Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Sara furðar sig á fullyrðingum Skúla læknis: „Hún upplifði mjög mikla þjáningu þar til hún lést“

Sara Pálsdóttir
Sara Páls­dóttir Mynd: Aðsend

Eins og Mannlíf hefur fjallað um þá hefur læknirinn Skúli Tómas Gunnlaugsson sætt lögreglu­rannsókn vegna ásakana um að hafa sett sjúklinga sína í tilefnis­lausar lífsloka­meðferðir á Heilbrigðis­stofnun Suðurnesja.

Rannsókn málsins er við það að ljúka; sex málum verður vísað til héraðs­saksóknara.

Læknirinn Skúli tjáði sig í fyrsta sinn um málið eða málin í færslu á Facebook fyrir helgi; þar lýsti hann yfir sakleysi sínu og sagði skýrslur dómkvaddra matsmanna staðfesta að sjúklingarnir sex hefðu látist af náttúru­legum orsökum.

Skúli Tómas Gunn­laugs­son hefur stöðu grun­aðs í mál­inu.

Sara Páls­dóttir er réttar­gæslumaður fjöl­skyldu konu sem lést 73 ára gömul á HSS, og segir Sara í samtali við ruv.is að sér hafi brugðið við að lesa færslu Skúla, því gögn sem hún hefur í höndum benda til annarrar niður­stöðu:

„Í mats­gerðinni kemur hvergi fram að sjúklingurinn hafi látist af náttúru­legum orsökum. Þvert á móti kemur fram í mats­gerðinni að sjúklingur hafi, án þess að vera með lífs­ógnandi sjúkdóm, verið sett á lífsloka­meðferð og í henni fólst að sjúklingur var settur í svokallaða lyfja­fjötra. Það þýðir að lyfja­meðferð er svo þung að sjúklingur getur hvorki tjáð sig, nærst eða hreyft sig með eðlilegum hætti,“ segir Sara.

Sara segir að konan hafi komið inn til hvíldar­legu á HSS; engar forsendur hafi verið fyrir lífsloka­meðferðinni sem hafi staðið yfir sleitu­laust í ellefu vikur; einnig hafi lyfjagjöf ekki verið forsvaranleg:

„Hún hafi verið framkvæmd nánast allan þennan tíma, þessa 79 daga sem hún lá inni á HSS, með þeim afleiðingum að hún nærðist ekki, fékk legusár sem var mjög erfitt að meðhöndla og hafi upplifað mjög mikla þjáningu þar til hún lést.“

Sara furðar sig á full­yrðingum læknisins á Facebook; segir að niður­stöður matsmanna staðfesti það sem fram komi í svartri skýrslu embættis lands­læknis:

„Þetta embætti fer lögum samkvæmt með eftirlits­hlutverk með heilbrigðis­starfsfólki og framkvæmd heilbrigðis­þjónustu á Íslandi. Þannig að það hefur alveg mjög þungt vægi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim