Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Fólk

Ald­ar­gam­alt hús sem hýsti hverf­is­verslun til sölu í Laug­ar­nesi

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Rússneska leyniþjónustan gerði húsleit hjá fjölda listamanna – Meðlimir Pussy Riot yfirheyrðir

Katrin Nenasheva færð til yfirheyrslu 12. mars 2024.
Katrin Nenas­heva færð til yfir­heyrslu 12. mars 2024. Mynd: Trausti Hafsteinsson

Leyni­þjón­ustan í Rúss­landi réð­ust inn á heim­ili lista­manna og aðgerða­sinna um allt land í fyrra­dag.

Þann 12. mars réð­ust full­trúar leyni­þjón­ustu Rúss­lands (FSB) og lög­reglu­menn inn á heim­ili lista­manna og aðgerð­ar­sinna um allt land. Margir lista­mann­anna voru í kjöl­farið færðir til yfir­heyrslu. Samkvæmt mann­rétt­inda­sam­tök­unum Network Freedoms, gætu aðgerðir FSB tengst land­ráðs­máli gegn Pyotr Verzilov, með­limi Pussy Riot og fyrr­ver­andi útgef­anda Mediazona, sem segir að hann hafi gengið til liðs við úkra­ínska her­inn. Mann­rétt­inda­sam­tökin Depart­ment One telur hins vegar að rúss­nesk yfir­völd séu að grípa til fyr­ir­byggj­andi ráð­staf­ana þar sem þau eru hrædd um að þessir „óút­reikn­an­legu“ lista­menn gætu valdið upp­námi í kom­andi for­seta­kosn­ingum í land­inu.

Full­trúar FSB leit­uðu á heim­ilum lista­manna og aðgerða­sinna í fjöldi borga víðs­vegar um Rússland á þriðju­dag, sam­kvæmt skýrslum frá óháðum útgáfum og Network Freedoms. Margir lista­mann­anna voru færðir til yfir­heyrslu og í kjöl­farið látnir lausir. Mann­rétt­inda­fröm­uðir greindu frá því að sumar leit­irnar hafi verið leyfðar af Lefor­tovo-dóm­stólnum í Moskvu sam­kvæmt grein rúss­nesku hegn­ing­ar­laga fyrir land­ráð.

Snemma á þriðju­dag komu yfir­menn FSB í íbúð lista­kon­unnar og aðgerð­ar­sinn­ans Katrin Nenas­heva og vin­konu hennar Natalya Chetverio í St. Pét­urs­borg. Lög­reglu­menn­irnir eru sagðir hafa neitað að lesa upp úrskurð­inn og leit­uðu í íbúð þeirra. Í kjöl­farið var Nenas­heva flutt til yfir­heyrslu í ómerktum bíl. Chetverio sagði að Nenas­heva hafi verið leidd inn sem vitni í land­ráðs­máli.

Lög­reglan í Sankti Pét­urs­borg fram­kvæmdi einnig hús­leitir á heim­ilum lista­kon­unnar Sasha Blot og með­lima lista­hóps­ins Yav, sam­kvæmt Network Freedoms. Í Moskvu hand­tóku lög­reglu­menn vin götu­lista­manns­ins Philippenzo (Filipp Kozlov), sem fór frá Rúss­landi á síð­asta ári vegna saka­máls sem höfðað var á hendur honum vegna and-stríðs­lista­verks sem hann bjó til. Rúss­neska listaktí­vista­hóp­ur­inn Party of the Dead sagði einnig frá því að yfir­menn FSB í Sankti Pét­urs­borg hefðu tekið með­lim þeirra, Kristinu Bubentsova og eig­in­mann hennar á brott eftir leit.

Á sama tíma var lista­mað­ur­inn Ilya Mozgi færður til yfir­heyrslu í Katrín­ar­borg, eftir að lög­regla gerði hús­leit á heim­ili hans. Í Úlja­novsk var lista­mað­ur­inn Yegor Kholtov einnig hand­tek­inn eftir leit. Þá voru lista­menn­irnir Artyom Filatov og Andrey Olenev fluttir til yfir­heyrslu í Nizhny Novgorod, en þeim síðan sleppt í kjöl­farið.

Lög­reglan í Samara leit­aði einnig á skráð heim­il­is­fang lista­manns­ins Denis Mustafin. Sem stendur býr móðir hans þar en tölvan hennar var gerð upp­tæk, sagði Mustafin við OVD-Info frétta­mið­il­inn. Anastasia Mik­hailova, vin­kona fang­els­aða aðgerða­sinn­ans Pavels Krisevich, sagði einnig að hús­leit hefði verið gerð í íbúð­inni hennar.

Sama dag réð­ust full­trúar inn á heim­ili Pussy Riot-með­li­manna Marga­ritu Konovalova, Olgu Kuracheva og Olgu Pakhtu­sovu. Lög­reglu­menn tóku Kuracheva til yfir­heyrslu og enn er óljóst hvar Pakhtu­sovu er nið­ur­kom­inn. Network Freedoms greindi frá því að móðir Pyotr Verzilov, með­lims Pussy Riot og eins af stofn­endum Mediazona, hafi einnig verið skot­mark í leit­inni.

Samkvæmt Network Freedoms gætu hús­leit­irnar tengst land­ráðs­máli gegn Verzilov, sem fór frá Rúss­landi árið 2020. Í byrjun októ­ber 2023 sagði Verzilov í við­tali við rúss­neska YouTube-stjörn­una Yuri Dud að hann hefði gengið til liðs við úkra­ínska her­inn. Rúss­neskur dóm­stóll dæmdi síðar Verzilov, í fjar­veru hans, í átta og hálfs árs fang­elsi fyrir að dreifa „fals­fréttum“ um rúss­neska her­inn. Þann 11. mars, sendi þó dóm­stóll í Moskvu málið til end­ur­upp­töku vegna „rétt­ar­fars­brota“.

Mann­rétt­inda­sam­tökin Depart­ment One telur að leit­irnar teng­ist kom­andi for­seta­kosn­ingum í Rúss­landi frekar en máli Verzilovs, þar sem ekki séu öll skot­mörk leyni­þjón­ust­unnar tengd honum né þekki hann. Samkvæmt Depart­men One telja rúss­nesk yfir­völd aðgerð­ar­sinna og lit­sa­menn vera „óáreið­an­lega þætti“ þar sem „ekki er hægt að spá fyrir um hegðun þeirra“.

Rúss­neski útlaga­mið­ill­inn Meduza sagði frá mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Þolendur ofbeldis, 18 ára og eldri, geta fengið lögfræðiráðgjöf, ráðgjöf lögreglu og stuðning sér að kostnaðarlausu.
Heimur

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Heimur

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Heimur

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Heimur

Heimur

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Hjólaskautakonan Shrishti Dharmendra Sharma bætti eigið met í limbóskautun
Heimur

Amma skotin í höf­uðið og keyrt yfir átta

Heimur

Pútín hótar „sárs­auka­fullum“ hefndum vegna árása á Krímbrúna

Heimur

Shenk varar við nýju tíma­bili óstöð­ug­leika í tækni­málum

Heimur

Musk seg­ist ekki vera hluti af MAGA-hreyf­ingu Trumps

Heimur

Alvar­legar ásak­anir á hendur 15 ára syni raun­veru­leika­stjörnu