Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Miðstjórn ASÍ: „Aðgerðarleysi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur gengur þvert á viðtekin viðbrögð“

Kristján Þórður Snæbjarnarson alþingsmaður.
Kristján Þórður Snæ­bjarn­ar­son alþings­maður.

ASÍ segir í tilkynningu að „miðstjórn Alþýðu­sambands Íslands gagnrýnir harðlega stýri­vaxtahækkun Seðla­bankans; megin­vextir bankans eru nú 6,5% og hafa ekki verið hærri í þrettán ár. Hækkunin kemur í kjölfar vaxandi verðbólgu en hækkun vísi­tölunnar í janúar mátti fyrst og fremst rekja til ákvarðana ríkis­stjórnarinnar.

Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri.

Miðstjórn ASÍ mun boða til formanna­fundar til að ræða viðbrögð og aðgerðir.“

Ljóst er að forysta ASÍ er ekki sátt við ástandið hér á landi:

„Verðbólga mælist 9,9%. Miðstjórn hafnar því að skýringuna sé að finna í kjara­samningum á almenna vinnu­markaðinum. Aðilar vinnu­markaðarins voru sammála um að samningarnir myndu ekki ýta undir verðbólgu. Seðla­bankinn verður að líta sér nær, að stórum hluta má rekja verð­bólguna til heima­tilbúinnar fasteigna­bólu og alþjóðlegra verð­hækkana.“

Rík­is­stjórn Íslands.

Segir ennfremur í tilkynningunni að „miðstjórn Alþýðu­sambandsins hefur áður vakið á því athygli að hér eru ekki að verki óumbreytanleg lögmál. Ríkis­stjórn Íslands ákvað með samþykki þeirra þriggja stjórn­málaflokka sem að henni standa að blása í glæður verðbólgu með hækkunum á ýmsum sköttum og gjöldum. Nú blasa afleiðingar þeirrar fráleitu ákvörðunar við almenningi. Vextir hækka, húsnæðis­lánin og húsaleiga verða enn þyngri í vöfum og kjörin verri en áður. Allt eru þetta mannanna verk og líkt og jafnan koma slíkar aðgerðir verst niður á þeim sem búa við erfiðustu afkomuna.“

Katrín Jak­obs­dóttir.

Að endingu segir að „aðgerðar­leysi ríkis­stjórnar Katrínar Jakobs­dóttur gengur þvert á viðtekin viðbrögð í nágranna­löndum þar sem ráðamenn beita tækjum ríkis­valdsins til að lina áhrif afkomu­kreppunnar og vinna skipulega að því að hemja verðbólgu. Í þeirri staðreynd birtist forgangs­röðun ríkis­stjórnarinnar og sinnu­leysi gagnvart afkomu fólksins í landinu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim