Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Glúmur áttavilltur í Evrópu: „Ég svaraði can you fucking speak English“

„So fuck Ungverja­land and fuck you very much Króatía,“ segir Glúmur Baldvinsson í lok ferðsögu sem hann birtir á Facebook. Líkt og þessi lokaorð gefa til kynna þá er Glúmur ekki alls kostar sáttur með gestrisni Suðaustur-Evrópubúa. Hann hugðist keyra frá Króatíu til Búdapest í Ungverja­landi en varð átta­villtur þökk sé hinu bölvaða forriti Google Maps.

„Í dag freistaði ég þess að heimsækja Búdapest í fyrsta sinn. Vaknaði við fyrsta hanagal og sólar­geisla í Samobor, Króatíu, hvaðan ég hóf ferðina. Skemmst er frá því að segja að ferðin var disaster frá upphafi til enda. Til að átta mig á samhengi veganna leitaði ég aðstoðar Google maps sem var í fyrstu ekki alveg með á nótunum og sendi mig í öfuga átt til Slóveníu. Landamæra­verðir þar bentu mér á að snúa við og halda í gagnstæða átt. Og ég dúndraði frjáls eins og fuglinn í átt að Ungverja­landi á 150 km. En hafði þó Google maps til taks því Búdapest kom ekki upp á skiltum. Það hefði ég betur látið ógert því þetta foráttu heimska apparat vísaði mér af hrað­brautinni og um beljuland Króatíu þar sem traktorar geitur og fjár­hirðar héldu mér höktandi á 30 km svo að á fjórum tímum var eins og ég keyrði afturábak og fjar­lægðist Ungverja fremur en að nálgast. Ég hef aldrei fyrr rifist jafn mikið og lengi við síma um dagana,“ lýsir Glúmur.

Svo fór að hann loksins kom að landa­mærum. „En loksins kom ég að landamærastöð og eygði þarmeð von um að komast aftur á beinu brautina en það var nú aldeilis ekki. Stórgerð Babúska rjóð í kinnum æpti á mig valds­mannslega passaporte und pappieren. Ég rétti henni passa minn íslenskan í þeirri fullvissu að hún kannaðist við landið sem fyrst viðurkenndi sjálf­stæði Króatíu. En ó nei hún og lögreglu­maður ungverskur sem kallaður var til í að díla við glæpa­manninn mig æpti aftur. Pappieren. Ég svaraði can you fucking speak English. Þá kom á daginn að þessi yndis­gerpi vildu skráningar­skírteini bílsins sem ég leigði í Ítalíu,“ segir Glúmur.

Hann reyndi að útskýra fyrir þeim seinni tíma sögu Evrópu. „Þau rótuðu í papp­írunum og sögðu svo þvert Nei. Og ég reyndi að útskýra fyrir þeim að kalda stríðinu væri lokið og allt um eðli EES og frjálsa för innan þess svæðis. Jú jú ok með það en þau heimtuðu frumrit skráningar­skírteinisins. Sögðu mig bara hafa afrit. Mig langaði að ganga frá þeim á staðnum og spurja idjótin hvort þau vissu ekki hver ég væri en nennti ekki að dúsa í ungversk króatísku fangelsi næstu misserin. Svo ég varð frá að hverfa og elta traktora og geitur og beljur sömu vegina tilbaka næstu fimm tímana. So fuck Ungverja­land and fuck you very much Króatía.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Tveir voru handteknir vegna gruns um rán og þrír grunaðir um þjófnað úr verslunum.
Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Heimur

Missti heims­metið í eyrnalengd en vann nýtt með halanum

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Í einu tilvikanna mældist vínandamagn í blóði hans 2,19 prómill eftir umferðaróhapp á Breiðholtsbraut.

Biskup biður um styrk og huggun fyrir þau sem syrgja skip­verjana

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“