Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Robert Plant fékk brauð með kæfu eftir tónleika Zeppelin í Höllinni:„Tveir æðisgengnir klukkutímar“

Mikið var rætt um komu bresku rokk­sveitarinnar Led Zeppelin í Laugar­dalshöllina mánudags­kvöldið 22. Júní 1970, fyrir rúmlega 50 árum síðan. Á þessum tíma hafði hljóm­sveitin aðeins starfað í tvö ár, en henni var boðið til landsins á vegum Lista­hátíðar Reykja­víkur.

„Þetta voru stærstu og merki­leg­ustu tón­leikar, sem haldnir höfðu verið hér á landi,

frá því að bítla­hljómleika­sögur hófust,“ sagði blaða­maðurinn Stefán Halldórsson í gagnrýni sinni.

Tæplega fimm þúsund manns mættu á tónleikana og var höllin þétt­skipuð tónleika­gestum. Fyrsti tónninn sveif út til tónleikargesta klukkan hálfellefu um kvöldið, sem þótti frekar seint á þessum tíma og stóðu í tvær klukkustundur. Stefán lýsti upplifun sinni þannig að þarna hefðu farið fram; „tveir æðis­gengnir klukku­tímar,“

Skömmu eftir komu hljóm­sveitar­meðlimir til landsins héldu Zeppelinmenn í Laugar­dalshöllina til að stilla upp tækjum sínum og tólum fyrir stóra kvöldið daginn eftir.

Á meðan að verið var að setja upp græjurnar fylltist höllin af áhorf­endum og þótti hljóm­sveitinni nóg um og lét að lokum varpa öllum á dyr. Eftir stóð Eyjólfur Jónsson, sundkappi og lögreglu­þjónn, vörð um dyrnar svo engum varð inngöngu auðið.

Kvöldið fyrir tónleika Led Zeppelin
Þegar leið á kvöldið bar að höllinni Erlingur Björnsson, umboðs­maður hljóm­sveitarinnar

Stefán Hall­dórs­son blaða­maður skrif­aði við þessa mynd að ógæfa hefði verið að Led Zeppelin og aðstoð­ar­menn sveit­ar­innar kynnu ekki íslensku. Þeir hefðu þá áttað sig á rak­ara­stof­unni í bak­sýn og getað farið í klipp­ingu. En það tíðk­að­ist ekki á þessu tíma að karl­menn væru með sítt hár. Morg­un­blaðið/Ómerkt

Trúbots. Trúbot var með kveðju­tónleika í Glaumbæ þá um kvöldið, en Shady Owens og Karl Sighvatsson voru að hætta í sveitinni. Erlingur fékk þá hugmynd að bjóða Zeppelin mönnum í gleðskapinn á Glaumbæ sem þeir þáðu án umhugsunar.

Mikil spenna og gleði braust fram hjá gestum Glaum­bæjar þegar þeir sáu að stjórstjörnurnar höfðu mætt á tónleika Trúbots á einum vinsælasta skemmtistað Reykja­víkur á þeim tíma. Rokkstjörnunum var boðið upp á drykki og báðu um bjór.

„Því miður, ekki til,“ var svarið enda átti bjór­bann eftir að ríkja á Íslandi næstu 19 ár.

Næst á óska­listanum var kampavín, en af því var til nóg og voru flöskur bornar á borð

Led Zeppelin, (vinstri – hægri): John Paul Jones, John Bonham (1948 – 1980), Jimmy Page og Robert Plant, stilla sér upp fyrir framan flug­vél árið 1970. (Ljós­mynd­ari:Hulton Archives)

sveitarinnar og skrifaði Stefán Halldórsson blaða­maður að John Bonham trommu­leikari hafi þá sýnt mikið listfengi við opnun flasknanna og gætt þar að öllum kúnstarinnar reglum. Er leið á drykkjuna sótti svo hungur að söngvaranum sem endaði með því að starfs­fólk eldhússins gaf Robert Plant brauð­sneið með kæfu til að seðja sárasta hungrið.

Zeppelinliðar klöppuðu Trúbroti óspart lof í lófa á kveðju­tónleikunum og var gleðskapurinn fram eftir nótt.

Vandræða­legur með blóm­vöndinn
Við komu hljóm­sveitarinnar fyrr um daginn beið hópur aðdáenda á flug­vellinum og síst minni hópur blaða­manna. „Stóra stundin var runnin upp og gekk fyrstur út Robert Plant, söngvarinn, en síðan komu þeir einn af öðrum, John Bonham, Jimmy Page og John Paul Jones, sem eltir voru af umboðs­mönnum og burðar­körlum.

Eins manns móttöku­nefnd Lista­hátíðar Reykja­víkur, Signý Sen, gekk fram og afhenti  gítar­leikaranum Jimmy Page risa­stóran blómvönd, ljós­myndarar smelltu af og síðan hélt hersingin inn í flugstöðvar­bygginguna. Þegar inn var komið gafst blaða­mönnum tækifæri á að ræða við stjörnurnar. Blaða­maður útskýrir að hann hafi farið að Jimmy Page, sem stóð þarna vandræða­legur með blóm­vöndinn í annarri hendi, en gítar í hinni.

Page svaraði þarna fáeinum spurningum, sagði ferða­lagið hafa gengið prýðilega og sveitina hafa komið víða við. Tónleika­ferðirnar væru að verða nokkuð þreytandi sagði hann, „sérstak­lega í Banda­ríkjunum“.

21. júní 1970, hljóm­sveitin Led Zeppelin kemur til lands­ins. Signý Sen tekur á móti þeim. Robert Plant og Jimmy Page fremstir á mynd­inni. John Paui Jones bassa­leik­ari á milli þierra. Richard Cole fram­kvæmd­ar­stjóri hóps­ins fyrir miðju í ljósum bol. *** Local Caption *** Lista­há­tíð 1970

Höfðu ekki erindi sem erfiði
Eftir blaðamanna­fundinn var tónlistar­mönnunum ekið í tveimur svörtum og gljá­fægðum Mercedes Benzbifreiðum í lögreglu­fylgd á dvalar­stað sinn, Hótel Sögu, en Led Zeppelin dvöldu einungis 42 klukku­stundir á Íslandi.

Blaðamenn sóttu stíft að þeim á Hótel Sögu, en höfðu ekki erindi sem erfiði. Sjónvarps­menn fengu þó að lokum að bera nokkrar spurningar undir Robert Plant sem sat í hæginda­stól með koníaks­flösku hjá sér. Ekki hafi hann þó drukkið úr flöskunni og segir að Plant hafi útskýrt þurrð sína. Á þessum tíma átti söngvarinn tæplega tvo mánuði í 22 ára afmælis­daginn sinn svo hann hefur haft strangan heimilis­lækni.

Síðasta tækifærið til að gera einhver læti

Mikill troðningur var á tónleikunum og klemmdust einhverjir á milli sviðsins og hópsins fyrir aftan. Lögregla hafi reynt eftir megni að róa mann­skapinn sem ekki hafi auðnast fyrr en sveitin stöðvaði spila­mennskuna og hvarf af sviði. Tókst þá Sveini R. Hauks­syni, miðasölu­stjóra Lista­hátíðar, að róa tónleika­gesti, eftir því sem Stefán greinir frá.

Eftir rúmlega klukku­stundar leik hafi myndast hálfgert uppþot í salnum, þegar söngvarinn, Robert Plant, sagði:

„þetta er síðasta lagið okkar, How Many More Times.“

Sennilega ætlaði hljóm­sveitin bara að taka sér hlé á eftir þessu lagi, en halda síðan hljóm­leikunum áfram. Hins vegar skildu unglingarnir þessa setningu sem svo, að hljóm­leikunum væri að ljúka, og því ruku allir upp til handa og fóta: Nú var síðasta tækifærið til að gera einhver læti, til að æsa sig svolítið. Minna mátti nú ekki vera en að menn æstu sig svolítið á hljóm­leikum einnar frægustu hljóm­sveitar í heimi, ekki síst þar sem aðgöngu­miðinn kostaði 450 krón­ur,“ sagði Stefán blaða­maður

„Hljóm­sveitin kom þá aftur fram á sviðið og flutti þrjú lög til viðbótar á einni syrpu, „Whole Lotta Love“, „Comm­unicati­on Break­down“ og eitt nýtt lag. Voru unglingarnir hinir rólegustu á meðan.

Að hljóm­leikunum loknum og hvíldu stjörnurnar sig um stund í búnings­herberginu, en héldu síðan út á Hótel Sögu í lögreglu­bifreið.

Höfðu þeir Zeppelinmenn hið mesta gaman af þessu öllu saman,“

skrifaði blaða­maðurinn.

Heimildir:

Stefán Hall­dórs­son.1970. Morg­un­blaðið- gagn­rýni blaða­manns. Miðviku­dag­inn 24. júní, Reykjavík.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim