Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Gaupi segir Arnar Þór vera hrokafullan: „Mér finnst allt þetta mál til háborinnar skammar“

Guðjón Guðmundsson, Gaupi.
Guðjón Guð­munds­son, Gaupi.

Sjálfur Gaupi – Guðjón Guðmundsson – íþrótta­fréttamaður á Sýn kom sem gestur í Íþrótta­vikunni með Benna Bó á Hringbraut, ásamt Herði Snævar Jónssyni, íþrótta­stjóra á Torgi.

Benedikt Bóas Hin­riks­son þátta­stjórn­andi.

Í þættinum var rætt um komandi lands­leiki hjá karla­landsliðinu í fótbolta; liðið er að hefja leik í undan­keppni EM 2024.

Leikmaður Genoa – Albert Guðmundsson – hefur verið í ónáð hjá landsliðs­þjálfaranum, Arnari Þór Viðars­syni, undan­farin misseri.

Albert Guð­munds­son.

Albert hefur spilað vel síðustu vikur; en Arnar Þór ákvað þó að velja ekki Albert; sagði Arnar Þór að hugarfar Alberts í verkefnum ekki hafa verið nægilega gott.

„Þarna þarf landsliðs­þjálfarinn að brjóta odd á oflæti sínu og hafa samband við leik­manninn sjálfur, hann getur ekki ætlast til þess að leik­maðurinn sjálfur hringi í hann og slíðri sverðin. Hann verður að leysa málið,“ segir Gaupi og bætir við:

Arnar Þór Við­ars­son lands­liðs­þjálf­ari karla­lands­liðs Íslands í fót­bolta.

„Hann er maður að meiri ef hann gerir það, íslenska lands­liðið er í þeirri stöðu í dag í fótbolta að það er möguleiki að fara í gegnum þennan riðil. Til þess þarf að hafa alla okkar bestu menn, íslenska lands­liðið hefur ekki efni á því að vera án Alberts í þessu verkefni. Mér finnst allt þetta mál til háborinnar skammar.“

Gaupa finnst „Arnar stundum hroka­fullur í svörum og allri sinni nálgun en hann hefur verið á uppleið með liðið. Hann þarf að brjóta odd á oflæti sínu og taka upp símann.“

Hörður Snævar segir að Albert hafi alla hæfileika heimsins til að vera lykil­maður í lands­liðinu, en Hörður sér málið ekki leysast á næstunni:

Hörður Snævar Jónsson.

„Ég tel útilokað að Albert verði í hópnum, hnúturinn er þannig bundinn að það gæti reynst erfitt að leysa hann. Albert hefur alla þá hæfileika sem til þarf til að vera einn besti leikmaður liðsins. Ég held að þetta mál hafi hins vegar hjálpað Arnari að stíga niður fæti innan hópsins. Ef þetta á að leysast þarf þjálf­arinn að hafa frum­kvæðið að því. Ég sé hann ekki vera í hópnum sem verður valinn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim