Sænskur tónlistarmaður með milljónir spilana á Spotify hefur verið dæmdur fyrir minniháttar fíkniefnasmygl eftir að tollverðir fundu fíkniefni falin undir pung hans á Arlanda-flugvelli í Stokkhólmi.
Maðurinn hafði nýverið komið heim frá Spáni þegar hann var stöðvaður í tollgæslu á flugvellinum í sumar. Hann hafði farið í gegnum bláa hliðið, sem er ætlað farþegum sem hafa ekkert að gefa upp við tollayfirvöld.
Við leit fundu tollverðir 30 töflur af lyfinu Pregabalin í farangri hans, en hann gat ekki framvísað lyfseðli fyrir þeim. Við yfirborðsleit á líkama hans fannst einnig plastpoki með 1,5 grömmum af kannabis falinn undir pungnum.
Við yfirheyrslu viðurkenndi listamaðurinn síðar að fíkniefnin væru hans og að hann hefði útvegað sér þau á Spáni.
Hann sagði töflurnar hafa verið keyptar í apóteki og notaðar vegna „langvinnra bakverkja“. Kannabisið hefði hann fengið frá vini sínum og notað á kvöldin.
Í yfirheyrslunni spurði rannsakandi hann:
„Gerir þú þér grein fyrir því að það er ólöglegt að flytja kannabis til Svíþjóðar?“
Listamaðurinn svaraði:
„Já, ég fann það í vasanum mínum og panikkaði, svo ég setti það undir punginn.“
Hann hefur nú verið dæmdur fyrir minniháttar fíkniefnasmygl og gert að greiða 30 dagsektir upp á 250 sænskar krónur hver, eða samtals 7.500 sænskar krónur en það gerir rétt rúmlega 98 þúsund íslenskar krónur.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir