Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Skrifar til Katrínar Jakobs fyrir hönd lítillar stúlku: „Meðferð markaðist af kynferðisofbeldi“

Katrín Jakobsdóttir
Katrín Jak­obs­dóttir Mynd: RÚV

Greinin er aðsend. Höfundur er Rósa Ólöf Ólafíu­dóttir.

Opið bréf til Forsætis­ráðherra Katrínar Jakobs­dóttur

Kæra Katrín,        .

Kveikjan að bréfi þessu eru drög að frumvarpi þínu til laga sem hefur það að markmiði að setja heildarlög um sanngirnis­bætur til handa einstaklingum sem orðið hafa fyrir varanlegum skaða vegna illrar meðferðar eða ofbeldis sem þeir hafa orðið fyrir vegna athafna eða athafna­leysis opinberra aðila.

Ég skrifa þér fyrir hönd lítillar stúlku sem hefur ekki þroska né getu til að tjá sig. Hún var vistuð frá unga aldri fyrst á Elliða­hvammi síðan á Silunga­polli þessu næst á Reykja­hlíð, Hlað­gerðarkoti og svo á einka­heimili.

Þegar aldurinn tók að færast yfir hana gerði hún sér grein fyrir að þessar uppeldis­aðstæður voru ákaflega óvenjulegar svo ekki sé meira sagt.

Hún var nauðunga­vistuð á barna­heimilum og fóstur­heimilum án þess að fá að hitta fjöl­skyldu sína. Jú, heim­sóknir voru leyfðar en þessir staðir voru fyrir utan bæinn og fátæk móður hennar var bíllaus. Aðferð hennar til lifa af þessar vistanir var sú sama og annarra fanga, að láta sig dreyma um daginn sem hún losnaði úr vistinni.

Það yrði of langt mál  að fara hér út í þá meðferð sem hún og önnur börn sem vistuðust á þessum stöðum hlutu. Meðferð sem markaðist af þvingunum, frelsis­sviptingu, stundum kynferðis­ofbeldi, andlegu ofbeldi og einelti.

Sýndar­eftirlitið sem átti sér stað af hálfu opinberra yfirvalda fólst í heim­sóknum og viðtölum við yfirmenn þessara stofnana. Við vorum aldrei spurð.

Mann­réttindi þeirra voru fótum troðin. Genfar­sáttmálinn þver­brotinn. En hvað með það? Íslensk yfirvöld höfðu jú ekki undir­ritað hann.

Hún ólst upp við tíðaranda þagnarinnar með kynslóð sem dæmdi og útskúfaði einstaklingum og fjöl­skyldum sem stóðu hallloka í samfélaginu.

Sumir glíma við skömm vegna eigin mistaka í lífinu. Hún glímdi við skömm vegna úrræða sem hún bar enga ábyrgð á.

Nú má ætla að stjórn­völd og uppeldis­aðilar þessa tíma gætu gert sér grein fyrir hvaða áhrif það hefur á börn að vera lokuð inni, fjarri foreldrum og fjöl­skyldu, árum saman. Alla vega voru komnar fram nokkuð áreiðanlegar umfjallanir sálfræðinga og geðlækna um slíka meðferð á börnum. En nei slík þekking hafði engin áhrif á gjörðir þessara meðferðar­aðila. Svo þessi litla stelpa dró eftir­farandi ályktun:

Ég hlýt að vera óalandi óferjandi og gallað manneskju­eintak úr því að komið er svona fram við mig.

Ef einhver hefði spurt hana um líðan sína og viðhorfa til lífsins hefði hún kannski geta tjáð sig um þessa auðsýndu fyrirlitningu og það virðingar­leysi fyrir rétti hennar sem manneskju sem yfirvöld sýndu henni með þessari meðferð. En það spurði enginn. Hún átti mörg þjáningar­systkin sem þurftu að þola sömu meðferð.

Í samráðs­gátt stjórn­valda komu fram margar athuga­semdir við þetta frumvarp, örfáir skrifuðu undir með nafni en flestir þó án þess að láta nafns síns getið. Hvers vegna skyldi fólk kjósa að skrifa ekki undir með nafni? Er ástæðan kannski sú að þessir nafnlausu einstaklinga eru enn svo djúpt markaðir af skömm vegna vistunarinnar að þeir kjósa að skrifa nafnlaust.

Kæra Katrín.

Ég vil nú víkja að þessum drögum að frumvarpi þínu til laga um sanngirnis­bætur. Þar ætlar þú að lækka hámarks­upphæð bóta til handa einstaklingum úr 6 milljónum niður í 3 milljónir. Hvað skyldi svo vera hægt að gera fyrir 3 milljónir? Skyldu 6 milljónir eða 3 milljónir nægja fyrir meðferð hjá sálfræðingi eða bæta upp skort á menntun eða skerta vinnugetu vegna ógreindrar áfallastreyturöskunar, sem þróast hefur í krónískt þunglyndi? Nú eða árin sem fóru í brennivín og fíkniefna­neyslu sem mörg okkar lifðu reyndar ekki af?

Í frumvarps­drögunum sem ég vísa í hér að framan segir orðrétt: „þeim sem urðu fyrir varanlegum skaða”. Hvernig dettur þér í hug að bjóða manneskju sem orðið hefur fyrir varanlegum skaða slíka upphæð?  Þessar upphæðir eru hlægilegar en ekki bara hlægilegar heldur sýna þær algjöran skort á skilningi á þeirri mannlegu þjáningu sem við urðum að þola á ábyrgð íslenskra stjórn­valda. En upphæðirnar sýna ekki bara skilnings­leysi heldur líka algjöran skort á virðingu fyrir lífi einstaklinga sem ólust upp á ábyrgð íslenska ríkisins.

Nei, kæra Katrín.

Í krafti embættis þíns fetar þú í fótspor fyrri stjórn­valda þessa lands sem leyfðu að börn væru vistuð eins og fangar á barna­heimilum og einka­heimilum sem virtust geta starfað án eftirlits og laga.

Rósa Ólöf Ólafíu­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Unnar hótaði mæðginum og fjöl­skyldan fór í felur

Þorðu ekki að vera heima og fluttu sjö sinnum
Innlent

„Ég vil ekki að Ísland upplifi bakslag“

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Þá var einnig tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna