Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Hildur Helga um andlát Elísabetar Bretadrottningar: „Breska samveldið gæti liðast í sundur“

Hildur Helga Sigurðardóttir
Hildur Helga Sig­urð­ar­dóttir Mynd: Rúv-skjáskot

Hildur Helga Sigurðar­dóttir, fyrr­verandi frétta­ritari Ríkis­útvarpsins í Lundúnum telur mögulegt að breska samveldið líði undir lok, nú þegar Elísabet II Englands­drottning er öll.

„Já ég held að þetta muni breyta mjög miklu,“ sagði Hildur Helga í samtali við Mannlíf, aðspurð hvort sú staðreynd að Karl er orðinn konungur Bretlands muni breyta einhverju.

„Í fyrsta lagi verður mikil sorg í Bretlandi og hún verður sárt syrgð og mikið grátið. Það eru  margar kynslóðir sem hafa alist upp með hana sem þjóð­höfðingja. Karl er ekki eins vinsæll og hún en Elísabet II hefur verið hér um bil óumdeild. Jafnvel andstæðingar konungs­dæmisins hafa eiginlega ekki geta sagt hnjóðs­yrði um hana því hún hefur verið það pottþétt og mikil atvinnu­manneskja í því að vera drottning.“

Telur Hildur Helga að krýning Karls geti haft mikil áhrif á breska samveldið.

„Í því eru auðvitað fjölmörg ríki, meðal annars Kanada og Ástralía, svo maður tali nú ekki um mörg Afríku­ríki. Og hún hefur haldið mjög góðu sambandi við þessi ríki, ekki síst Afríku­ríkin. Hún var meira að segja í Afríku árið 1952 er hún varð drottning. Hvort að Karl nái þessu sama góða sambandi og virðingu við löndin í breska samveldinu, það á eftir að koma í ljós. Það eru margir lýðveldis­sinnar í Ástralíu og nokkrir í Kanada og svo framvegis og það verður bara að koma í ljós með það allt saman. Breska samveldið gæti liðast í sundur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Vissu ekki að 1.468 skilaboð hefðu varðveist
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum