Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sólveig Anna krefst leiguþaks og refsinga við launaþjófnaði

„Er ekki frábær hugmynd að stoppa þá siðblindu hegðun sem viðgengst á leigu­markaði og stoppa þann viðvarandi og viðbjóðs­lega vanda sem launa­þjófnaður er í lífi verka­fólks höfuð­borgar­svæðisins?“

Sólveig Anna Jóns­dóttir, formaður Eflingar, kallar eftir tafar­lausum aðgerðum stjórn­valda til að bæta stöðu verka­fólks og láglaunahópa. Í Facebook-færslu segir hún að tvö skref séu sérstak­lega brýn: að setja leiguþak og herða lög gegn launa­þjófnaði.

Hún bendir á dæmi um leigjanda sem stendur frammi fyrir verulegri hækkun húsaleigu. „Mánaðar­leiga mun því fara úr 324.00 krónum í 373.000 krónur,“ skrifar hún og segir slíkar hækkanir gera fólki nær ómögulegt að leggja fyrir eða stefna að eigin húsnæði.

Sólveig Anna segir stöðuna á leigu­markaði ósann­gjarna og gagnrýnir það sem hún kallar arðrán. Hún telur nauðsynlegt að grípa inn í með laga­setningu og setja hemil á þróunina.

Þá leggur hún áherslu á að tekið verði á launa­þjófnaði með skýrum refsiákvæðum. Hún segir kerfis­bundin brot á réttindum verka­fólks viðgangast án afleiðinga og vísar í ályktun Eflingar­þings þar sem segir: „Hægt er að byggja kerfis­bundnar vangreiðslur á launum inn í viðskipta­módel fyrir­tækjanna með góðum árangri eins og dæmin sanna.“

Samkvæmt hennar upplýsingum nema launa­kröfur sem Efling hefur unnið að árin 2024 og 2025 nú þegar yfir 500 milljónum króna.

Hún bendir á að í Noregi hafi verið sett lög sem kveða á um allt að tveggja ára fangelsi fyrir launa­þjófnað, og allt að sex ár í alvarlegum tilvikum. Slík laga­setning myndi, að hennar mati, „snar­minnka allan þann ósóma og rugl sem viðgengst“.

Að lokum segir hún að þó umbætur á húsnæðis­lánakerfi séu jákvæðar, þá þurfi að grípa til aðgerða strax. Hún spyr hvort ekki sé tímabært að stöðva „þann viðvarandi og viðbjóðs­lega vanda sem launa­þjófnaður er í lífi verka­fólks“.

„Ég get vel tekið undir með ráðherra félags­mála að betra húsnæðis­lánakerfi sé mjög gott mál. En þangað til að það verður innleitt, eftir mörg ár, er þá ekki frábær hugmynd að stoppa þá siðblindu hegðun sem viðgengst á leigu­markaði og stoppa þann viðvarandi og viðbjóðs­lega vanda sem launa­þjófnaður er í lífi verka­fólks höfuð­borgar­svæðisins? Þá geta þau sem þurfa að þola þetta fáránlega rugl mögulega byrjað að leggja fyrir svo að þau eigi þá séns þegar nýja kerfið kemur á því að kaupa sér eigin íbúð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Peningar

Kröfu­hafar Skagans 3X boðaðir á fund

Félagið var úrskurðað gjaldþrota í júlí 2024. Kröfuhafar geta nú kynnt sér tillögu að úthlutun úr þrotabúinu.
  • Kaup­máttur jókst um 5,8 prósent frá upphafi kjara­samninga­lotunnar

  • Skiptum lokið á þrotabúi Talays

  • Elís segist hafa tapað 100 milljónum í viðskiptum við fjárfesta

  • Prett­yboitjokkó stofnar fyrirtæki með fyrrum lands­liðsmanni

  • Landsliðs­konur í ný störf