Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Mikill seiðadauði setti mark sitt á afkomu Kaldvíkur

Gengis­áhætta sögð meðal helstu áskorana í rekstrinum.

Fiskeldi í sjó.
Fiskeldi í sjó. Árskýrsla Kald­víkur er komin út. Mynd: iStock/MariusLtu

Verulegur afföll urðu á seiðum sem sett voru í eldis­kvíar Kaldvíkur í Fáskrúðs­firði síðasta haust og hefur það haft veruleg áhrif á rekstur fyrir­tækisins. Þrátt fyrir marg­földun rekstrar­tekna skilaði fyrir­tækið neikvæðri afkomu eftir afskriftir á síðasta ári. Sagt er frá málinu á Austur­frétt.

Í ársskýrslu Kaldvíkur, sem samþykkt var á aðalfundi í gær, kemur fram að tekjur hafi hækkað úr 5,8 milljörðum króna árið 2022 í 15,7 milljarða í fyrra, einkum vegna aukinnar fram­leiðslu. Slátrað var tæpum 15.000 tonnum af laxi, sem er um 4.400 tonnum meira en árið á undan. Árið 2022 glímdi fyrir­tækið við ISA-veiru, sem krafðist snemm­slátrunar, en árið 2023 hafði bólu­setning gegn veirunni verið tekin upp að fullu.

Afkoman fyrir skatta og afskriftir var jákvæð um þrjá milljarða króna, en hagnaður eftir skatta og afskriftir námu 1,3 milljörðum, saman­borið við 408 milljónir árið áður.

Hins vegar breytist myndin þegar tekið er tillit til líffræðilegra eigna, einskiptis­kostnaðar og fiskeldis­gjalda. Þá nemur tap félagsins 1,3 milljörðum fyrir skatta og afskriftir, og 2,9 milljörðum eftir þær. Árið áður var hagnaður 2,5 milljarðar á sama grunni. Veltufé frá rekstri var neikvætt um 2,2 milljarða, sem þó er betri staða en árið áður þegar það var neikvætt um rúmlega sex milljarða.

Afskrifuðu 3,5 milljarða vegna seiðadauða

Mesta áhrifin virðast koma frá dauða seiða í nóvember síðastliðnum. Samkvæmt skýrslunni tafðist útsetning þeirra vegna ofmettunar, og versnuðu veðurfars­aðstæður að auki. Niður­staðan var að 1,2 milljónum færri seiða var komið í sjó en áætlað hafði verið, sem leiddi til 3,5 milljarða afskrifta.

Vegna þessa er ávinningur af bólu­setningunni gegn ISA-veirunni ekki farinn að skila sér að fullu. Fram kemur að fram til þessa seiða­dauða hafi afföll verið undir meðaltali í greininni í Noregi. Seiða­dauðinn hefur einnig áhrif á fram­leiðsluspá, reiknað er með að 3.500 tonnum minna verði slátrað á þessu ári, en samtals er gert ráð fyrir að fram­leiðsla verði 21.000 tonn.

Matvæla­stofnun hefur kært málið til lögreglunnar á Austur­landi þar sem grunur leikur á að útsetning seiðanna hafi brotið gegn dýraverndar­lögum. Málið er til rann­sóknar.

Nýtt nafn, nýtt skipulag

Árið 2023 var einnig ár breytinga hjá Kaldvík. Fyrir­tækið fékk nýtt nafn í stað Fiskeldis Aust­fjarða og Laxa fiskeldis, og var skráð í íslensku Kaup­höllina. Nýr framkvæmda­stjóri, Roy-Tore Rikardsen, tók við af Guðmundi Gíslasyni sem nú stýrir sölusviði.

Kaldvík eignaðist sláturhús og kassa­verksmiðju á Djúpavogi, sem styrkir stöðu fyrir­tækisins í virðis­keðjunni. Þar var tekin í notkun ný slægingarvél.

Fyrir­tækið stundar eldi í Berufirði, Fáskrúðs­firði og Reyðar­firði, auk þess sem það á leyfi á Stöðvar­firði sem ekki hefur verið virkjað. Einnig hefur það sótt um leyfi á Seyðis­firði og segir í skýrslunni að undir­búningur og fjár­festingar séu þegar hafnar, þrátt fyrir að leyfið hafi ekki enn fengist.

Gengi krónunnar veldur áhættu

Í skýrslunni er gengis­áhætta sögð meðal helstu áskorana í rekstrinum. Tekjur eru að mestu í evrum og dollurum en kostnaður í íslenskum krónum. Félagið gerir upp í evrum.

Í lok árs störfuðu 207 hjá Kaldvík, þar af voru um 25% konur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.
Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Innlent

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Landið

Leifar af skála frá land­námstíma fundust á Aðalbóli

Fornleifafræðingur telur minjarnar geta varpað ljósi á búsetu í Hrafnkelsdal á fyrstu öldum Íslandsbyggðar.

Sváfu undir berum himni og heilluðust af íslenska hálendinu

Andri Snær rifjar upp fórnirnar sem fylgdu Kára­hnjúka­virkjun

Leður­blakan í Fellabæ enn ófundin

Leður­blaka sást á flugi í Fellabæ

Öllu starfs­fólki Heilbrigðis­eftirlits Austur­lands sagt upp