Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Arnar um áfangaheimilin: „Á mánudeginum þá kíki ég inn í herbergið hans og þá var hann látinn“

Skjáskot úr sjónvarpsviðtali: Arnar Gunnar Hjálmtýsson
Skjáskot úr sjón­varps­við­tali: Arnar Gunnar Hjálmtýs­son Mynd: Ágúst B. Sverrisson

„Við erum bara þarna að sjá um húsnæðið í sjalfboðavinnu. Það er náttúru­lega margt sem þarf að gera, það þarf að fara og kaupa allt sem þarf klósett­pappír og kaffi og sápu og allt sem er til staðar í því og fara með ruslið á hverjum degi og allt svona tilfall­andi,‘‘ sagði Arn­ar Gunn­ar Hjálm­týs­son, for­stöðu­maður áfanga­heim­il­is­ins Betra líf, í samtali við Mannlíf í morgun. Mikil umræða skapaðist um áfanga­heimilið í kjölfar elds­voðans sem kom upp í húsnæðinu í síðustu viku og lýstu nágrannar yfir áhyggjum sínum. Arnari sárnar umræðan síðustu daga en sjálfur segist hann, ásamt syni sínum og kærustu hans, sjá um húsnæðið í sjálfboða­vinnu.

,,Sonur minn og kærasta hans sjá um þrif líka á sameigninni. Íbúum þarna ber skylda til þess að sjá um að herbergin þeirra séu þokkalega snyrtileg og taka ábyrgð á því,‘‘ segir hann. Í húsinu eru þrjátíu herbergi og hafa allir leigjendur aðgang að sameign. Aðspurður hvað sé í sameign segir hann ótal margt falla þar undir. ,,Hvert herbergi hefur aðgang að allri sameigninni, það er eldhús, gangarnir, reykingar­aðstaða, þvottahús og salerni.‘‘

Leiguna segir hann ekki gerast ódýrari á Íslandi.  ,,Það er allur kostnaður við húsið inni í leigunni. Síðan er leigan þarna frá 120 þúsund upp í 140 þúsund en að öllu jafna eru þau(íbúar) með 80 þúsund í húsaleigu­bætur að lágmarki. Ef þú ert öryrki þá færðu ofan á það heimils uppbót og þá  ertu kominn með 120 þúsund. Þannig að sumir þarna eru í raun og veru í fríu húsnæði og það gerist ekkert ódýrara a Íslandi.‘‘ Arnar segist greiða um 3,7 milljónir af húsinu mánaðar­lega, þar af greiði hann 720 þúsund krónur í fasteigna­gjöld. Sjö hundruð og tuttugu þúsund krónur þykir afar há upphæð en er það vegna þess að húsið er skráð skrifstofu­húsnæði.

,,Af því að þetta er skrifstofu­húsnæði. Þeir vildu ekki breyta þessu, þó ég reyndi að fá þá til þess að breyta því af því  að þetta er heimili hjá fólki, það býr þarna. Borgin vildi ekki breyta því þá eru fasteigna­gjöldin um 80 þúsund á mánuði og þeir eru ekkert æstir i að lækka skatt­tekjurnar sínar. Þeir neituðu, þeir sögðu það er aldrei breytt fasteigna­gjöldum. Ég fékk bara svar frá þeim,‘‘ segir hann og bætir við: ,,Fólkið sem er að borga leiguna þarna eru náttúru­lega þeirra skjólstæðingar. Þeir eru i mörgum tilfellum að skaffa 186 þúsund á mánuði. Svo fá þeir náttúru­lega sérstakan húsnæðis­stuðning líka sem er 40 þúsund. Svo fá þau 40 þúsund frá HMS sem er ríkið þannig þá eru þau alltaf allavega með 80 þúsund. Þetta eru allt saman peningar frá ríki og sveitar­félögum. Við erum að borga niður skóla og leikskóla og allt og svo er Reykja­víkurborg líka að reka gistiskýlið. Gistiskýlið er náttúru­lega, eins og margir vita, það er ekkert geðslegt að vera þar. Þú ert með fjóra til sex saman i herbergi og þér er hent út klukkan tíu á morgnanna og þú getur ekki farið að sofa því þá er búið að stela af þér símanum. Þetta segja mér bara menn sem að eru hjá mér sem hafa þurft að vera þar. Hjá mér fá þeir lykil af sér herbergi og enginn annar kemst inn i það.‘‘ Arnar veit til þess að bið eftir félags­legu húsnæði hafi verið allt að níu ár.

,,Einn maður sagði við mig i fyrra sko, eldri maður, sem sagði: ,,Þetta er i fyrsta skipti i þrjú ár sem mér finnst ég eiga heima einhversstaðar, þegar ég hef lykil af herbergi.‘‘ Þetta er raun­veruleikinn fyrir þetta fólk. Þessi maður fékk síðan félags­íbúð en hann var búinn að bíða í níu ár eftir henni. Níu ár.‘‘

Áfanga­heimili hafa venjulega þá reglu að fólk haldi sér edrú meðan það dvelur þar. Aðspurður hvers vegna Betra líf sé frábrugðið segir Arnar úrræðið kallast Housing First.

,,Ég er með úrræði sem heitir Housing First þarna,‘‘ segir hann og bætir við að hann hafi hitt stofnanda Housing First, Juha Kaakinen, árið 2019 þegar hann heimsótti Ísland og kynnti úrræðið á fundi Vonar hjá SÁÁ. ,,Þremur árum eftir að þeir byrjuðu þetta þá fækkaði útigangs­mönnum um sjötíu prósent í Finnlandi. Ég sem sagt tók bara upp á því, að eigin frumkvæði, að bjóða þeim að koma þarna inn með því skilyrði að þau myndu panta í meðferð. Þetta er allt saman fólk þó að það sé veikt,‘‘ segir hann en biðtími fyrir fíkla sem hafa farið ítrekað í meðferð segir hann biðtíma geta verið allt að sjö til átta mánuðir.

Þegar fólk fær inn í meðferð, lætur það þig vita?
,,Eiginlega í öllum tilfellum þá skutla ég þeim upp á Vog. Það er bara þannig. Ekki bara það, ég þekki líka fullt af fólki sem er að vinna hjá SÁÁ og get reynt að ýta á það að það fái flýti­meðferð.‘‘

Þrír ungir menn létust í síðastliðinni viku úr ofneyslu fíkniefna. ,,Í fyrra voru 52 ungir einstaklingar sem dóu á Íslandi út af ofneyslu eitur­lyfja. Það er fyrir utan alla þá sem deyja úr alkahólisma langt fyrir aldur fram.‘‘ Ekki er langt síðan að maður lést á áfanga­heimilinu sem Arnar rekur en sá var orðinn mjög veikur að hans sögn. ,,Hann deyr líklega á föstudegi og við erum náttúru­lega ekki að fara inn i herbergi hjá fólki reglulega, þetta er heimili þeirra ég þarf þá að biðja um leyfi og það eru bara persónuverndarlög varðandi það. Þessi maður var búinn að vera mjög veikur frá því hann kom til okkar, hélt engri fæðu niðri. Hann kom 5 ágúst,‘‘ segir hann og bætir við: ,,Þessi maður var fæddur 1968 og systir hans þakkaði okkur kærlega fyrir það að veita honum húsaskjól síðustu daga ævi hans því að hann hafði ekki í nein hús að vernda. Hann var bara orðinn skinn og bein og hélt engum mat niðri. Hann gat ekki drukkið og gat ekki, ekki drukkið. Það var farið með hann nokkrum sinnum niður á spítala og þeir gátu ekkert gert fyrir hann. Síðan á mánudeginum þá kíki ég inni herbergið hans vegna þess að herbergis félagi hans við hliðin á honum sagði að hann hafi ekkert heyrt í honum eða rekist á hann fara a klósettið eða neitt svona og þá var hann látinn. Og hann er ekki fyrsti sem að deyr hjá okkur því þetta er graf alvarlegur sjúkdómur. ‘‘

Arnar hefur beðið um styrki allt frá því að hann opnaði áfanga­heimilið en hefur enn enga styrki fengið.  ,,Í mann­réttinda­sáttmála sameinuðuþjóðanna, sem Ísland er búið að skrifa undir og samþykkja, segir að allir eigi rétt á fæði, klæði, húsnæði, læknis­þjónustu og félags­þjónustu. Ég er að reyna að hjálpa sveitar­félögunum því þau geta ekki hjálpað þessu fólki að redda einu af þessum atriðum, sem er húsnæði. Ég er bara ósköp venju­legur maður sem bara ofbauð ástandið.‘‘

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim