Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Grunur um kynferðisbrot á leikskólanum Sælukoti þaggað niður: „Hún öskurgrét þegar hún sá hann

Greint var frá því í ágúst að starfs­maður á leik­skólanum Sælukoti í Reykjavík hafi verið sakaður um ofbeldi í garð barns á leik­skólanum.

Maðurinn var leystur frá störfum eftir þrjár tilkynningar frá móður barnsins sem átti í hlut en fjöldi annarra tilkynninga hafa borist, bæði vegna starfs­mannsins og annara mála á leik­skólanum.

Móðir barnsins segir að leik­skólinn hafi brugðist og mistök hafi verið gerð á mörgum sviðum málsins.

Eftir tilkynningu móðurinnar settu nokkrir foreldrar sig í samband við hana og sögðu að þeim gruni sterklega að sín börn hafi lent í því sama og að um kynferðis­brot væri að ræða.

Móðir barnsins vill ekki láta nafn síns getið en hún telur það rétta í stöðunni að stíga fram og segja söguna í von um að það hjálpi. Gerði hún það í viðtali við Mannlíf.

Móðirin segir að frásagnir barnsins hafi byrjað í september 2020, en í fyrstu hljómuðu þær eins og barnið gæti mögulega hafa lent í einhverskonar kynferðis­ofbeldi. Barnið var þá þriggja ára gamalt og segir móðirin að frásagnirnar hafi verið heldur óskýrar, enda barnið ungt. Þetta vakti þó grun hennar og áhyggjur.

Skýrar reglur gilda í leik­skólum um vinnu­brögð, vakni grunur um að barn hafi verið beitt ofbeldi. Starfs­menn leikskóla mega aldrei tala um, eða yfirheyra barn um slík mál. Það sé mjög mikilvægt svo að ekki ruglist frásögn barnsins.

Móðirin segir að þar hafi mistök verið gerð en var barnið kallað á fund, án vitneskju móður og án þess að nokkur forráða­maður hafi verið viðstaddur.

Á fundinum sátu þrír aðilar, rekstar­aðili leik­skólans sem er einng húma­nískur leik­skólastjóri, túlkur, þar sem að rekstar­aðilinn talar ensku og barnið.

Eftir fundinn hringdi rekstrar­aðilinn í móður barnsins og tilkynnti henni að þau hefðu komist að þeirri niður­stöðu að barninu hefði einfald­lega verið að dreyma.

Móðurinni var brugðið við símtalið, bæði vegna fundarins og yfirheyrslunar.

„sem er nátt­úrlega ekki ráðlagt að gera nema í Barnahúsi, þegar vaknar grunur,“ segir móðirin.

Barnið, sem móðirin segir almennt félags­lynt, breyttist í hegðun og var orðið ólíkt sér þegar það sá manninn en var það hrætt við hann.

„Hún bara öskurgrét þegar hún sá hann, og ég bað um að hann væri ekki í kringum hana eftir það“.

Í byrjun var sú krafa móðurinnar virt en einn dag þegar hún sótti barnið kom það grátandi út í bíl og sagði að rekstrar­aðilinn hafi látið hana knúsa manninn í þeim tilgangi að „sættast“.

Rekstrar­aðilinn gekkst við þessu á foreldra­fundi og staðfesti frásögn barnsins.

Maðurinn var einnig settur í afleysingar á deild barnsins og í útiveru.

Í júní á þessu ári kom önnur frásögn frá barninu sem móðirin tilkynnti til Barna­verndar­nefndar.

„Ég tek börnin eftir þessa frásögn og held þeim heima,“ segir móðirin en hún átti tvö börn á leik­skólanum.

Maðurinn var enn við störf á leik­skólanum og var ekki sendur í leyfi fyrr en móðirin hafði samband við Reykjar­víkurborg.

Stuttu síðar barst móðurinni tölvu­póstur frá rekstrar­aðilanum.

„Þar sem hún spyr mig hvor hún megi ekki bjóða honum á sumar­hátíðina á leik­skólanum, þar sem að við myndum vera“.

Móðurinni þótti þetta mjög óviðeigandi, auk þess hafði rekstrar­aðilinn samband við móðurina símleiðis, nánast daglega þar sem hún efaðist um frásagnir barnsins.

„Hann getur ekki hafa gert þetta því hann fór að gráta, og hann er svo þung­lyndur,“ var meðal þess sem rekstrar­aðilinn sagði.

Í júlí fór barnið í Barnahús. Þá hafði móðirin tekið þá ákvörðun að börnin færu ekki aftur á leik­skólann sem var lokaður í júlí vegna sumarfrís.

Þegar leik­skólastarf hófst aftur eftir sumarfrí frétti móðirin að maðurinn væri mættur aftur til starfa.

Henni blöskraði.

„Ég hringdi í leik­skólann og sagði að mér þætti það óviðeigandi að maðurinn væri þarna,“ svör leik­skólans voru ekki á þann veg er hún bjóst við.
„Þær sögðu að hann mætti ekki vera einn með börnum“
Stuttu síðar bárust móðurinni tilkynningar um það að maðurinn hafi samt sem áður verið einn með börnum og meðal annars tekið einn á móti þeim á morgnanna.

Þriðja frásögn barnsins kom í ágúst. Þá hafði barnið ekki verið á leik­skólanum frá því í byrjun sumars. Móðirin sagði frásögnina hafa verið mjög skýra og segir að hún hafi ekki verið í neinum vafa um það að eitthvað hafi komið fyrir barnið.

Móðirin taldi það rétta í stöðunni að upplýsa aðra foreldra um málið, án þess þó að fara út í smáatriði og án þess að nafn­greina aðilann. Fyrir það hafi hún spurt stjórn­endur leik­skólans hvort það þyrfti ekki að upplýsa foreldrana um stöðu mála en var þvertekið fyrir það.

Eftir að hún tilkynnti foreldrum um stöðu mála á lokuðum Facebook-hópi fékk hún skilaboð.

„Þá fæ ég að heyra ýmislegt annað frá öðrum foreldrum,“segir móðirin. Maðurinn var látinn hætta sama dag og hún tilkynnti foreldrum stöðuna.

Foreldra­fundur er haldinn í kjölfarið.
Móðirin segir að það séu síðustu samskipti sem hún hafi átt við stjórn­endur leik­skólans. Á fundinum gerði móðirin athuga­semdir við margt sem hafði gerst og segist hún hafa fundið mikinn stuðning frá foreldrum. Þó hafi nokkrir sagt að þetta samtal ætti ef til vill ekki rétt á sér á þessum tíma.

Á foreldra­fundinum voru kynntar nýjar reglur leik­skólans.
„Tóku það þá fram að fram að starfs­fólkið mætti ekki kyssa börnin, sérstak­lega ekki á munninn“.
Móðirin sagði að sér og eflaust öðrum hafi þótt þetta mjög undarleg regla.
„Er þetta ekki bara almenn regla?“ bætti hún við.
Önnur regla var sú að starfs­menn mættu ekki fara með börnin ein út af skóla­lóðinni.

Skömmu eftir að móðirin hafði tilkynnt foreldrum frá því sem væri í gangi gaf foreldraráð út þá tilkynningu að þau hefðu fengið nánari upplýsingar um málið. Þegar móðirin fór að athuga við hvað væri átt kom í ljós að stjórn­endur hefðu upplýst foreldraráð um mál barnsins í smáatriðum þótt hún teldi hún slíkt vera trúnaðarmál.

Móðirin segir að hún hafi verið í mikilli óvissu um það hver næstu skref yrðu á þessum tíma og sótti hún um leikskóla hjá Reykjar­víkurborg. Á meðan því ferli stóð talaði hún við forvarnar­fulltrúa hjá borginni sem sagði henni að erfitt væri fyrir Reykja­víkurborg að taka á starfs­mannamálum.

„Þau gætu svo lítið gert af því að þetta væri einka­rekinn leikskóli“.

Forvarnar­fulltrúinn sagði henni að úttekt hafi verið gerð á leik­skólanum og var mörgu ábótavant. Mörg lokuð rými með engum gluggum, lokaðar skipti­aðstöður og starfs­menn of mikið einir með börnum.

Móðirin segir vita til þess að margir hafi tekið börnin sín af leik­skólanum, svo margir að tölvu­póstur var sendur á alla foreldra. Í tölvu­póstinum var foreldrum tilkynnt að það væri uppsagna­frestur og fólk gæti ekki tekið börnin af skólanum fyrirvara­laust. Móðirin telur að pósturinn hafi verið sendur vegna þess að svo margir færðu börnin, en þar sem leik­skólinn er einka­rekinn stólar hann að öllum líkindum mikið á leik­skólagjöld.

„Við erum búin að kæra til lögreglu, ég veit ekki hvað gerist næst‘‘.
Hún telur það rétta að segja frá sinni reynslu í þeirri von að hjálpa öðrum, að ekki megi þagga niður svona mál.
„Ég er bara mjög ánægð að hafa gert það , þótt það myndi bara hjálpa einu öðru barni,“ segir hún og bætir við að frásagnir barnsins hafi nú staðið í eitt ár.
„Það eru ennþá að koma frásagnir frá barninu, ári seinna“.
Móðirin segir að nokkrir foreldrar hafi haft samband við sig eftir að hún sagði frá málinu í foreldra­hópnum á Facebook.
„Ég er búin að heyra af mjög sterkum grun frá nokkrum foreldrum um að eitthvað svipað hafi komið fyrir‘‘.

Móðirin tekur fram að margir af þeim sem starfi við leik­skólann séu frábærir starfs­menn en vandinn liggi í stjórninni.
„Ég er mjög sár út í leik­skólann. Það hefur enginn komið til mín og sagt bara leiðinlegt að heyra, heldur alltaf bara bullandi vörn“

Auk þess segir móðirin að leik­skólinn hafi gert lítið úr frásögnum barnsins en hún þekki barnið sitt best.
„Fyrir mig, þá fer ekkert á milli mála að eitthvað hafi komið fyrir hana,“ segir hún.
Hún hafi fengið góðan stuðning frá mörgum foreldrum barna á leik­skólanum en ekki á frá þeim stöðum sem við mætti búast.

„Aldrei í þessu ferli hef ég heyrt – Hvað ef þetta gerðist, heldur bara hvað ef þetta gerðist ekki. Það var efast um allt,“ segir móðirin að lokum.

Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að ná tali af stjórn­endum Sælukots gekk það ekki.
Rekstrar­aðili og leik­skólastjóri eru enn starfandi við leik­skólann. Ekki er vitað hvar maðurinn sem leystur var frá störfum starfar nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum