Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Rooney gagnrýnir Salah og efast um vinnusiðferði hans

„Hann hefur virst svo­lítið týndur und­an­farið, að mínu mati“

Salah og Rooney
Salah og Rooney Rooney gagn­rýnir Salah harð­lega Mynd: Samsett

Wayne Rooney skýtur fast á Mohamed Salah, stjörnu Liverpool, og dregur í efa vinnu­sið­ferði hans í nýju við­tali. Þá telur hann að komu nýrra leik­manna hafi hugs­an­lega sært stolt egypska fram­herj­ans. Liðið hefur nú tapað þremur leikjum í röð, síð­ast 2–1 gegn Chelsea í ensku úrvals­deild­inni.

Fyrrum fram­herj­inn hjá Everton og Manchester United spar­aði ekki stóru orðin þegar hann ræddi frammi­stöðu Salah eftir tapið gegn liði Enzo Maresca. Mark frá Estevao Willian í upp­bót­ar­tíma tryggði Chelsea sig­ur­inn og kom í veg fyrir að lið Arne Slot end­ur­heimti topp­sætið.

Rooney benti á að nýj­ustu leik­manna­kaup Liverpool gætu hafa ruglað Salah í rým­inu.

„Með leik­mönn­unum sem hafa komið, Isak, [Hugo] Ekitike og Wirtz, og öllum þessum pen­ingum sem varið hefur verið, hvað heldur Salah núna?“ spurði Rooney.

„Topp­leik­menn hafa sjálfs­á­lit, og Mo Salah hefur verið einn besti leik­maður deild­ar­innar lengi. En síð­asta vikan hefur sýnt að þegar gengur vel, þegar þú skorar og vinnur, þá er horft fram­hjá þessu, en und­an­farið myndi ég spyrja mig hvort vinnu­sið­ferði hans sé nægi­legt.“

Rooney hélt áfram: „Ég veit að hann kemur ekki alltaf til baka og hjálpar mikið í vörn­inni, en í Chelsea-leiknum var bak­vörð­ur­inn hans rif­inn í sundur, og hann horfði bara á. Leikmenn eins og Van Dijk og Alisson, sem þó lék ekki, ættu sem leið­togar í klef­anum að segja honum að hann verði að hjálpa til. Mér fannst það áhyggju­efni. Hann hefur virst svo­lítið týndur und­an­farið, að mínu mati.“

Rooney hefur áður látið í ljós áhyggjur af því að rán­dýr leik­maður eins og Alex­ander Isak gæti truflað ró Salah. Fyrr á tíma­bil­inu sagði hann að Salah kynni að vera „óánægður“ með komu Svíans, þar sem athyglin hefði færst af honum.

„Þótt Salah hafi verið besti leik­maður Liverpool í mörg ár, þá verður hann ekki sáttur við að Isak hafi komið inn og sé að fá athygl­ina,“ sagði Rooney í sept­em­ber.

„Þetta snýst um stolt, hann vill vera sá besti. Þegar við keyptum Tevez var talað um að við gætum ekki leikið saman. En þegar nýr leik­maður kom, hugs­aði ég alltaf: „Það er eng­inn að koma til að taka mitt sæti.“ Það gaf manni nátt­úru­lega auk­inn kraft.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Eftir að hafa greinst með heilaæxli fyrir fjórum árum lýsir Karl Ágúst þakklæti fyrir að verk hans séu nú aftur á sviði.
Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Sport

Nærmynd

Hver er Theodór Elmar?

Tíu árum eftir árangur Íslands á EM 2016 rifjar Mannlíf upp feril Theodórs Elmars Bjarnasonar, eins af leikmönnum liðsins.

Kristian Nökkvi kemur inn í lands­liðs­hóp­inn

Átján ára knatt­spyrnu­maður lést eftir höf­uð­högg í miðjum leik

Brasil­ísk knatt­spyrnu­fé­lög leita til lög­reglu eftir slags­mál í leik U20-liða kvenna

Helga Margrét vill breyta heim­inum fyrir íslenskar íþrótta­konur

Mark­vörð­ur­inn í áfalli eftir dauðs­fallið