki hafa nein bein áhrif á þá sem eru, af trúar­legum eða siðferði­legum forsendum, á móti dánar­aðstoð. Þetta er aðeins valkostur fyrir þá sem kjósa að fara þessa leið. Mikilvægt er að fjölga valkostum við lok lífs.Gegn dánar­aðstoð:
  • Gegn grundvallar­starfs­reglum lækna: Dánar­aðstoð er andstæð siðferðis- og faglegum skyldum lækna. Það er hlutverk lækna að lækna fólk en ekki deyða það, jafnvel þótt það óski þess eins að fá að deyja.
  • Óréttmæt krafa: Enginn getur átt tilkall til þess að annar deyði sig. Sjúklingur getur ekki farið fram á það við lækni að hann aðstoði sig við að binda endi á líf sitt. Slíkan verknað er ekki hægt að leggja á nokkurn mann.
  • Heilag­leiki lífs: Það er rangt að taka líf í hvaða skilningi sem er. Lífið er heilagt, alltaf, og undir öllum kringum­stæðum.
  • Þrýstingur ættingja: Hætt er við því að alvarlega veikt fólk upplifi sig sem byrði á sínum nánustu. Ef meðferð er t.d. mjög kostnaðarsöm getur það kallað fram vilja til að deyja. Valkosturinn um dánar­aðstoð gæti því falið í sér skilaboð og þrýsting um að nýta sér mögu­leikann.
  • Þrýstingur á sjúkling: Lögleiðing dánar­aðstoðar getur haft í för með sér þá kröfu á sjúklinginn að hann þurfi að gera það upp við sig hvort hann vilji lifa, hann þurfi með öðrum orðum að réttlæta tilvist sína.
  • Framfarir í verkja­meðferð: Stór­stígar framfarir í verkja­meðferð á síðustu árum hafa gert fagfólki kleift að stilla kvalir sjúklinga á mun áhrifa­ríkari hátt en áður. Þetta hefur fækkað þeim tilvikum þar sem dánar­aðstoð væri álitinn kostur.
  • Hætta á misnotkun: Ef eftir­litið er ekki nógu gott er hætta á að úrræðið verði misnotað.
  • Smæðin: Smæðin á Íslandi hamlar opinskáum umræðum um dánar­aðstoð. Í litlu landi yrði erfitt að vera þekktur sem læknirinn sem deyðir sjúklinga.Reynslu­sögurBjarni Jónsson gjaldkeri Lífs­virðingar sagði í viðtali við Vísi nýverið, að einstaklingar leyti reglulega til félagsins til að fá upplýsingar um það hvar hægt sé að fá dánar­aðstoð. „Hins vegar höfum við heyrt af því að fólk hafi verið að svelta sig til dauða. Því miður er líka hluti af fólki sem hreinlega ákveður að svipta sig lífi með alls konar aðferðum þótt það komi ekki fram í tölfræðinni,“ sagði Bjarni í samtali við Vísi.Háöldruð amma einstaklins sem Mannlíf heyrði í, bað barnabarn sitt ítrekað um að hjálpa sér að deyja en hún var þá komin á tíræðis­aldurinn og mjög heilsutæp. Barna­barnið neitað ömmu sinni, skiljanlega en þá tók hún upp á því að hætta að borða. Sagði einstaklingurinn að í stað þess að fá að deyja með reisn, svelti amma hennar sig í hel. „Þetta var bara ógeðslegt,“ bætti einstaklingurinn við í samtali við Mannlíf.Þá er þekkt annað dæmi þar sem hin breska Jean Davies ákvað að taka málin í eigin hendur eftir að ríkis­stjórn Bretland náði ekki að setja lög um dánar­aðstoð. Davies svelti sig í hel. „Þetta er helvíti. Ég get ekki sagt þér hversu erfitt þetta er. Þú myndir ekki taka þessa ákvörðun nema þú sért algjör­lega viss um að lífið yrði annars slæmt. Þetta er óbærilegt,“ sagði Davies í samtali við Sunday Times þegar hún hafði verið búin að vera án matar og drykkjar í fjórar vikur. Hún lést viku síðar.Afstaða Alþingis­mannaMannlíf sendi eftir­farandi spurningar á alla þingmenn Alþingis, á dögunum: Hver er afstaða þín til dánar­aðstoðar? Með dánar­aðstoð eða á móti?Alls svöruðu 10 af 63 þing­mönnum, sem verður að teljast lélegt enda svöruðu aðeins 15,8% þingmanna.Helga Vala Helga­dóttir, Samfylkingunni segist hlynnt dánar­orsök, bæði almennt og að nýta það sjálf ef þess þyrfti. Björn Leví Gunnarsson Pírati er einnig með dánar­aðstoð og það sama má segja um Guðmund Inga Kristinsson hjá Flokki Fólksins og Bryndísi Haralds­dóttur, þingkonu Sjálfstæðis­flokksins. Þing­flokkur Viðreisnar, sem telur fimm manns, sendi svar sem heild en þar stóð að flokkurinn væri hlynntur dánar­aðstoð og vitnuðu í stefnu flokksins: „Innleiða þarf valfrelsi varðandi lífslok þannig við vissar vel skilgreindar aðstæður, að uppfylltum ströngum skilyrðum, verði dánar­aðstoð mannúð­legur valkostur fyrir þá einstaklinga sem kjósa að mæta örlögum sínum með reisn. Sá valkostur byggir á virðingu fyrir rétti sjúklingsins á eigin lífi og líkama, dregur úr líkum á misnotkun og dregur skýran lagalegan ramma um viðbrögð, óski sjúklingur eftir dánar­aðstoð þegar engin önnur úrræði eru í boði. Tryggja þarf að sjúklingum, og eftir atvikum aðstand­endum þeirra, sé tafar­laust tilkynnt ef grunur er um að mistök hafi verið gerð og hvaða úrræði kunni að standa þeim til boða. Sett verði á eftirlits­nefnd sem starfar þvert á allar heilbrigðis­stofnanir og fylgir eftir tilkynningum um möguleg mistök heilbrigðis­starfsmanna í heilbrigðis­þjónustu.“Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðis­flokksins var eini þing­maðurinn sem svaraði ekki játandi. Hann svaraði reyndar ekki neitandi heldur. „Ekki hægt að svara já eða nei,“ skrifaði Ásmundur í svari til Mannlífs. Blaða­maður miðilsins bauð Ásmundi að svara ítarlegra um málið en hann hefur ekki enn svarað því.Árið 2019 sendi Lífs­virðing spurningar á alla flokka sem buðu sig þá fram til Alþingis, þar sem meðal annars var spurt hvort flokkarnir myndu styðja laga­frumvarp á Alþingi sem myndi leyfa dánar­aðstoð. Við­reisn og Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn svöruðu því játandi, Framsóknar­flokkurinn svaraði því neitandi, Samfylkingin, Píratar og Sósíalista­flokkurinn svöruðu: „óákveðið/jákvætt“ en Sjálfstæðis­flokkurinn og Vinstri grænir sögðust hlut­lausir. Það þýddi að 19 voru fylgjandi dánar­aðstoð, átta á móti og 25 óákveðnir.

    Í viðtali við Rúv sagði Bjarni Jónsson, frá Lífs­virðingu algjöra umpólun hafi orðið á afstöðu heilbrigðis­starfsfólks gagnvart dánar­aðstoð, á síðustu árum. Árið 2010 hafi 18% lækna verið fylgjandi aðstoðinni og um 20% hjúkrunar­fræðinga.

    „54 prósent lækna og 72 prósent hjúkrunar­fræðinga styðja dánar­aðstoð. Alger umpólun. Þá má aðeins velta fyrir sér spurningunni hvað eru alþingis­menn að gera, þegar bæði kjósendur þeirra og þessi hópur sem hefur verið horft mikið til, heilbrigðis­starfsmenn eru komnir inn á þessa línu,“ sagði Bjarni við Rúv.

    Þannig að mikill meirihluti lands­manna og hjúkrunar­fræðinga er hlynntur dánar­aðstoð, og rúmur meirihluti lækna er hlynntur því einnig en afstaða þingmanna er svolítið á huldu, of fáir taka afstöðu. Er því ljóst að hjá Alþingi liggi hnífurinn í kúnni og ekkert muni skýrast í mála­flokknum nema þingmenn verði neyddir til að taka afstöðu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fáir Íslendingar vilja selja Lands­bankann

Skiptar skoðanir meðal Sjálfstæðismanna um sölu á Landsbankanum

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Stella segir kven­fyrirlitningu þrífast á netinu í skjóli tjáningar­frelsis

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis