Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Frosti gefur drengjum ráð við ástarsorg: „Ekki festast í eigin þráhyggju“

Frosti Logason Mynd; YouTube-skjáskot
Frosti Logason Mynd; YouTube-skjá­skot Mynd: Trausti Hafsteinsson

Frosti Logason hlaðvarps­stjórnandi birti brot úr nýjum Harmageddon-hlaðvarps­þætti sínum á YouTube. Þar gefur hann karl­mönnum ráð við ástarsorg.

Í mynd­brotinu sem sjá má hér að neðan, les Frosti færslu frá nafn­lausum meðlimi karla­hópsins Pabbatips á Facebook. Sá nafnlausi er að biðja um hjálp því hann sé í ástarsorg og sjái enga aðra leið út úr henni nema dauðann sjálfan. Frosti les svo nokkur falleg ráð frá öðrum meðlimum hópsins og kemur svo með ráð frá sjálfum sér.

Lífsreglurnar fjórar

Frosti talar um „Lífs­reglurnar fjórar“ sem fengnar eru úr samnefndri bók eftir don Miguel Ruiz. Þegar hann klárar að fara yfir reglurnar í stuttu máli segir hann: „Þetta er mjög góð bók og hjálpaði mér mikið á sínum tíma og getur hjálpað öllum. Ég myndi nú mæla með þessari bók fyrir þennan unga mann.“ Bætir Frosti svo við: „En síðan er það hitt, ástarsorg er eitthvað sem allir hafa lent í að minnsta kosti einu sinni á ævinni. En þú færð engan leiðar­vísi í skóla hvernig þú eigir að díla við það. Og það getur verið mjög erfitt, að minnsta kosti í fyrsta skiptið, að lenda í svona. Og maður veit stundum ekkert hvernig maður á að snúa sér og maður heldur einhvern veginn að maður sé sá eini sem hafi lent í þessu. Þannig að manni dettur ekki í hug að spyrja mikið eða tjá sig. Ég veit að ég get talað fyrir mína persónu og þá heimfært það á aðra karlmenn, eða drengi. Þegar maður lendir í þessu fyrst, þá getur maður gert mjög sturlaða hluti. Maður getur lent í mikilli þráhyggju og höfnunar­tilfinningin er hræðileg og maður getur sagt og gert tóma vitleysu. Þess vegna er gott að geta talað við aðra, speglað sig og fá einmitt lánaða dómgreind og hlusta. Í öllum tilfellum þar sem kona fer frá þér, geturðu alltaf fundið þér aðra og pottþétt betri konu. Aðal­áherslan sem þú þarft að leggja er á sjálfan þig, að þú sért góður maður.“ Bætti Frosti við að fyrst þurfi maður að vera góður maki til að draga að sér góðan maka. „Fókusinn á alltaf að vera hvernig get ég gert mig að betri manneskju og þá færðu einhvern sem þú átt skilið. Ef maður er í tómu rugli og vitleysu þá dregur maður að sér manneskju sem er í tómu rugli og vitleysu.“

Mikilvægt að hlusta á vinina

Frosti segir að vinirnir séu mjög mikil­vægir í ferlinu. „Þetta er drullu erfitt að lenda í þessu og maður sér ekki sólina og maður sér ekki að lífið geti haldið áfram af því að þessi manneskja er farin eða þessi manneskja sveik mann eða stakk mann í bakið og svo framvegis. Og það er erfitt að komast út úr því en svo getur einhver vinur þinn verið á hliðar­línunni og sagt „Heyrðu Frosti, þessi manneskja var bara algjört rusl“ en maður sér þetta ekki.“ Segir hann að það sé auðvelt fyrir þann sem horfir á málið fyrir utan „storminn“ að sjá að þetta er ekki svona mikið mál og að maður eigi bara að komast yfir þetta. „Og það yfirleitt þannig en það er svo erfitt fyrir mann að sjá það þegar maður er inni í þessum stormi sjálfur. Þessum tilfinninga­stormi.“ Frosti segir að þess vegna eigi maður að reyna að hlusta á vini sína og „festast ekki í eigin þráhyggju“.

Hægt er að hlusta á bútinn hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun fyrir miðhálendið í kvöld. Síðdegis hvessir einnig suðvestanlands.
Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt