Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Ásdís fasteignasali: „Elskar litríkan og hollan mat“

Ljósmyndari: Ásta Kristjánsdóttir
Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

Ásdís Ósk Vals­dóttir, fasteigna­sali og lífsstíls­gúrú, gjör­breytti matar­venjum sínum og borðar nú 90% „clean“. Ásdís er matgæðingur Mannlífs þessa vikuna og fengum við að skyggnast aðeins inn í hennar daglega líf.

„Ég set reglulega matseðilinn minn inn á Instagram-síðuna mína til að gefa fólki hugmyndir að dags­planinu. Ég áttaði mig á því að ef ég setti ekki upp matseðil fyrir allar máltíðir þá færi skipulagið alltaf út um gluggann.“

Ásdís vaknar í kringum kl. 5 á morgn­ana, æfir mikið og borðar 5 mál­tíðir yfir dag­inn.

„Hádegis­maturinn minn er yfirleitt afgangur frá kvöldinu áður, þannig spara ég tíma og minnka matarsóun.“

Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

Hrifnari af fiski
Ásdís segir okkur að hún sé mikið fyrir kjöt og fisk og hafi síðustu ár orðið hrifnari af fiski. Hún bætir við: „sellerí er hins vegar án efa eitt það versta sem ég hef borðað. Ég hef mikið reynt að bæta því við mataræðið, það gengur hins vegar ekkert. Lands­lægur skortur á selleríi var því ekkert vandamál hjá mér.“

Hún elskar litríkan og hollan mat og breytti matar­æðinu fyrir rúmu ári af heilsufars­ástæðum þegar hún kynntist Clean-mataræði hjá Greenfit.

„Það gjör­breytti matar­venjum mínum og sem bónus þá er hægt að borða meira af réttu fæði. Eftir að hafa kynnst Clean-mataræði var ekki aftur snúið og ég hef það að markmiði að borða svona 90% „clean“ sem þýðir að ég sleppi mjólkur­vörum, kornvörum, sykri, áfengi og kaffi.“

Ásamt syni sínum, Axel Vali, hefur hún þróað uppskriftavef sem heitir www.cleanlife.is og á sér marga uppáhalds­rétti þar.

„Á vefnum höfum við lagt áherslu á einfalda, fljótlega og umfram allt hollan mat sem uppfyllir skilyrði Clean og er einn af mínum uppáhalds­réttum rækjur með grænmeti.“

Nýlega byrjuð að elda aftur
Vikulega pantar hún matar­kassa frá Austur­land Food Company og fær megnið af grænmetinu og ávöxtunum þaðan. Það kemur líka alltaf eitthvað óvænt og spennandi með matar­kassanum, eitthvað sem hún hefur ekki notað áður, sem eykur á fjöl­breytnina, segir Ásdís áhugasöm.

Ásdís og sonur hennar, Axel Valur. Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

„Ég er nýlega byrjuð að elda aftur. Fyrr­verandi maðurinn minn er góður kokkur og þegar við skildum tók við mjög einfalt og áreynslu­laust mataræði. Ég er svo heppin að elsti sonur minn, Axel Valur, er ástríðu­kokkur og hann tók við eldhúsinu. Núna stefnir í að hann flytji að heiman á næsta ári og því hefur hann verið að þjálfa mömmu sína í eldhúsinu síðasta ár. Markmiðið með vefnum okkar er einmitt að mamman geti orðið sjálfbær í eldhúsinu og séð um sig sjálf. Ég hefði aldrei náð svona góðum tökum á matar­æðinu án Axels Vals.“

Þegar Ásdís var að byrja að elda segist hún hafa verið alveg sérstak­lega nákvæm, en svo heyrðist reglulega: „Axel, hvað settir þú nákvæmlega mikið af X-hráefni í réttinn og svarið sem ég fékk alltaf til baka var: Ég setti nú bara dass eða slump, og svo bætti hann við: Mamma, bakstur er vísindi, elda­mennska er list.“

Strákarnir hennar segja að hún sé viðutan skipulags­kokkur, af því að hún gleymi reglulega að kveikja á hellunni, ofninum eða stilla tímann á ofninum.

Í dag nýtur Ásdís þess að breyta uppskriftum og aðlaga þær Clean-matar­æðinu, hún segir að það sé oft mjög mikið af sætu í uppskriftum, t.d. síróp, og notar hún þá gjarnan í staðinn döðlur og möndlu­smjör.

Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

Ásdís elskar að hafa döðlur, macademiu-hnetur og þess háttar í veislunum.

„Það er til gífur­legur fjöldi góðra eftir­rétta með döðlum, sem ég er aðeins byrjuð að leika mér með og ég ætla fljótlega að setja hnetuköku á vefinn, þegar hún er fullkomin. Að skera niður epli, döðlur og macademiu-hnetur er til dæmis fullkomið sjónvarps­snarl.“

Rækjur í álp­appír

Virkilega góður og fljót­legur réttur.

„Ég blanda ýmsu grænmeti með rækjunum þannig að rétturinn er alltaf litríkur og fallegur.“

Ljós­mynd­ari: Ásta Krist­jáns­dóttir

FYRIR EINN

INNIHALD

  • 10-12 risa­rækjur
  • 1/4 kúrbítur, skorinn í þunnar sneiðar – líka gott að nota aspas
  • 2 gulrætur, skornar í þunnar sneiðar
  • 4 kirsuberja­tómatar
  • 1/2 vorlaukur, skorinn í sneiðar
  • 1 rif hvít­laukur, smátt saxaður
  • 1 cm engifer, smátt saxað
  • safi úr hálfri sítrónu
  • matarolía, salt, pipar
  • furu­hnetur til að dreifa yfir ef vill

Aðferð:

  • Undir­búnings­tími: 10 mín. / Eldunar­tími: 10 mín.
  • Ofninn er hitaður í 180 °C. Vasi búinn til úr álpappír og settur á ofnplötu.
  • Rækjunum er raðað í tvær raðir. Kúrbítur er settur á 1/3 af vasanum sem er eftir, síðan kirsuberja­tómatar og loks gulrætur.
  • Olíu dreift yfir, salt, pipar, sítrónu og loks hvítlauk og engifer. Mér finnst mjög gott að setja svo furu­hnetur yfir allt saman.
  • Vasanum lokað og bakað í 10 mínútur.

Smelltu hér til að lesa brakandi og feskt helgar­blað Mannlífs eða flettu því hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto