Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Húsnæðislaus og flogaveik einstæð móðir segist svikin af Reykjavíkurborg

„Ég get ekki ímyndað mér hversu margar mæður eru á okkar landi sem falla svona á milli eins og ég“

Birta Blanco
Birta Blanco Birtu sár­vantar íbúð Mynd: Aðsend

Birta Blanco, einstæð móðir í Reykjavík, segir stöðu sína dæmi um alvarlegt húsnæðisóöryggi sem bitni sérstak­lega á einstæðum foreldrum með heilsu­vanda og börn með sérþarfir. Hún lýsir margra mánaða óvissu, vonbrigðum og skorti á svörum frá kerfinu, eftir að hún missti húsnæði sitt og hafnaði í bið eftir félagslegri íbúð sem hún taldi sig hafa verið lofaða.

Birta er þriggja barna móðir, með tvö barna sinna í sinni umsjá en hún hefur verið flogaveik frá fimm ára aldri.

„Er þriggja barna móðir með tvö þeirra í umsjá. 10 ára og tveggja ára. Er flogaveik sem gerist undir miklu álagi og streitu. Er í greiningar­ferli við POTS líka. Elsta barn er í greiningar­ferli við ADHD og einhverfu,“ segir Birta í samtali við Mannlíf fyrir síðustu helgi.

Hún segir að staða hennar hafi legið fyrir í langan tíma.

„Já þetta hefur verið vitað síðan í september í fyrra, ef ekki fyrr. Er sem sagt í endur­hæfingu og með ráðgjafa þar sem vissi að ég væri að fara missa húsnæðið þar sem leigu­salinn minn þurfti að flytja inn vegna óviðráðanlegra aðstæðna.“

Birta hóf strax leit að nýju húsnæði.

„Ég byrjaði strax að leita á almennum leigu­markaði og var á lista yfir félags­legu húsnæði. Ég fékk að skoða tvær íbúðir á almenna.“

Í kjölfarið frétti hún af sértæku félags­legu úrræði fyrir einstæðar mæður.

„Frétti svo af Ellunni sem er félagslegt húsnæði fyrir einstæðar mæður og aðra með sérþarfir. Þar eru ráðgjafar.“

Hún segir að hún hafi, í samráði við ráðgjafa sinn, lagt áherslu á það úrræði til að auka líkur sínar.

„Ég bað ráðgjafann minn um að huga að íbúðum þar fyrir mig líka til að auka líkurnar mínar á félagslegri íbúð.“

Birta segist hafa fengið samþykki fyrir íbúð á almennum leigu­markaði, en ákveðið að hafna henni eftir fund með ráðgjöfum í Ellunni.

„Svo fékk ég mig samþykkta fyrir einni íbúðinni á almenna leigu­markaðinum og svo var eitthvað spjall um tryggingu sem ég þurfti að spyrja ráðgjafann minn um en þá er ég boðuð á fund með ráðgjöfum í Ellunni og þar mér gefnar miklar vonir um að fá íbúð þar, þar sem þær sögðu mér á þessum fundi í nóvember að það væri að losna íbúð í byrjun desember.“

Hún segir ákvörðunina hafa verið tekin í trausti á félags­lega kerfinu.

„Vegna þessa þá hætti ég við að taka íbúðinni á almenna markaðinum þar sem Féló er öruggara en leigu­markaðurinn og byrjaði þá biðin fyrir íbúðinni í Ellunni.“

Birta lýsir síðan löngu tímabili óvissu og sífelldra frestana.

„Ég á mörg e-mail á milli mín og ráðgjafa míns um að ég fengi hana og spyr ég mikið hver staðan er og alltaf lengdist biðtíminn þar sem það þurfti að stand­setja og laga íbúðina.“

Þrátt fyrir að íbúðin hafi losnað í desember hafi hún aldrei fengið afdráttar­laust svar.

„Íbúðin losnar í byrjun desember og þurfti ég að flytja út í byrjun janúar. Nú situr allt innbúið í geymslu síðan þá og hef ég ekki fengið nein svör um þessa íbúð. Bara að hún er í vinnslu.“

Í byrjun síðustu viku segir hún að henni hafi verið gert ljóst að engar tryggingar væru í raun fyrir úthlutuninni

„Svo í byrjun þessara viku fæ ég að vita að það eru svo ekkert 100% að ég fái þessa íbúð úthlutaða … Það er víst bara hægt að „mæla með mér“ á úthlutunar fundum 1x í viku.“

Birta segist hafa leitað allra hugsanlegra leiða til að fá aðstoð.

„Ég er búin að senda email á alla og ömmu þeirra sem tengjast Reykja­víkurborg, búa til könnun um húsnæðisóöryggi, skoða allt um húsnæði fyrir heimilis­laust fólk en finn bara fyrir fíkla og fólk í ofbeldis­sambandi, senda á Rúv, Vísi og aðra frétta­miðla til að fá einhverja umfjöllun, alla stjórn­málaflokka og búin að senda inn kvörtun til Gæða- og eftirtirlitsstofnunar velferða­mála og heyra í húsnæðis­fulltrúa Austur­miðstöðvar og benda forseta Íslands á stöðu mála.“

Að hennar sögn er staða hennar ekki einsdæmi.

„Ég get ekki ímyndað mér hversu margar mæður eru á okkar landi sem falla svona á milli eins og ég og láta sig bara hafa það af því þær halda að Reykja­víkurborg/féló hafa þeirra hagsmuni í huga. Raunin er bara allt önnur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim