Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Björn Bjarnason segir að „TF-SIF má ekki selja!“

Björn Bjarnason.
Björn Bjarna­son.

Fyrr­verandi ráðherrann Björn Bjarnason ritar áhuga­verðan pistil á síðu sinni, bjorn.is.

Yfir­skrift greinar hans er: TF-SIF má ekki selja.

Komið hefur á daginn að uppi eru fyrir­ætlanir um að selja vél um fyr­ir­hugaða sölu TF-SIF, flug­vél­ar Land­helg­is­gæsl­unn­ar, en rekstri henn­ar verður væntanlega hætt á ár­inu, eft­ir því sem dóms­mála­ráðuneytið hef­ur til­kynnt Land­helg­is­gæsl­unni bréf­lega.

Um málið segir Björn:

„TF-SIF var tekin í notkun 1. júlí 2009. Tækja­kostur hennar olli byltingu í öllu eftirliti á Norður-Atlantshafi.

Landhelgis­gæslan eignaðist fyrstu flugvél sína 10. desember 1955, Catalina flugbát af gerðinni PBY-6A, TF-RAN. Varnar­liðið á Kefla­víkur­flugvelli notaði flug­bátinn til eftirlits og björgunar.

Eftir að vélin laskaðist norður í landi keypti flugmála­stjórn hana, gerði hana flughæfa og seldi gæslunni. Áhöfn Rán stóð breskan togara að ólöglegum veiðum 18. febrúar 1956.“

Bætir við:

„Skip­stjórinn neitaði að sigla til hafnar og var hótað að skjóta á skipið. Var því siglt í land.

Árið 1962 eignaðist gæslan Douglas DC-4 Skymaster flugvél sem hlaut einkennis­stafina TF-SIF. Hún var í eigu gæslunnar til ársins 1971.

Í ársbyrjun 1972 keypti gæslan Fokker F-27 200 flugvél af japanska flug­félaginu All-Nippon, TF-SYR. Fokkerinn sannaði fljótt gildi og var keypt samskonar vél sem kom til landsins 14. janúar 1977, TF-SYN. Var hún í þjónustu gæslunnar í rúma þrjá áratugi eða allt þar til Dash 8 Q-300 flugvélin TF-SIF kom til landsins árið 2009.“

Segir Björn að „tækja­kostur hennar olli byltingu í öllu eftirliti á Norður-Atlantshafi. Svíar áttu þá þrjár eins vélar og reyndist hagkvæmt að eiga samleið með þeim. Frá því að þátta­skilin urðu með komu TF-SIF hafa miklar breytingar orðið í öllu sem varðar eftirlit á hafinu og umsvif á hafsvæðum sem árið 2009 voru álitin frið­samleg en hafa síðan tekið á sig aðra mynd.

Miðjarðarhaf hefur til dæmis breyst í flóttahaf frá N-Afríku að sameiginlegum Schengen-landa­mærum Evrópu­landa.“

Hann færir í tal að „á sínum tíma sendi íslenska ríkis­stjórnin bæði varðskip og TF-SIF til að aðstoða við eftirlit og björgunar­störf á Miðjarðar­hafi. Nú hafa flótta­leiðir á sjó færst nær okkur eins og fréttir frá vanda Breta við Ermarsund sýna og sagt er frá flótta­bátum við strendur Írlands og Danmerkur.

Reynslan sem starfs­menn gæslunnar hafa öðlast af samstarfi við þessi gæslu­störf á hafi úti er ómetanleg.

Það er einkennilegt að sjá að hér skuli það talið eftir að tæki gæslunnar séu notuð í þessu skyni en það veki ekki stolt að við höfum burði til að leggja okkar af mörkum.

Þjóð sem á allar ytri varnir sínar undir öðrum.“

Hann bendir á að „öryggismál á N-Atlantshafi hafa tekið á sig allt aðra og alvarlegri mynd en var árið 2009 þegar TF-SIF kom til landsins. Hér skortir rann­sóknir og ígrunduð rök þegar að herfræði­legum málefnum kemur og hvernig nýta beri borgaraleg öryggis­tæki þjóðarinnar sem best í því samhengi.

Eitt er þó víst að í því tilliti er fráleitt að nú sé tekin ákvörðun um að leggja TF-SIF eða jafnvel selja vélina.

Þegar kemur að náttúruvá stöndum við á viðurkenndum fræði­legum grunni.

Magnús Tumi Guðmundsson, prófessor í jarð­eðlisfræði, segir að TF-SIF hafi marg­sannað notagildi sitt, meðal annars í eldgosi í Holu­hrauni og Eyja­fjallajökli. „Ja, ég verð nú að segja að ég hef sjaldan orðið jafnhissa og þegar ég sá þessa frétt [að selja ætti TF-SIF] núna áðan. Ég verð að játa að ég skil þetta ekki, að þetta skuli vera að gerast,“ segir Magnús Tumi á ruv.is í dag (2. febrúar). Hann mælir þar fyrir munn þess sem hér skrifar og líklega alls þorra þjóðarinnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim