Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Dróttað að geðheilsu Helga: „Að það þyrfti geðlækni til að meta mig vegna þráhyggju“

Við erum ekkert að ætlast til þess eða að það sé verið að klappa fyrir öllu sem við gerum. Það er alls ekki þannig. Það, að farið sé í skipulega herferð og beinar árásir eins og þarna var gert og opinberaðist skýrt síðasta vor, er eitthvað annað, meira og verra en við getum sætt okkur við.“

Dróttað að geðheilsu Helga

Ógnandi hegðun í garð Helga.

„Já, og ógeð­felldir hlutir; greina­skrif þar sem menn veltu sér upp úr geðheilsu minni,“ segir Helgi og á við Þorbjörn Þórðarson, fyrr­verandi frétta­mann, sem var á þessum tíma fenginn til ráðgjafar hjá Samherja.

Það sem gerðist þegar þessi skæruliða­skjöl komu út, var að nágranni minn kom til mín og sagðist nýlega hafa séð mynd af manni í blöðunum sem hún áttaði sig á að hefði verið fasta­gestur fyrir utan heimili hennar við að fylgjast með húsinu mínu á einhverju tímabili.

„Hann skrifaði greinar upp í kjaftinn á einhverjum gæja á Akureyri og svo eru samskipti þeirra á milli, þar sem Þorbjörn er að gorta sig af því að vera að drótta að geðheilsu minni. Það var greini­lega verið að koma á mig höggi með því að það þyrfti geðlækni til að meta mig vegna þráhyggju sem ég væri með. Það sem gerðist þegar þessi skæruliða­skjöl komu út, var að nágranni minn kom til mín og sagðist nýlega hafa séð mynd af manni í blöðunum sem hún áttaði sig á að hefði verið fasta­gestur fyrir utan heimili hennar við að fylgjast með húsinu mínu á einhverju tímabili. Hún og annað vitni báru um að það væri Jón Óttar. Þannig að þetta kemur allt í einu á þessum tíma; þá áttaði maður sig á þessu en maður neitaði að trúa því í öllum þessum látum: Risastórt fyrirtæki og starfs­menn þess voru undir rannsókn í Namibíu og á Íslandi og það var verið að henda þeim út úr banka­viðskiptum erlendis og þeir voru að lenda í skatt­rannsókn í Færeyjum. Þetta var allt að gerast og þeir voru að kljást við yfirvöld úti um allt og þá virtist vera heill floti af starfs­fólki undir stjórn ekki eins heldur tveggja forstjóra; það virtist allt snúast um það einhvern veginn að klekkja á mér og samstarfs­mönnum mínum. Ég hafði ekki einu sinni hugmynda­flug í að þeir hefðu reynt að eyða svona miklum tíma í þetta.

Það hefur verið landlægt á Íslandi að allir sem hafa sett sig upp á móti og farið harkalega upp á aftur­lappirnar gegn tilteknu valdi, hafi oftar en ekki fengið fljótt á sig það orð að vera geðveikir; um þá er dreift alls konar ljótum sögum. Þannig að ég er ekki fyrsti maðurinn sem lendir í þessu. En það sýnir líka bara hvað menn eru tilbúnir að gera og hvað menn telja eðlilegt að gera þegar þeim er stillt upp við vegg og þeir beðnir um að svara spurningum um gjörðir sínar.“

Helgi nefnir eina greinina sem var skrifuð á þessum tíma um hann, sem hann segir að hafi verið lögð fyrir Björgólf Jóhannesson, sem var stjórnar­formaður Samtaka atvinnu­lífsins. „Þetta er maður sem fólk mændi upp í og gerir örugglega enn þá. Ég hef haft persónuleg kynni af Björgólfi og það rímaði ekki við þau að hann væri að leggja blessun sína yfir þetta. Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri yfir risastóru alþjóða­fyrirtæki: Að menn séu að eyða tíma sínum í þetta og séu á þessu „leveli“; ég er ekkert sérstak­lega ginnkeyptur fyrir ósönnuðum samsæris­kenningum, en ég hefði ekki trúað því að menn væru til í þetta.“

Viðtalið við Helga Seljan má í heild sinni lesa í helgar­blaði Mannlífs. 

Einnig má horfa á viðtal Reynis Trausta­sonar við Helga hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Í grein fyrir breska lesendur lýsir Kristjana Guðbrandsdóttir því hvernig hún nýtur vetrarins í Reykjavík án þess að treysta alfarið á húshitun.
Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Jólin geta verið svo indæl

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt