Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Segir sumarið farið frá Tenerife: „Ekki veit ég hvaða Íslendingar tóku kuldann með sér“

Anna Kristjánsdóttir.
Anna Krist­jáns­dóttir.

Anna Kristjáns­dóttir segir að sumarið sé farið í Paradís, ekki sé þar meira en 22 gráður.

Eins og alþjóð veit orðið, skrifar Anna Kristjáns­dóttir launfyndnar dagbókar­færslur frá Tenerife og birtir á Facebook, en þangað flutti hún fyrir nokkrum árum. Hina spænsku eyju kallar hún Paradís og er nokkuð tíðrætt um veður­farið enda lesenda­hópurinn íslenskur og því áhuga­samur um slíkt.

Í færslunni segir Anna að sumarið sé farið, þrátt fyrir að hafa haldið því fram fyrir nokkrum dögum að það væri komið til Paradísar. Í gær segir hún að hitinn hafi rétt slefað upp í 22 gráðurnar. Þá talaði hún einnig um vinnu verka­manna við að koma upp nýju sóltjaldi eftir að hið fyrra hafði fokið í vetur og um Eric nokkurn sem dreymir um að strauja hár hennar.

Sjón er sögu ríkari:

„Dagur 1331 – Sumarið er farið.

Sumarið er farið, það fraus í hylnum.Um daginn hélt ég því fram að sumarið væri komið, enda kom gott Calima og hitinn rauk upp í 34°C sem er mjög óvenjulegt fyrir Tenerife, en nú er öldin önnur. Hitinn rétt marði 22°C í gær og fór niður í 15°C í nótt með einhverri rigningu. Ekki veit ég hvaða Íslendingar tóku kuldann með sér suður á bóginn, en einhverjir gerðu það. Ég fór í svo mikla fýlu að ég er ákveðin í að taka ekki einustu gráðu af hita með mér til Íslands þegar ég fer þangað í vor. En það stefnir samt í sumaryl eftir páska.Að þessu frátöldu, þá mætti maður frá sóltjalda­fyrirtækinu til mín til að áætla kostnað við uppsetningu þess eftir að það fauk í vetur og braut stykki úr þakkantinum. Eftir að Sean hafði steypt í þakkantinn að nýju, ákvað ég að láta steypuna þorna vel áður en ég pantaði uppsetninguna að nýju eftir viðgerð á þakkantinum og pantaði tilboð í verkið í fyrradag. Þegar ég heyrði verðið á uppsetningunni gat ég ekki annað en farið að hlæja, enda hafði ég búist við allt að þúsund evru reikning (eigandi íbúðarinnar borgar). Áætlað verð reyndist innan við þriðjungur af minni áætlun og þegar haft er í huga hve starfmenn þessa fyrir­tækis eru góðir og nákvæmir, líka hvað tíma­setningu snertir, þá eiga þeir skilið aukabónus fyrir verkið. (Ég skal borga bónusinn).Ég viðurkenni alveg að ég hefði alveg getað sagt markisur, en hrein­tungu­stefnan bannar mér slíkt. Það er margoft búið að skamma mig fyrir að nota komplex fyrir svona fjölbýli eins og er hér þar sem eru um 200 íbúðir í sjö hlutum fjöl­býlisins auk nokkurra bara og veitinga­húsa, einnar verslunar og einnar hárgreiðslu­stofu þar sem hún Roberta mín rak áður en hún veiktist. Ég bíð þess enn að hún mæti aftur til starfa og geri hárið mitt eins og áður, en Eric frændi minn frá Írlandi á stofunni í næsta húsi er einstak­lega áhuga­samur um að strauja á mér hárið og ég er ekki sátt við slíkt.Svo mörg voru þau orð.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Frétt

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
Innlent

Þvingaði fyrr­verandi eiginkonu sína inn í bíl

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Verðlaunin nema 100.000 evrum, eða tæplega 15 milljónum króna.

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt