Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Flutti inn tvö kíló af fíkniefni og bar fyrir sig vanþekkingu

Sendingin kom til landsins í mars á síðasta ári

Hafnarfjörður
Hafn­ar­fjörður Mynd: Hafnarfjarðarbær

Maður hefur verið dæmdur í þriggja mánaða skilorðs­bundið fangelsi fyrir að hafa flutt tæp tvö kíló af kratom til Íslands. Dómur féll í Héraðs­dómi Vestur­lands í dag, 15. október.

Maðurinn var ákærður fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa staðið að innflutningi á samtals 1.975,58 grömmum af kratom, sem innihélt virka efnið mítragýnín í 1,5 prósenta styrk­leika.

Sendingin kom til landsins í mars á síðasta ári og var stöðvuð af toll­gæslunni við eftirlit með erlendum hraðsendingum í vöruhúsi Icetransport í Hafnar­firði. Maðurinn var skráður bæði sendandi og móttak­andi sendingarinnar, en sendanda­heimilis­fangið var í Tékklandi.

Maðurinn játaði að hafa ætlað að fá efnið sent til Íslands en kvaðst ekki hafa vitað að það væri ólöglegt hér á landi. Fyrir dómi sagði hann kratom vera löglegt og aðgengilegt í Tékklandi og lýsti áhrifum þess sem sambærilegum við sterkt kaffi. Hann sagðist meðal annars hafa notað efnið til að auka orku á nætur­vöktum og við líkams­rækt.

Sérfræðingur Rannsókna­stofu Háskóla Íslands í lyfja- og eitur­efnafræði sagði hins vegar fyrir dómi að kratom væri hugbreytandi efni sem hefði örvandi áhrif í litlum skömmtum en sljóvgandi áhrif í stærri skömmtum. Áhrifin væru annars eðlis en áhrif koffíns og gætu verið ópíóíðalík.

Vanþekking á lögum dugði ekki

Dómurinn féllst ekki á þá málsvörn mannsins að hann hefði haft réttmæta ástæðu til að ætla að innflutningurinn væri löglegur. Í niður­stöðunni kemur fram að lögvilla leysi fólk almennt ekki undan refsiábyrgð og að skýrar reglur hafi um nokkurt skeið bannað innflutning á kratom til Íslands.

Maðurinn, sem er fæddur árið 1995, hafði ekki áður sætt refsingu. Við ákvörðun refsingar var meðal annars litið til þess auk þess sem hann gekkst við háttsemi sinni.

Hann var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi en fullnustu refsingarinnar frestað í tvö ár haldi hann almennt skilorð. Þá voru 1.975,58 grömm af kratom gerð upptæk.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Innkalla eitt þekktasta prótín­stykki landsins

Neytendur sem eiga umrædda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki heldur farga henni
Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Maðurinn ók á röngum vegarhelmingi undan lögreglu í Mosfellsbæ, stöðvaði síðan bílinn og hljóp á brott.

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum