Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Hanskar sem fundust í leit að Nancy Guthrie tengjast ekki málinu

„Það er rannsókn í gangi og það eru ákveðin verkferli sem fylgja henni“

Nancy og Savannah
Nancy og Savannah Mæðgurnar eru mjög nánar Mynd: Instagram

Rannsókn á hvarfi móður Savönnuh Guthrie, Nancy Guthrie heldur áfram og lögregla segir að enn sé unnið að því að fara yfir sönnunar­gögn í málinu.

Næstum þrjár vikur eru síðan hanskar með DNA fundust um tveimur mílum frá heimili hinnrar 84 ára gömlu konu, sem hvarf í byrjun febrúar. Margir töldu að hanskarnir gætu tengst hvarfinu, en Chris Nanos, sýslu­maður í Pima-sýslu, segir að svo sé ekki.

„Á þeim tíma töldum við af heilum hug að þessir hanskar tilheyrðu veitinga­stað,“ sagði Nanos í viðtali við NBC-stöðina KVOA sem birt var 2. mars. „Eigandi hanskans fannst og reyndist vinna á veitinga­stað hinum megin við götuna.“

Sumir höfðu bent á að hanskarnir líktust þeim sem sjá má á grímu­klæddum einstaklingi í upptöku úr dyrabjöllu­myndavél við heimili Guthrie. Nanos segir þá kenningu þó aðeins vera „vanga­veltur“ og að hanskarnir sem fundust hafi „ekkert með málið að gera“.

Lögreglan í Pima-sýslu staðfesti einnig í færslu á X þann 4. mars að eigandi hanskanna sé „ekki hluti af þessari rannsókn“.

Ýmsar aðrar kenningar hafa einnig komið fram í tengslum við leitina. Nanos sagði meðal annars að sumir hefðu haldið því fram að hanskarnir gætu hafa verið frá lögreglu­mönnum sem hefðu hent þeim á vettvangi.

„Það var einhver umræða um að lögreglu­menn úti á vettvangi hefðu bara hent þeim,“ sagði hann. „Það er svo langt frá sann­leikanum.“

Hann bætti þó við að rannsóknar­teymið hafi upplýsingar sem gætu hjálpað til við að leysa málið, en að það væri „mjög óábyrgt“ að birta þær opinber­lega á þessu stigi.

„Það er rannsókn í gangi og það eru ákveðin verkferli sem fylgja henni,“ sagði hann og bætti við að slík vinna taki tíma.

Að sögn Nanos getur rannsóknar­teymið nú einbeitt sér að kjarna málsins: að bera kennsl á einstaklinginn sem sést í myndbands­upptökunni og finna þann sem tók Nancy Guthrie.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Heimur

Cher búin að vera í fýlu við fyrr­verandi barna­stjörnu í næstum 30 ár

„Ég elska þig, Cher. Ég elska þig svo mikið.“

Lík fannst í klettum á Lanzarote eftir umfangs­mikla leit

Sátu uppi með ónýta lúxus­ferðatösku

Ísrael hefur nánast útrýmt ævafornum ólífu­trjám Gaza

Rússar sagðir undirbúa kjarnorku­vopn á braut um jörðu