Niðurstaða skoðunarkönnunar Mannlífs sem gerð var á dögunum, sýnir að rétt tæp 60 prósent þátttakanda ætlar að halda sig frá miðbænum um helgina. Tæp 33 prósent ætluðu að sér að sækja miðborgina. Rúm átta prósent höfðu ekki mótað sér skoðun.
Afrit af smáskilaboðum hafa flogið manna á milli og fólk varað við að stunda næturlífið um helgina. Í skilaboðum stendur: „Þeir ætla að mæta 50-100 gæjar á nokkrum bílum og rusha dyraverðina og þeim sem að verða í þeirra vegi á Auto, Bankastræti og Lúx. Mælt er með að fólki haldi sig frá bænum og í raun bara að staðirnir opni ekki um helgina.“
Mýmörg fyrirtæki hafa fyrirhuguð jólahlaðborð um helgina en á dögunum gaf Síminn út yfirlýsingu um að í ljósi aðstæðna myndi jólagleði fyrirtækisins verða frestað.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir